Vísir - 31.05.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 31.05.1963, Blaðsíða 1
VISIR 53. árg. — Föstudagur 31. maí 1963. — 122. tbl. SAAAAAAAAA/WWWWWWVWWWS^^WWVWWWWWWWWWWWVK^ Hornsteinn að lögreglu- stöðmni lagður um helgina Um hvítasunnuhelgina verður hátíð hjá lögreglunni í Reykja- vík. Ætlunin er að leggja horn- stein að hinni nýju og glæsi- legu lögreglustöðvarbyggingu, sem nú er í smiðum við Hverf- isgötu, þar sem Gasstöðin var áður. Forseti Islands mun leggja homstein að byggingunni, en viðstaddir athöfnina verða m. a. dómsmálaráðherra, Bjarni Bene diktsson, lögreglustjóri Sigurjón Sigurðsson, og mikill hluti lög- regluliðs borgarinnar. Að at- höfninni lokinni býður dóms- málaráðherra lögreglumönnum til kaffidrykkju að Hótel Sögu. SKA TTALÆKKUNIN NAM 110 MlllJÓNUM KRÓNA 1960 Tekjuskattur á 43 þús. manns þá afnuminn VERK VIÐRilSNARINNAR Núverandi ríkisstjóm hefir létt gífurlegum skattabyrðum af þjóðinni. Skattalækkunin 1960 nam samtals 110 milljónum króna. Skattgreiðend- um í landinu voru með örðum orðum afhentar 110 millj. króna til eigin afnota, sem- þeir hefðu ella þurft að greiða í ríkiskassann þetta eina ár. Enn hærri upphæð var skattgreiðendum spömð 1961 og ’62 vegna hærri meðaltekna en tölur liggja ekki ennþá fyrir hjá Skattstofunni um það. ^ Skattgreiðendum fækkaði vegna skattalækk- ananna 1960 um 46 þúsund manns. ^ Þetta sýnir um hve stórfelldar skattalækkanir hér var að ræða og hefir engin ríkisstjórn fært al- menningi aðrar eins hagsbætur. Á næsta þingi munu skattar á þjóðinni enn verða lækkaðir um 35—40 millj. krónur, ef stefna núverandi ríkis- stjómar fær að ráða. 110 mlllj. króna skaftalækkun Tekjuskatturlnn var Iækkaður úr 139 millj. kr. f 31 millj. kr. HÉR Á EFTIR verður gerð nokkur grein fyrir því hver á- hrif afnám tekjuskattsins á al- mennum launatekjum 1960 hef ir haft á efnahag almennings í landinu og sýnt fram á um hve stórfelldar hagsbætur er hér að ræða. Ef miðað er við álagða skatta 1959, skv. framtali frá árinu 1958, voru skattarnir kr. 139.645.000. Breytingin á skattalögunum átti sér stað 1960, Skattarnir námu, eftir þá breytingu, álagð- ir það árið skv. framtali tekna ársins 1959, kr. 31.225 þús. kr. Breytingar þær, sem viðreisnar- stjórnin beitti sér fyrir, höfðu þvi f för með sér, 110 millj. kr. lækkun skatta. Árið 1959 var fjöldi skatt- greiðenda 61900, en skattleys- ingjar (þ. e. þeir sem ekki greiddu skatta) 16.261. Samtals voru framteljendur 78.161. Ári sfðar, eftir breytingu, töldu fram 78.700. Þá greiddu hins vegar aðeins 15.080 skatta en skattleysingjar voru 63.620. Er hér miðað við einstaklinga, og félög ekki talin með.( (Tölur varðandi árin ’61 og ’62 hafa enn ekki komið fram). Hinar gífurlegu lækkanir skatta og fækkun skattgreið- enda felst einkum f því, að lág- launafólk sleppur nú við að greiða skatta af tekjum sem eru innan vissra takmarka. Þannig greiða einhleypingar ekki skatta af tekjum innan kr. 50.000. Hjón greiða ekki skatta af tekj- um innan við kr. 70.000, hjón með tvö böm greiða ekki af tekjum innan við kr. 80.000 og hjón með þrjú börn ekki innan við kr. 100.000 (sjá töflu). Eins og af þessum tölum sézt hafa beinir skattar verið lækk- aðir stórlega, og verður það aldrei nógu skýrt tekið fram, hversu mikið hagræði er af þeim breytingum. Framhald á bls. 5. Vertíð mun hefjast á réttum tímu Samningum við sjó- menn um sfldveiðikjör er nú víðast hvar lokið nema á Vestfjörðum og er ekki talin hætta á að til neinnar stöðvunar komi fyrir síldarvertíð- ina norðan- og austan- lands, sem nú fer í hönd. Grundvallar- samningurinn. Segja má að grundvöllur hinna nýju samninga hafi verið lagður með samkomulagi því sem síldarsjómenn á Suðvestur landi og Ákranesi gerðu við LÍÚ hinn 20. nóvember í haust. Að þeim samningum stóðu sjómenn í öllum verstöðvum frá Vest- mannaeyjum til Snæfellsnes- hafna, að Sandgerði undan- skildu og að Akureyringum með töldum, en nú hafa Sandgerð- ingar samið. Þetta samkomulag frá 20. nóvember í haust gildir til ársloka, með öðrum orðum fyrir norðurlandsveiðarnar, sem nú fara að hefjast. Samið fyrir austan og norðan. Hliðstæðir samningar hafa nú verið gerðir á Austfjörðum, og gilda fyrir svæðið frá Djúpavogi til Seyðisfjarðar. Sjómenn í nokkrum verstöðvum norðan- lands hafa þegar samið á grund velli samkomulagsins frá f fyrra haust, og á öðrum stöðum fyrir norðan er verið að ganga form Iega frá samningum. Alþýðu- samband Norðurlands hafði sam þykkt að stuðla að svipuðu sam komulagi og gert var syðra og á Akureyri í fyrra og er talið að samningar séu tryggir fyriV norðan. Vestfirðingar einir eftir. Vestfirðingar eru eini lands- hlutinn sem ekki hefir samið ennþá um síldveiðikjörin í ár. Þar hafa verið í gildi samningar Framhald á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.