Vísir - 28.05.1963, Síða 7
V í S IR . Þriðjudagur 28. maí 1963.
HRÆDD m AÐ
MNANLANDSMÁLM
Þess vegna hefur hún
þyriað upp moldviðrinu
um utanríkismólin
Sjálfstæðismenn hafa alltaf
verið þeirrar skoðunar, að
rangt sé að blanda utanríkis-
málunum Lnn í dægurþrasið um
innanlandsmálin, enda eigi lýð-
ræðisflokkamir að hafa þar
samstöðu og deilur að vera ó-
þarfar. Þetta hefur þó farið á
annan veg vegna þess, að Fram
sókn hefur bæði hú og fyrr
reynt að nota utanríkismálin á
hinn ósæmilegasta hátt til at-
kvæðaveiða í kosningum.
Síðustu árásir Tímans og
Eysteins Jónssonar á stjórnar-
flokkana fyrir stefnu þeirra í
utanríkismálum ætti ekki út af
fyrir sig að reynast mikil kosn-
ingabomba, því að hér er ná-
kvæmlega um sömu stefnu að
ræða og Framsókn hefur áður
fylgt, þegar hún hefur verið í
ríkisstjórn og meira að segja
fyrrihluta núverandi kjörtíma-
bils, að því er snertir afstöð-
una til Efnahagsbandalags
Evrópu.
Ástæðan er því ekki sú, að
Framsjkn sé þar raunverulega
á öndverðum meiði við stjórn-
arflokkana, heldur hitt, að með
því að beina umræðum og
blaðskrifum sem mest inn á
þessar brautir verða rökræður
minni um innanlandsmálin, en
þar eru Framsóknarmenn löngu
komnir í sjálfheldu, sem þeir
með engu móti geta losað sig
úr. Allir spádómar þeirra um
samdrátt, atvinnuleysi og móðu
harðindi af völdum stjórnar-
stefnunnar hafa reynzt mark-
leysa. Allt hefur farið þveröfugt
við það, sem þeir sögðu. Það
hlýtur því að vera erfitt fyrir
frambjóðendur Framsóknar-
flokksins að koma nú fram fyr-
ir kjósendur og hlusta þar á
ræðumenn stjórnarflokkanna
reka ofan í þá allar hrakspárn-
ar og sýna fram á það með ó-
yggjandi staðreyndum, að þjóð-
in hefur aldrei búið við betri
lífskjör en nú.
Það getur varla verið væn-
legt til fylgisaukningar, að
segja fólki, sem hefur nóga at-
vinnu og betri fjárráð en
nokkru sinni áður, að hér ríki
atvinnuleysi, fátækt og jafnvel
móðuharðindi. Og það getur
heldur ekki verið vænlegt til
sigurs, að segja fólki, sem vill
vinna og er þakklátt fyrir að
hafa næga atvinnu, að hér sé
verið að innleiða vinnuþrælkun
og það megi ekki vinna svona
mikið.
En til einhvers verður þó að
grípa í málefnafátæktinni, ein-
hverjar kosningasprengjur þarf
að finna upp — og þá er gripið
til utanríkismálanna, reynt að
telja almenningi trú um að ver-
ið sé að stofna frelsi og sjálf-
stæði þjóðarinnar í hættu með
Ein helzta kosningabomba Tímans um landhelgina, birt 19. maí. Hún sprakk eftir þrjá daga.
Eysteinn Jónsson. — Hann er
orðinn að athlægi albjóðar í
Efnahagsbandalagsmálinu. —
Hann hefur verið með fullri að-
ild, aukaaðild og nú síðast við-
skipta. og tollasamningi!
rangri utanríkisstefnu og því
haldið fram, að Ieiðin til þess
að rétt stefna verði upp tekin
sé sú, að fela Framsókn og
kommúnistum stjórnartaumana,
eða taka Framsókn inn í ríkis-
stjórnina.
Sjálfstæðismenn
eru óhræddir.
En úr því að Framsókn hefur
kosið það, að draga utanríkis-
málin inn í kosningabaráttuna,
geta Sjálfstæðismenn óhræddir
varið þá stefnu, sem hefur
tryggt þjóðinni öryggi og hag-
sæld og aukið traust hennar og
virðingu meðal annarra þjóða.
Þetta er einnig sú stefna í ut-
anríkismálum, sem hinir vitrari
og gætnari menn í Framsóknar-
flokknum telja hina einu réttu,
þótt þeir láti nú Iítt til sín
heyra, vegna þess að öfgamenn-
irnir og hálf-kommúnistarnir
virðast ráða lögum og Iofum í
flokknum.
Það er öllum vitanlegt, að
kommúnistar eiga þá ósk heit-
asta, að stofna til illinda við
grannþjóðir okkar og aðrar lýð-
ræðisþjóðir, sem við eigum
samstöðu með í Atlantshafs-
bandalaglnu. Og það kemur sér
auðvitað einkar vel fyrir konim
únista, að fá aðal málgagn eins
lýðræðisflokksins í Iið með sér
við þá iðju, og að Tíminn skuli
ganga svo langt í þessum á-
róðri, að Þjóðviljinn hafi þar
engu við að bæta. Slík aðstaða
hefur víða reynzt kommúnist-
um drýgri en þeirra eigin á-
róður, til þess að grafa undan
Iýðræðinu.
Afstaðan
til Efnahagsbanda-
lagsins.
Allir sem fylgjast eitthvað
með skrifum dagblaðanna,
hljóta að hafa gert sér grein
fyrir því, að Framsókn er
löngu orðin að viðundri í af-
stöðunni til Efnahagsbandalags-
ins.
Til skamms tíma voru allir
lýðræðisflokkarnir sammála í
megin atriðum um afstöðu ís-
lands til bandalagsins, en Fram
sókn vildi þó ganga lengra en
stjómarflokkamir og Iáta ís-
land sækja um fulla aðild
1961. í janúar 1962 sögðu þeir
Eysteinn Jónsson og Helgi
Bergs, sem áður höfðu viljað
fulla aðild, að nú teldu þeir
aukaaðild heppilegri, og í nóv-
ember 1962 segjast þeir vilja
tolla- og viðskiptasamning!
Stjórnarflokkarnir hafa hins
vegar frá upphafi viljað fara að
öllu með gát og ekki binda sig
við aukaaðildina fremur en t. d.
tollaleiðina, en fyrst og fremst
bíða og sjá hverju fram yndi
og taka svo ákvarðanir sam-
kvæmt því.
En svo gerist það, að þróun-
in verður sú, að málið er úr
sögunni, a. m. k. um langa
Hermann Jónasson. — Hann
vék Einari M. Einarssyni úr
skipherrastöðu á Ægi 1937, eft-
ir kröfu Breta.
framtíð — og þá rýkur Tíminn
upp til handa og fóta og fer að
reyna að gera sér úr því kosn-
ingamat! Er þetta ekki málefna-
leg uppgjöf?
Landhelgismálið.
Flestir muna enn viðbrögð
Framsóknarleiðtoganna þegar
verið var að leysa landhelgis-
deiluna við Breta 1961. Enginn
vafi er á því, að stór meirihluti
þjóðarinnar, þar á meðal margt
Framsóknarfólk, fagnaði því
samkomulagi, sem gert var.
Sigur íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar í því máli var svo glæsilegur,
að Framsóknarleiðtogarnir sár-
öfunduðu hana af málalokun-
um. En f stað þess að fagna
unnum sigri, eins og þjóðhollir
menn, þótt andstæðingar þeirra
ættu í hlut kusu þeir að skipa
sér undir merki kommúnista og
ráðast á ríkisstjórnina fyrir hið
mikla afrek, sem hún vann. Og
svo var þessi fræga yfirlýsing
gefin:
„Framsóknarflokkurinn lýsir
yfir, að hann muni líta á vænt-
anlegan samning við Breta sem
nauðungarsamning og nota
fyrsta tækifæri, sem gefast
kann, til að leysa þjóðina and-
an oki hans“ -—"og þáverandi
formaður flokksins lét sér þau
orð um munn fara, að samning-
urinn væri „markleysa ein“!
Er hægt að hugsa sér meira
ofstæki, ábyrgðarleysi og ó-
svífni en slíkar yfirlýsingar?
Þessari stefnu hefur svo
Framsókn fylgt, eða látist
fylgja, æ síðan, og oft er Tím-
inn búinn að verða sér og
flokknum til skammar f skrif-
um um þetta mál, þótt aldrei
hafi hann fengið eins ömurlega
útreið og nú síðast, þegar öll
lygi hans um landhelgismálið
var afhjúpuð og endanlega
kveðin niður með yfirlýsingu
brezku ríkisstjómarinnar þ. 21.
maí s.I.
En svo takmarkalaus er ó-
skammfeilni ritstjórans, að
hann hælist um yfir því með
gleiðletraðri forsíðufyrirsögn,
að hann hafi „knúið fram ský-
laus svör frá Bretum“, en virð-
ist ekki athuga, að þessi ský-
lausu svör eru jafnframt sönn-
un þess, að allar dylgjur og að-
dróttanir blaðsins um undan-
slátt í landhelgismálinu hafa
verið blekkingar og markleysa
ein.
-x
SKEIFAN
SKEIFAN
B-deild SKEIFUNNAR selur í dag lítið gölluð
eldhúsborð og stóla með miklum afslætti
B-deild Skeifunnar sími 16975 Kjörgarði Laugaveg