Vísir - 21.02.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 21.02.1963, Blaðsíða 3
VfSIR . Fimmtudagur 21. febrúar 1963, 3 Við erum staddir i leikfimi- tíma í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar. Kennarinn hinn kunni iþróttamaður Karl Guðmunds- son, gefur snöggar, ákvcðnar skipanir sem er hlýtt með hraða og öryggi. Allt ber vott um þjálfun og gott samstarf. Strákamir þenja sig á harða- hlaupum um salinn þveran og endilangan, og setjast svo sam- kvæmt skipun á gólfið og gera 'ú'HZ BnJOIÓ OB KBSCj i fistnjriwTri I yo oiiósv i ikgni>í/í þar ýmsar æfingar sem fá okk- ur til þess að svitna þó að við séum aðeins áhorfendur. Hug- urinn leitar til baka til þess þegar við vorum sjálfir nem- endur þessa skóla. Og þá mun- um við bezt eftir hvíthærða manninum ógurlega sem borð- aði eitt Ijón til morgunverðar tvö um hádegið, og skolaði þeim niður með nitroglycerini. Þegar hann þrumaði skipanir sínar var eins og hvirfilbylur færi um salinn. „Og svo upp“, segir Karl, og strákarnir svifa upp í handstöðu. Örfáir detta niður aftur en þeim tekst öllum í næstu tilraun. Allir geta stað- ið á höndum segir Karl. Við roðnum. Eftir margvíslegar æf- ingar sem miða að því að styrkja og mýkja líkamann, cr> dýnurnar teknar fram og strák arnir skipa sér i cinfaldar rað- ir fyrir framan þær. Karl hefur þjálfað þá upp í að vinna sjálf stætt, svo að hann gengur róleg ur á meðal þeirra og horfir á. Á stöku stað kemur athuga- semd eins og „rétta úr“, ef pilturinn er í aðhiaupinu, en RÉTTA ÚR, ef hann er í stökk- inu. Leikfimi er mjög hollt „fag“ og líka einn skemmtil3gasli tíminn í skólanum fyrir utan frímínúturnar. Efsta mynd: Einn og tveir og hoppa. Karl sést á milli, einnig hoppandi. Miðmynd: Ekki sæmir fjórðu bekkingum annað en standa á höndum (K. G.) Neðst t. v.: Svifstökk. Fæt- umir eru einhversstaðar á eftir. Neðst t. h.: Bolvinda. í LEIKFIMITÍMA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.