Vísir - 29.12.1962, Page 1
■' 1
*
VÍSIR
52. árg. — Laugardagur 29. desember 1962. — 293. tbl.
SA TA fundur um Loft
leiðumúlið / Purís
ana 7. og 8. janúar. Á (undi
þessum munu mæta fulltrúar
allra þeirra 16 flugfélaga sem
eru innan IATA, sem hafa á-
skiliö sér rétt til a8 taka lægri
fargjöld eins og Loftleiðir fyrir
ferðir með skrúfuknúnum flug-
vélum.
Á fundi þessum munu mæta
margír fremstu forystumenn
SAS, svo sem forstjóri þess,
Carl Nilsson, og maður sá sem
stjórnar Atlantshafsflugferðum
félagsins. Verður þá slðasta
tækifæri fyrir SAS að ákveða
það hvort það tekur upp harða
samkeppni við Loftleiðir með
lágum fargjöldum. Varla er þó
búizt við að slíkt leysi vanda-
mál þessa stóra flugfélggs, þar
sem búast má við að með því
dragi úr farþegaflutningum
með stóru þotunum.
Það hefur nú verið ákveðið
að IATA-fundurinn sem á að
fjalla um deilu SAS og Loft-
leiða skuli haldinn í París dag-
Nú flykkjast unglingamir — og reyndar þeir fullorðnu líka -r- til kaupa á flugeldum fvrír gftpilárskyþlj. I fv^fa skutu Reykvíkingar eldum
fyrir meir er) milljón króna til Iofts á þessu eina kvöidi. Hver veröur upphæöin f ár?
MIKIÐ ÚRVAL AF FLUGELDUM
Fyrir þessi áramót hafa verzl-1 sögunni, enda er hvort tveggja
anir á boðstólum meira úrval flug- bannað með öllu, öllum til mikillar
elda, blysa og skrautelda alls konar ánægju. Þess í stað fást nú ókjörin
en nokkru sinni fyrr. Kínverjar og öll af alls kyns kostulegum hlut-
sprengjur eru nú sem betur fer úr I um, sem gleðja augað án þess að
55 baaaslys í ár
Samkvæmt upplýsingum frá tvö dauðaslys urðu á vinnustað og
Slysavamafélaginu f gær, hafa orð
ið samtals 55 dauðaslys á íslandi
á árinu sem nú er að kveðja. Þetta
er 5 banaslysum færra heldur en á
árinu sem leið.
Sjóslysin eða drukknanir eru
flest, samtals 35. Þau skiptast
þannig niður að 17 hafa farizt með
. skipum, 8 féllu útbyrðis og 10
drukknað við land, eða í ám og
vötnum.
Banaslys af völdum umferðar á
landi urðu 11 talsins, þar af 7 sem
urðu fyrir bifreiðum, 2 sem slös-
uðust til bana í bifreiðum og loks
tvö önnur banaslys í sambandi við
bifreiðaakstur.
Flugslys urðu einum manni að
bana, þrír létust af völdum bruna,
loks 3 banaslys af öðrum ástæðum
þ. e. af völdum hraps, byltu og þess
háttar.
meiða eyrað eða taugarnar. Er
þetta ánægjuleg þróun.
Verzlunarstjórinn í Vesturröst
skýrði fréttamanni Vísis frá þv£ í
morgun, að meiri sala væri nú £
flugeldum og skrauteldum en
nokkru sinni fyrr, og taldi hann, að
það stafaði fyrst og fremst af auk-
inni fjölbreytni bæði af innlendum
flugeldum og innfluttum skrauteld-
um og gamantækjum af ýmsu tagi,
sem mest eru flutt frá Bretlandi,
Spáni og Þýzkalandi. Virtist fólk
nota sér þetta aukna úrval, verzl-
aði fyrr en áður, enda væri litill
tími til þess á gamlársdag að út-
skýra fyrir fólki, hvað hinir ýmsu
hlutir gerðu, þá væri annriki orðið
svo mikið og sala mest f flugeldum.
NÆSTI
ÚTGÁFUDAGUR
Vísir kemur næst út
miðvikudaginn 2. janúar
Smyglaðar
sprengjur
í umferð
Samkvæmt upplýsingum frá Iög-
reglunni í Reykjavík er allmikið
um það að smyglaðar sprengjur
hafi fundizt i fórum unglinga, sem
hafa verið að sprengja þær á göt-
um úti.
Sérstaklega bar mikið á þessu
laugardagskvöldið fyrir jól, en þá
voru piltar á ýmsum aldri með þvi
líkar sprengjur í miðbænum og
voru að sprengja þær þar. Lögregl
an náði i heilan hóp þessara pilta,
sumir um eða innan við fermingar-
aldur, aðrir eldri, jafnvel komnir
yfir tvítugt. Piltarnir voru fluttir
í lögreglustöðina, þar sem birgðirn
ar voru teknar af þeim, að því
búnu var þeim sleppt, en sprengj-
urnar hins vegar gerðar upptækar.
Tómas Einarsson rannsóknarlög-
reglumaður tjáði Vísi að í fyrradag
hafi lögreglan tekið pilt sem var
að selja svokailaðar Camel-hvell-
sprengjur hér i borg. Við yfir-
heyrslu játaði pilturinn að hafa
keypt 11 karton, eða 330 stykki
af þessum sprengjum, af manni,
sem hann kvaðst ekki vita nein
deili á, en keypt þær af honum í
húsasundi. Hann sagðist hafa borg-
að 50 krónur fyrir hvern pakka, en
Frh. á bls. 5.
Geysimiklir markaðir töpuðust
Róðinn lektor
Nýlega var í fyrsta sinn aug-
lýst laus til umsóknar staða
lektors í íslenzku við Freie
Universitas £ Vestur-Berlín. —
Umsækjendur voru tveir, Árni
Björnsson og Kristján Árna-
son, og var sá fyrrnefndi val-
inn á hinum þýzka háskóla.
FLAKAÐA SÍLDIN ER FRAMTÍÐIN
„Við höfum aldrei haft eins
mikla möguleika á að selja og
kynna Suðurlandssíldina á nýj-
um mörkuðum og i haust, svo
sem í Englandi, Hollandi, Belg-
íu og Frakklandi, ef við hefðum
getað boðið hana er hún var
bezt til söltunar. En verkfallið
á síldveiðiflotanum kom í veg
fyrir að unnt væri að hagnýta
þessa dýrmætu möguleika og
olli það óbætanlegu tjóni“. —
Þannig fórust Jóni L. Þórðar-
syni í Síldarútvegsnefnd orð við
Vísi í gærkvöldi.
VONIR UM NÝJAR
SÖLUR
Jón sagði að nú væri að
verða búið að salta upp í gerða
samninga um söiu á saltsíld, en
Síldarútvegsnefnd ynni sleitu-
laust að því að reyna að selja
meira. Vonir stæðu til þess, eri
það væri engin vissa, að unnt
yrði að selja meira til Sovét-
ríkjanna og Rúmeníu, og fleiri
landa.
VANTAR MIKIÐ AF
FLAKAÐRI SÍLD
Tekizt höfðu fyrirframsölur á
25 þús. tunnum af flakaðri síld
til Vestur-Þýzkalands og 8 þús-
und tunnum af flakaðri síld til
Ameríku. En á sama tíma og
heita má að búið sé að verka
upp í salt síldarsamninga, vant
ar mikið á að verkað hafi verið
upp í samninga um flökuðu
síldina. Hingað til hefir meg-
ináherzla verið lögð á að verka
saltsíld og frosna síld.
HÚN ER ÞÓ
FRAMTÍÐIN.
Jón Þórðarson sagði að þetta
væri mjög slæmt með flökuðu
síldina, því að mesta framtið
væri einmitt í sölu hennar, t.d.
til Vestur-Þýzkalands og Ame-
ríku. Auk þess væri síldarsalt-
endur hér búnir að kaupa dýr-
ar flökunarvélar og öll efni
stæðu til þess að við hagnýtt-
um þessa verkunaraðferð.