Vísir - 29.12.1962, Blaðsíða 3
VlSIR . Laugardag... 22. d''"'mber 1962.
3
LJÓSASKREYTINGAR í REYKJAVÍK
í sjálfu dimmasta skammdeg-
inu gerast þau undur í borg-
inni og öðrum byggðum lands-
ins, að þau verða öll upplýst á
sjálfri jólahátíðinni. 1 upphafi
er talið að jól hafi verið haldin
tii að fagna því, að sólin snýr
við á braut sinni og tekur að
hækka á ný á himninum. Jólin
hafa þannig þó þau séu í
skammdeginu, ætíð verið há-
tíð ijóssins, bæði í óeiginlegri
og eiginlegri merkingu.
Á jóiunum nú í ár er ljósa-
dýrðin i Reykjavik meiri en
nokkru sinni fyrr. Er mjög fag-
urt að sjá ljósaskreytinguna i
ýmsum hverfum bæjarins, auð-
vitað sérstaklega i miðbænum,
en einnig í íbúðahverfunum,
þar , sá.siður er nú orðinn
almcnmn\,á<j festa ljósaseriur í
tré eða úti á svalir.
Einna skrautlegust er þessi
lýsing inni i Álfheimum, þar
sem lýsingin minnir raunveru-
lega á heima álfa og furðu-
verka.
Myndsjáin birtir í dag nokkr
ar myndir af Ijósaskreytingum
í Reykjavík. Efst er mynd af
Elliheimilinu, jólatré og skreyt-
ingu, en hér fyrir neðan eru
svo myndir af jólatrénu á Aust-
urvelli og skreytingu Hótel
Borgar i baksýn, þar sem skráð
er með ljósaletri Gleðileg jól.
Loks kemur mynd af lýsingu
á háhýsinu mikla að Sólheim-
um 23, sem vakið hefur mikla
athygli, enda sést það víðs veg
ar um bæinn og nágrannasveit
irnar, þar sem hæð hússins yf-
ir sjávarmál er um 80 metrar.