Vísir - 11.02.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 11.02.1963, Blaðsíða 5
VÍSIR . Mánudagur 11. febrúar 1963. 5 Landnemar — Framhald aí hls I ræna víkinga sem hafi verið á Is- landi og á norðurhluta Bretlands- eyja og austræna víkinga sem hefðu ríkt í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Þá vakti próf. Jón athygli á einu fyrirbæri, að hauskúpur sömu gerðar og á íslandi hefðu fundizt á Jamtalandi í Svíþjóð, en svo ein kennilega vill til að heimildir eru fyrir því að þangað flýði fólk frá Þrændalögum um sama leyti og menn flýðu frá Vestur-Noregi til fslands. Vekur þetta spurningar um það, hvort kynþátturinn sem flýði Noreg á dögum Haralds hár- fagra hafi ekki verið annar en sá er rak flóttann. Prófessorinn játaði þó að þetta væri enn ekki nógu lióst, verið gæti að hauskúpulagið hefði breytzt eftir flutning í ann- að land og ennfremur væru haus- kúpufundir í Noregi ekki nógu miklir. í umræðunum hélt Skúli Þórðar son fram kenningum Barða Guð- mundssonar ,sem einnig fjalla um það, að íslendingar séu önnur þjóð en Norðmenn, en byggja á öðrum atriðum, sem sé menningarsöguleg um. Þeim staðhæfingum mótmælti hins vegar Björn Þorsteinsson og sagði að þær byggðust á litlum sem engum rökum. Þótt engri niðurstöðu yrði auð- vitað náð í þessum umræðum, sýndu þær, að gagnrýnin fer vax- andi á því að fornrit okkar segi alla söguna um uppruna íslend- inga. Söngfólkid — Framhald af bls. 1. Dómkirkjunni f gærmorgun, því að þar voru einnig staddir 13 bandarískir söngvarar, sem eru á tónleikaferð milli herstöðva Bandaríkjamanna. Þetta er biandaður kór, allt ungt háskóla fðlk, og buðust þeir til að syngja nokkur lög eftir messu í Dómkirkjunni. Stjórnandinn var Dr. David MiIIer, sem einnig er prestur. Ungu söngvararnir eru með- limir í frægum, blönduðum kór frá Wittenberg-háskólanum í Springfield, Ohio, og hafa þeir verið á ferð undanfarið um Ný- fundnaland, Labrador og allt! norður til Thule á Grænlandi. Sungu þeir þrjú andleg lög eftir ntessuna af mikilli snilld og vöktu hrifningu kirkjugesta, sem höfðu alls ekki búizt við þessum fögru tónleikum, enda hafði ekkert verið auglýst um þ... Og þá er ekki vafamál, að Dr. Páll ísólfsson hefur vandað sig jafn- vel enn meira en hann er vanur, með starfsbróðirinn við hlið sér' — svo að kirkjugestir fengu þarna alveg óvænta heila tón- listarhátíð. Lídó — Framhald ai bls 16 veitingar, ef svo ber undir. En ef þessir staðir eru lokaðir, þá streyma unglingarnir í Lídó, af af því að þá er ekki í annað hús að venda. Við teljum ekki, að fullreynt sé, hvort hægt er að reka hér áfengislausan skemmtistað fyr- ir unglinga, sagði Konráð að endingu, fyrr en skemmtana- skatturinn hefir verið felldur niður Menn hafá góð orð um það, en við getum ekki beðið eftir því til eilífðamóns, að á- kvörðun verði tekin. Það getur vel verið, að yfirvöldin neyði okkur til að hætta þessari til- raun ,en það teldi ég til ævar- andi skammar fyrir Reykjavík — að ekki skuli hægt að reka einn skemmtistað fyrir ungl- inga í 80 þús, manna borg. Fleiri munu taka undir það, að slíkt mundi verða til ævar- andi háðungar. Kristjón — Framhald af bls. 16. taka laun í 21. flokki, og verða mánaðarlaun hans 12.350 krónur. (Byrjunarlaun 11.750 krónur.) í dag hefir Kristján 9.002 krónur í mánaðar- laun. Laun hans eiga því að hækka um 3.348 krón ur. Það er í augum Kristjáns „smánarboð“, og þau laun, á 13. þús- und krónur telur hann vafalaust ekki í sam- ræmi við menntun og á-1 byrgð þá sem deildar- stjórastarfið krefst. Gaman væri að vita hvaða laun Kristján Thorlacíus telur sér og hæfileikum sínum sam- boðin. SauÍfjáteigendur / Rvík j vilja giria borgarlandið at Félag sauðfjáreigenda í Reykjavík vilj að bæjar land Reykjavíkur verði girt af, þannig að öflug girðing verði sett upp frá Grafarvogi eftir línu ofan við skógræktargirð inguna ofan við Rauða- vatn um Rauðhóla og í girðinguna um friðland Reykjavíkur í Heið- mörk. Þetta var eitt af mörgu, sem kom fram á fundi sem stjórn félags sauðfjáreigenda átti með fréttamönnum á laugardaginn. Stjórnarmenn sögðu, að með þessu yrði girt fyrir árekstra. Þeir tóku og fram, að jafn- framt þessu ætluðust þeir til að þeir menn sem vildu stunda sauðfjárrækt i Reykjavik fengju að hafa fé sitt £ húsum innan þessarar girðingar. ATHAFNASVÆÐI. Þá sögðu þeir að félagið vantaði stærra athafnasvæði og töldu þeir að bæjaryfirvöld- in ættu að veita félaginu að- stöðu með tilliti til þess, að það hefði unnið gott starf, staðið undir skuldbindingum bæjarins vegna afréttar hans og m. a. lagt í kostnað við að bera á af- réttinn. Þeir sögðu að það hefði komið sér mjög vel, að Reykja- víkurborg veitti félaginu at- hafnasvæði við Breiðholt og hafa verið reist þar fjárhús og hlöður. En í framtíðinni, sagði einn af stjórnarmönnum, að þeir hefðu augastað á að fá at- hafnasvæði við Korpúlfsstaði. 142 FÉLAGSMENN. Þeir stjórnarmenn gerðu nokkra grein fyrir starfsemi sauðfjáreigenda í Reykjavík. Þeir sögðu, að svo væri um hnútana búið að öruggt væri að féð í borginni hefði nóg fóð- ur og viðunandi hús. Þeir sögðu að í félaginu væru 142 félags- menn sem ættu samtals um 3700 fjár. Þar af væru þó tveir stórir fjárbændur á jörðunum Gufunesi og Reynisvatni. Þeg- ar þeir væru taldir frá væri al- gengasta sauðfjáreign hvers fé- lagsmanns um 10 kindur. Þann ig er vart tun það að ræða að þessi sauðfjárrækt sé rekin með miklum hagnaði, því að fyrirhöfn og kostnaður við hana væri mikill. Þó töldu þeir að um 50% af félagsmönnum væru rosknir menn, sem komn- ir væru á ellistyrk og stunduðu sauðfjárrækt til að drýgja tekj- ur sínar. Þar að auki væri all stór hópur manna sem stund- aði fjárrækt sem hreint hobbí, gat einn stjórnarmanna þess, að hann sjálfur hefði 10 kindur í stórum bílskúr sínum og væri það honum eins mikil ánægjaað standa I gegningum og fyrir aðra að fara á bíó. Þeir stjórnarmenn í félagi sauðfjáreigenda lögðu mikla á- herzlu á það, að bannið við því að flytja sauðfé í jeppa- kerrum kæmi sér ákaflega illa fyrir þá og yrði til þess að stórauka kostnaðinn. Vildu þeir að það yrði afnumið, þar sem það væri öruggt að ekki færi verr um féð í jeppakerrum en á vörubílum. Töldu þeir að starf dýraverndunarfélaga beindist í ranga átt, þegar þau berðust gegn flutningi á jeppakerrum. Ýmislegt fleira kom fram í samtalinu svo sem það að hóp ur sauðfjáreigenda I Reykjavík keypti nýlega land að Hvassa- hrauni til beitar og heyskapar. Einnig hafa þeir fengið land til afnota við Kolviðarhól. Hafa þeir marga útkróka til að ná sér £ fóður. Slysið — Framhald af bls. 16. tvær stúlkur.og ók ápnar Sigurgeir Gunnarsson að Hann hlaut höfuðhögg og hafa fengið snert af heilahristing. Við hlið hans í framsæti sat Hrafn- hildur Gfsladóttir Baugsvegi 5. Hún kastaðist út úr bilnum og slengdist góðan spöl lengra heldur en billinn komst sjálfur lengst. nafni. mun Hrafnhildur meiddist mikið, m. a. i baki, á höfði og víðar. Stúlkan sem sem sat í aftursæti hlaut mrnni meíðsli og vár rólfær á eftir, en| pilturinn sem sat við hlið hennarj virðist hafa verið sá eini sem eikk- j ert hafði meiðzt, a. m. k. kvaðst hann ekki kenna sér neins meins Lögregla og slökkvilið komu á staðinn og voru bilverjarnir, allir fjórir, fluttir í slysavarðstofuna til athugunar og aðgerðar. Laugardalur — Framhald af bls. 1. aðstöðu, sem 1 félagið’* hafði í Laugardal. Það er í athugun hvert flytja megi kindur og kýr í Laugardalnum. Einnig kann að verða nauðsyn legt að rífa nokkor hús í Laugar dalnum. Til að byrja með er aðeins talið nauðeynlegt að rífa Gestkvæmt íhöfuðborginni — Þetta gengur allt prýði- Iega, sagði Gunnar Óskarsson, sem hefur yfirumsjón með mót- töku gesta á Hótel Sögu, þeg- ar Vísir átti viðtal við hann i morgun. „Það er nærri fullt eins og er og áreiðanlega mikil aukning framundan — þegar upppantað nokkuð af tímabil- inu £ sumar og alltaf að berast nýjar pantanir. Við lendum bráðum f vandræðum með að koma gestunum fyrir, og þó verður sjöunda hæðin væntan- iega tekin í notkun fyrir júní- byrjun". „Ætli hún verði ekki mjög eftirsótt með þetta stórkostlega útsýni" „Eða þá svalirnar í kring! Flest öll herbergin liggja að þeim, og þar getur fólk legið í sólbaði, þegar vel viðrar, en horft yfir borgina og fjöllin í kring þess á milli“. „Er ekki gaman að vinna á svona glæsilegu hóteli?" „Jú, sannarlega. Maður þarf ekki að skammast sin fyrir að sýna gestunum hað og við fá um oft vinsamleg bakkarbréí frá fólki sem hefur dvalizt hjá okkur“. „Útlendingum líka? íslending ar eru ekki aiira þjóða dugleg- astir við bréfaskriftir, að Jwí er pagt er“. „Já, aðallega útlendinguim. En flestir gestir okkar eru út- lendingar". „Hvernig er með brúðhjónin? Er það orðinn vinsæll siður að eyða hveitibrauðsdögunum á Hótel Sögu?“ „Já, við fáum mikið af brúð- hjónum. Svo er oft að fólk utan af Iandi kemur hingað um stór afmæli og dvelst hér tvo til þrjá daga eða lengur.“ „Eigið þið ekki eftir að full- gera eitthvað fleira en sjöundu hæðina?“ „Jú, það stendur t' að stækka forsalinn mikið og koma þar upp mörgum verzlunum: blóma búð, minjagripasölu og ýmsu öðru. Það verður innangengt í þær úr forsal hótelsins og svo auðvitað af götunni. Einnig verð ur sett upp bankaútibú og ýmis legt annað, sem ekki er enn búið að ákveða til fullnustu. 1 kjallaranum verður sett upp finnsk baðstofa fsaunaV aufu- bað með n>iddc,fr>fu ennfremiu hárareiðslustofa. rakarartofa. bandsnvrting. fómoyrtins op sitthvað fleira. Við viljum gera allt, sem unnt er, til þess að gestum okkar geti liðið sem bezt hjá okkur“. Það verður víst engin hætta á öðru. Annars virðist óvenju gestkvæmt í Reykjavík um þess ar mundir. Það er troðfrallt bæði á Hótel Borg og City Hotel, og pantanir liggja fyrir £Últ fram á haust. Þetta fer að veiiða eins og £ helztu stórborgu'oi, þar sem fólk þarf að panta herbergi með margra mánaða fyrirvara. tvo eða þrjá kofa, en með tíman um er gert ráð fyrir að flest ef ekki öll þau hús, sem ekki jjseru tekin með í skijjulaginu, • verði rifin eða flutt' biirtu. Sennilegt er að borgarsjóður verði að kaupa eitthvað af eign um í Laugardal. Hins vegar er að nokkur hluti búskapar í Laugardalnum rekinn með bráða birgðarleyfi borgaryfirvaldanna. íþróttaráð mun á sinum tima fjalla um það hvaða hús verði nauðsynlegt að fjarlægja fyrst, og gera tillögur um það til borg aryfirvaldanna. Ökuníðingur Seint í nótt varð lögreglan í Reykjavík vör við mann, sem ók á ofsahraða um götur borgarinn- ar. Lögreglan veitti manninum eftir för unz hann gafst upp og nam staðar. Kom þá í ljós að ökumaö- urinn var réttindalaus. Ennfremur tók lögreglan tvö ölvaða ökumenn við akstur sl. sólarhring. Ég þakka innilega heimsóknum, gjöfum mfnu. Ég er innilega þ öllum þeim, se mminntust min með og hlýjum kveðjum á áttræðisafmæli akklátur ykkur öllum. Ólafur Ólafsson. Maðurinn minn og ltaðir okkar MEKÍNÓ BJÖRNSSON íkaupmaður verður L.rðsunginn frá Ðómkirkjunni 12. febrúar kl. 1,30 Dagmar Þorkeisdóttir og böm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.