Vísir - 29.12.1962, Side 1

Vísir - 29.12.1962, Side 1
■' 1 * VÍSIR 52. árg. — Laugardagur 29. desember 1962. — 293. tbl. SA TA fundur um Loft leiðumúlið / Purís ana 7. og 8. janúar. Á (undi þessum munu mæta fulltrúar allra þeirra 16 flugfélaga sem eru innan IATA, sem hafa á- skiliö sér rétt til a8 taka lægri fargjöld eins og Loftleiðir fyrir ferðir með skrúfuknúnum flug- vélum. Á fundi þessum munu mæta margír fremstu forystumenn SAS, svo sem forstjóri þess, Carl Nilsson, og maður sá sem stjórnar Atlantshafsflugferðum félagsins. Verður þá slðasta tækifæri fyrir SAS að ákveða það hvort það tekur upp harða samkeppni við Loftleiðir með lágum fargjöldum. Varla er þó búizt við að slíkt leysi vanda- mál þessa stóra flugfélggs, þar sem búast má við að með því dragi úr farþegaflutningum með stóru þotunum. Það hefur nú verið ákveðið að IATA-fundurinn sem á að fjalla um deilu SAS og Loft- leiða skuli haldinn í París dag- Nú flykkjast unglingamir — og reyndar þeir fullorðnu líka -r- til kaupa á flugeldum fvrír gftpilárskyþlj. I fv^fa skutu Reykvíkingar eldum fyrir meir er) milljón króna til Iofts á þessu eina kvöidi. Hver veröur upphæöin f ár? MIKIÐ ÚRVAL AF FLUGELDUM Fyrir þessi áramót hafa verzl-1 sögunni, enda er hvort tveggja anir á boðstólum meira úrval flug- bannað með öllu, öllum til mikillar elda, blysa og skrautelda alls konar ánægju. Þess í stað fást nú ókjörin en nokkru sinni fyrr. Kínverjar og öll af alls kyns kostulegum hlut- sprengjur eru nú sem betur fer úr I um, sem gleðja augað án þess að 55 baaaslys í ár Samkvæmt upplýsingum frá tvö dauðaslys urðu á vinnustað og Slysavamafélaginu f gær, hafa orð ið samtals 55 dauðaslys á íslandi á árinu sem nú er að kveðja. Þetta er 5 banaslysum færra heldur en á árinu sem leið. Sjóslysin eða drukknanir eru flest, samtals 35. Þau skiptast þannig niður að 17 hafa farizt með . skipum, 8 féllu útbyrðis og 10 drukknað við land, eða í ám og vötnum. Banaslys af völdum umferðar á landi urðu 11 talsins, þar af 7 sem urðu fyrir bifreiðum, 2 sem slös- uðust til bana í bifreiðum og loks tvö önnur banaslys í sambandi við bifreiðaakstur. Flugslys urðu einum manni að bana, þrír létust af völdum bruna, loks 3 banaslys af öðrum ástæðum þ. e. af völdum hraps, byltu og þess háttar. meiða eyrað eða taugarnar. Er þetta ánægjuleg þróun. Verzlunarstjórinn í Vesturröst skýrði fréttamanni Vísis frá þv£ í morgun, að meiri sala væri nú £ flugeldum og skrauteldum en nokkru sinni fyrr, og taldi hann, að það stafaði fyrst og fremst af auk- inni fjölbreytni bæði af innlendum flugeldum og innfluttum skrauteld- um og gamantækjum af ýmsu tagi, sem mest eru flutt frá Bretlandi, Spáni og Þýzkalandi. Virtist fólk nota sér þetta aukna úrval, verzl- aði fyrr en áður, enda væri litill tími til þess á gamlársdag að út- skýra fyrir fólki, hvað hinir ýmsu hlutir gerðu, þá væri annriki orðið svo mikið og sala mest f flugeldum. NÆSTI ÚTGÁFUDAGUR Vísir kemur næst út miðvikudaginn 2. janúar Smyglaðar sprengjur í umferð Samkvæmt upplýsingum frá Iög- reglunni í Reykjavík er allmikið um það að smyglaðar sprengjur hafi fundizt i fórum unglinga, sem hafa verið að sprengja þær á göt- um úti. Sérstaklega bar mikið á þessu laugardagskvöldið fyrir jól, en þá voru piltar á ýmsum aldri með þvi líkar sprengjur í miðbænum og voru að sprengja þær þar. Lögregl an náði i heilan hóp þessara pilta, sumir um eða innan við fermingar- aldur, aðrir eldri, jafnvel komnir yfir tvítugt. Piltarnir voru fluttir í lögreglustöðina, þar sem birgðirn ar voru teknar af þeim, að því búnu var þeim sleppt, en sprengj- urnar hins vegar gerðar upptækar. Tómas Einarsson rannsóknarlög- reglumaður tjáði Vísi að í fyrradag hafi lögreglan tekið pilt sem var að selja svokailaðar Camel-hvell- sprengjur hér i borg. Við yfir- heyrslu játaði pilturinn að hafa keypt 11 karton, eða 330 stykki af þessum sprengjum, af manni, sem hann kvaðst ekki vita nein deili á, en keypt þær af honum í húsasundi. Hann sagðist hafa borg- að 50 krónur fyrir hvern pakka, en Frh. á bls. 5. Geysimiklir markaðir töpuðust Róðinn lektor Nýlega var í fyrsta sinn aug- lýst laus til umsóknar staða lektors í íslenzku við Freie Universitas £ Vestur-Berlín. — Umsækjendur voru tveir, Árni Björnsson og Kristján Árna- son, og var sá fyrrnefndi val- inn á hinum þýzka háskóla. FLAKAÐA SÍLDIN ER FRAMTÍÐIN „Við höfum aldrei haft eins mikla möguleika á að selja og kynna Suðurlandssíldina á nýj- um mörkuðum og i haust, svo sem í Englandi, Hollandi, Belg- íu og Frakklandi, ef við hefðum getað boðið hana er hún var bezt til söltunar. En verkfallið á síldveiðiflotanum kom í veg fyrir að unnt væri að hagnýta þessa dýrmætu möguleika og olli það óbætanlegu tjóni“. — Þannig fórust Jóni L. Þórðar- syni í Síldarútvegsnefnd orð við Vísi í gærkvöldi. VONIR UM NÝJAR SÖLUR Jón sagði að nú væri að verða búið að salta upp í gerða samninga um söiu á saltsíld, en Síldarútvegsnefnd ynni sleitu- laust að því að reyna að selja meira. Vonir stæðu til þess, eri það væri engin vissa, að unnt yrði að selja meira til Sovét- ríkjanna og Rúmeníu, og fleiri landa. VANTAR MIKIÐ AF FLAKAÐRI SÍLD Tekizt höfðu fyrirframsölur á 25 þús. tunnum af flakaðri síld til Vestur-Þýzkalands og 8 þús- und tunnum af flakaðri síld til Ameríku. En á sama tíma og heita má að búið sé að verka upp í salt síldarsamninga, vant ar mikið á að verkað hafi verið upp í samninga um flökuðu síldina. Hingað til hefir meg- ináherzla verið lögð á að verka saltsíld og frosna síld. HÚN ER ÞÓ FRAMTÍÐIN. Jón Þórðarson sagði að þetta væri mjög slæmt með flökuðu síldina, því að mesta framtið væri einmitt í sölu hennar, t.d. til Vestur-Þýzkalands og Ame- ríku. Auk þess væri síldarsalt- endur hér búnir að kaupa dýr- ar flökunarvélar og öll efni stæðu til þess að við hagnýtt- um þessa verkunaraðferð.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.