Vísir - 19.12.1962, Blaðsíða 6
TVÆR GLÆSILEGAR JÓLABÆKUR
GÍSLI JÓNSSON, ritstjóri, skáld og prentari, frá
Háreksstöðum i Jökuldalsheiði, er kunnur maður
bæði vestan hafs og austan. Hann stundaði nám í
Möðruvallaskóla 1894—1896 og lauk þar prófi með
1. einkunn. Nam prentnárr, á Akureyri 1898—
1903; fluttist sama ár vestur um haf og var þar
bæði prentari og prentsmiðjueigandi f næi hálfa
Bld. — Gisii hefur ort og skrifað fyrir biöð og
tlmarit Vestur-íslendinga. — Tvær ljóðaoækur sin-
ar hefur hann gefið út, Farfugla og Fardaga. —
Pegar Gisli lét af prentstörfum, 'erðist hann rit-
Stjóri Timarits Þjóðræknifélagsins i Winnipeg og
er það enn.
Þegar þið veljið jólabókina í ár þá gleymið ekki Haugaeldum, bók
Gísla Jónssonar, ritstjóra frá Háreksstöðum í Jökuldalsheiði uú
ritstjóra í Winnipeg í Canada. í bókinni birtist fjöldi ævisagna um
samtíðarmenn lífs og liðna, austan hafs og vestan, auk margra
merkra ritgerða og þátta. Má þar fyrst og fremst nefna þátt Gísla
um æskuheimili sitt á Háreksstöðum, sem mun jafnan verða tal-
inn hin merkasta heimild um líf liðinna kynslóða í einni afskekkt-
ustu byggð á íslandi.
Stefán Einarsson prófessor í Baltimore, skrifar æviágrip Gísla í
ýtarlegri ritgerð.
Bókin HAUGAELDAR er 416 bls., prentuð á myndapappír og
prýdd 93 myndum og teikningum Verðið er þó aðeins 273JO með
söluskatti, og því engin jólabók svo ódýr, miðað við stærð og frá-
gang. Þetta er tilvalin jólabók hinna vandlátu.
RÓF*t'tTCÍFA1V
Afgreiðsla I Reykjavík á Grundarstíg 11, sími 15392.
k loirevn
SIGRÍÐUR OG BIRGIR THORLACIUS:
Ferðabók
Á laugardaginn kom á markaðinn bók eftir Sigríði og Birgi Thorla-
cius. Eru það 18 þættir úr ferðalögum þeirra hjóna víðs vegar um
heiminn, enda hafa þau ferðazt meira en flestir tslendingar, um
fjórar álfur heims og hafa því frá mörgu og skemmtilegu að segja.
Má nefna ferðaþætti frá Suður-Rússlandi, Indlandi, Spáni, Hawaii-
eyjum, Utah og svo framvegis. Sigríður og Birgir Thorlacius eru
landskunn fyrir erindi í útvarpi og greinar í blöðum og tímaritum,
enda bæði ritfær í bezta lagi. Ferðabók þeirra er á þriðja hundrað
blaðsíður, prýdd 37 glæsilegra mynda úr ferðalögum þeirra hjóna
og útgáfan öll sin vandaðasta Þetta verður vafalítið ein skemmti-
legasta og hugðnæmasta bókin, sem kemur út í ár, og því tilvalin
jólagjöf.
EFNI BÓKARINNAR: Á spáni. - Dans við dauðann. — Svipmyndir úr Indlands-
ferð. Gönguferð um Deihi. - Kjör indverskra kvenna. — G6ði» gestgjafar.
Feneyjar. — Vordagar og vorhur-ur í Uzbekistan (Suður-Rússlandi) Drottn-
ing liðinna daga — Hawaii Hjá Indíánum. — Vika í Washington. — Fjalibúar
I Kentucky. — Barrskógaskóli I höfuðborg Mormónaríkis Eyðlmerkur og
undralönd. — Á búgarði í Califomiu. — Á humarveiðum f Maine.
r^wr # w'TrvG * tv 4 v f?p?> 4 *1
Afgreiðsla í Reykjavík á Grundarstíg 11, sími 15392.
Birgir rhorl-'eius rg Nehru forsætisráðht-ra
Indlands, ræðast við.