Vísir - 17.04.1963, Blaðsíða 3
VISIR . Miðvikudagur 17. aprfl 1963.
3
f
mmm
!i S, "^3' *Itu
u »‘»■8*»!«^ SO.»r
di'Bteiueiel m-
, iJkimmw iMmmf N|¥*C
»•1)1 lnwhlf'w #}lrtiMK*HWiiHnWM’
húi'it"’ n>mn
k'il’iiiiíiiiMiÍÍiii '.jjl
ii“!iiiiiiiiiiniij:
r':m -'iiii.H''
HQHuHfhiii 'IhmMíiöh
U' snmK^ rti*'
M !H|j!!! iii I ii:
rmnii Bwniiuiuiimi ttl
!H!jl!!!!;(ÍHtimjr ij
i'iiiiiwíiirmftwjii'
i'rtiH • • • h
wa iUi'gn tyyfc
i!=i SH'Hll ii:P!,tt::iflt1i!!
JtO'O
Mikilhæf leikkona fallin í valinn
Fregnin um flugslysið mikla
“við Osló, er Hrímfaxi Flugfélags
ins fórst f lendingu á páskadags
morgun, vakti harm víða —
miklu víðar en á Islandi.
Á mánudaginn, annan í pásk-
um ,birtu dönsku blöðin stórar
forsíðumyndir og fregnir af flug
slysinu. Gátu blöðin um það í
fyrirsögnum sínum, að Anna
Borg Reumert hefði látið lífið,
en hún var þjóðkunn leikkona
þar í Iandi og ein vinsælasta og
virtasta listakona Danmerkur,
þótt íslenzk væri. Birta dönsku
blöðin myndir af frú Önnu og
Poul Reumert eiginmanni henn-
ar og greinar um leikkonuna.
Hefir fráfall Ieikkonunnar kom
ið sem reiðarslag yfir hinn
danska Iistheim og danskt lcik-
húslff.
Forstjóri Konunglega Ieikhúss
ins, Henning Brönsted, ritar
grein á mánudaginn í Ekstra-
bladet og minnist frú Önnu.
Segir leikhússtjórinn að hún
hafi bæði sem leikkona og leik-
stjóri haft mikla þýðingu fyrir
Konunglega leikhúsið. T. A.
Svendsen leikstjóri við sama
Icikhús segir:
Tvennt var einkennandi fyrir
Önnu Borg og gerði hana að
þeirri cinstæðu manneskju, sem
hún var: kvenlegur hreinleiki
hennar og viljastyrkur hennar.
Hún kom að fyrstu rauninni
eftir sjúkdómlnn — átti að byrja
sem Elísabet í Maríu Stuart.
Það var furðulegt að sjá hvern-
ig hún beitti öllum vilja sínum
og krafti til að yfirvinna sjúk-
dóminn, til að vinna sigur.
Frú Anna Borg kom fyrst
fram á sviði Konunglega leik-
hússins i Kaupmannahöfn 22.
marz 1929 í leikritinu Gálgamað
urinn. Þá lék hún jafnframt í
fyrsta sinn móti Poul Reumert,
sem fjórum árum sfðar varð eig
inmaður hennar. Þau giftust í
október 1932. Eignuðust þau
tvo syni, Stefán og Þorstein.
Þorsteinn dvelst í Kaupmanna-
höfn, en Stefán hefir verið bú-
settur hér á landi í nokkur ár.
Er hann stýrimaður á togaran-
um Pétri Halldórssyni. Frú
Anna var einmitt á leið til Is-
lands til þess að heimsækja
hann og fjölskyldu hans og
ættingja sína hér heima þegar
hið hörmulega flugslys varð.
★
Vísir birtir hér í dag mynd af
forsíðu Ekstrablaðsins, sem út
kom á mánudaginn og segir frá
slysinu. Minni myndin er af frú
Önnu Borg í síðasta hlutverk-
inu sem hún lék í Konunglega
leikhúsinu. Lék hún þar á móti
manni sínum, Poul Reumert í
Blóðbrúðkaupinu eftir Garcia
Lorca.
Þórunn —
Framhald af bls. 16.
arar og nú væri sama sagan
byrjuð í morgun. Hann sagði að
þau hjónin hefðu dvalizt á heim
ili hans til kl. 3 í nótt. Þá hefðu
þau farið til Liverpool og dveld- j
ust nú þar hjá vinafólki Þór-
unnar. í
Jóhann bað Vísi að taka það
fram, að þau hjónin væru ekki (
pólitískir flóttamenn. Þetta
hefði gerzt allt í friði við rúss-
nesk stjórnarvöld.
Askenasi kom til London 5.
marz til að halda konserta þar.
Þórunn kom 2 dögum síð-
ar með son þeirra. Askenasi hélt
3 tónleika í mestu söngleikahöll
um Bretlands í Royal Festival
Hall og Albert Hall. Hann er
nú viðurkenndur heimsfrægur
listamaður og var troðfullt á
öllum tónleikunum. Hafa sjald-
an heyrzt önnur eins fagnaðar-
læti. Þrír tónleikanna voru ein-
leikur með hljómsveit, en einir
voru einkakonsert í Royal Festi-
val Hall. Rituðu ensku blöðin
með mikilli hrifningu um leik j
hans.
í fyrstu höfðu þau brottfarar-'
leyfi frá Rússlandi fram til 1.1
apríl, en það fengu þau fram-
lengt í tíu daga, þar sem Asken
asi var beðinn að leika inn á
hljómplötur, en í millitíðinni
kom leyfi brezka innanríkisráðu
neytisins að leyfa þeim landvist
arleyfi.
Þau hjónin eru óráðin í hvar
þau setjast að, en líklega verð-
ur það í Englandi. Askenasi fer
í hljómleikaför í sumar til Hol-
lands og Svíþjóðar. Hann er
nú svo viðurkenndur og frægur
listamaður, að fjárhagsleg fram-
tíð þeirra á Vesturlöndum má
heita tryggð. Líklegt er að þau
noti tækifærið til að heimsækja
ísland ef nokkurt hlé verður á
hljómleikaför.í sumar.
Útvarpsumræður
í kvöld og
annað kvöld
í kvöld og annað kvöld fara
fram í Alþingi alm. stjórnarum-
ræður, útvarpsumræður. Hefj-
ast umræðurnar kl. 20.00 bæði
kvöldin.
Ræðutími hvers flokks verð-
ur 50 mín. fyrra kvöldið, sem
skiptist í 2 umferðir. Röð flokk
anna verður þá: Framsóknar-
flokkur, Sjálfstæðisflokkur, Al-
þýðubandalag og Alþýðuflokk-
ur.
Siðara kvöldið verður ræðu-
tími hvers flokks einnig 50 mín.
en skiptist þá á 3 umferðir.
Röð flokkanna verður: Alþýðu-
flokkur, Sjálfstæðisflokkur, AI-
þýðubandalag og Framsóknar-
flokkur.
Páll S Pálsson
far.’ ____
Bjrgstaðast æti l*..
Sirni 24200