Vísir - 05.06.1963, Side 4

Vísir - 05.06.1963, Side 4
I Framkvæmdir aldrei meiri en nú Fjárfesting 1963 verður 3220 milijónir kr., en \ það er rúmum 600 millj. kr. meira en 1958, miðað við sama verðlag. SFjármunamyndun 1957 - 1962: Arið 1957 2.702 millj. kr. — 1958 2.614 — - — 1959 2.877 — - — 1960 3.050 — - — 1961 2.385 — - — 1962 2.711 — - Árið 1963 hækkar talan enn upp í 3220 millj. kr. Þetta sýnir að fjárfestingin eykst eftlr að yinstri stjómin er farin frá. í framkvæmdaráætlun rfkis- stjómarinnar fyrir árin 1964— 1966 er enn gert ráð fyrir að fjárfestingin aukist og verði að meðaltali 3.380 millj. kr. á ári. Þetta jafngildir um 6,l%aukn- ingu á ári að meðaltali, og er þó ekki meira en svo, að jafnvægi i efnahagslífinu raskast ekki. Þannig er iagður traustur gmnd völlur að aukinni þjóðarfram- leiðslu og bættum lífskjörum þjóðarinnar. Árangur st j ómar stef nunnar. Um það verður ekki deilt að þetta er árangur viðreisnarstefn unnar. Mikil sparifjármyndun í iandinu og stórbætt gjaldeyris- aðstaða út á við gerir það að verkum, að þessi fjárfesting er möguleg. Að óbreyttri stjómar- stefnu frá tíð vinstri stjómarinn ar hefðu slíkar framkvæmdir auðvitað verið óhugsaniegar. Á árinu 1963 mun verða varið 1565 millj. kr. til fjárfestingar í atvinnuvegum þjóðarinnar, til opinberra mannvirkja og bygg- inga 980 millj. kr. og til íbúða- húsnæðis 675 millj. kr. Og á ár unum 1963—1966 verður aukn- ing fjárfestingar í rafvirkjunum, hita- og vatnsveitum, samgöng- um og opinberum byggingum 60% miðað við árin 1957—1961. Fjárfesting í atvinnu- vegunum: Þær 1565 millj. kr. sem fjár festingin í atvinnuvegunum mun nema á þessu ári, skiptast þann- ig á einstakar greinar: Fiskveiðar 405 millj. kr. Landbúnaðaur 270 millj. kr. Flutningatæki 230 millj. kr. Vinnsla sjávarafurða 220 millj. kr. Annar iðnaður m. a. vinnsla landbúnaðarafurða 200 millj. kr. Oliustöðvar, gistihús verzl.- og skrifstofuhús o. fl. 120 millj. kr. Ymsar vélar og tæki 120 millj. kr. Samtals 1565 millj. kr. Til opinberra framkvæmda: Til mannvirkja og opinberra bygginga er ætlunin að verja 980 millj. kr. eins og að framan var sagt, en það er tæpum 200 miilj. kr. hærri upphæð en s. 1. ár. Mest af aukningunni fer i rafvirkjanir, tii vega, hafnar- mannvirkja og skóla. Til raforkumálanna verður varið 185 millj. kr. M .a. verður lokið við stækkun írafossstöðv- arinnar, én sá kostnaður er á- ætlaður um 65 millj. kr. Fram- kvæmdir á vegum Rafmagns- veitna rikisins eru áætlaðar um 81 millj. kr. og 14 millj. kr. eru ætlaðar til virkjunarrannsókna. Til byrjunarframkvæmda við nýja stórvirkjun á Suðurlandi er ætlað að verja 10 millj. kr. og til framkvæmda Rafmagns- veitu Reykjavíkur o. fl. 15 millj. kr. í framkvæmdaáætlun ríkis- stjórnarinnar fyrir árin 1963— 1966 er ennfremur gert ráð fyr ir 80% hærri fjárfestingu í raf orkumálum en á árunum 1957— 1961, eða að meðaltali 430 millj kr. á ári. 1270 - 1500 íbúðir á ári. Hinar 675 millj. kr. sem í ár verður varið til fjárfestingar í íbúðarhúsnæði, svara til 1270 f- búða, en á árunum 1964-1966 er gert ráð fyrir aukinni fjár- festingu upp í 800 millj. kr. á ári, en það svarar til 1500 íbúða á ári. Hér hafa verið nefnd nokkur helztu atriði fjárfestingarinnar á þessu ári og fyrirhugðra fram kvæmda á næstu árum. Þau ættu að nægja hverjum manni til að sjá það, að hér er ekki um samdrátt á nokkru sviði að ræða. Spádómar stjómarand- stöðunnar um það hafa reynzt markleysa ein, enda hefur hún að mestu gefizt upp á að reyna að telja fólki trú um þá fjar- stæðu. Moldviðrið, sem stjómarand- staðan hefur þyrlað upp um Iandhelgismálið og efnahags- bandalagið nú upp á síðkastið, getur ekki skoðazt annað en flótti frá umræðum um innan- landsmálin, þar sem hún var löngu orðin rökþrota. En hitt er svo annað mál, að ekki mun hún heldur ríða feitum hesti frá viðureigninni um utanrik- ismálin, svo óhönduglega sem henni hefur til tekizt um mála- tiibúnaðinn þar. ☆ STJÓRNARANDSTAÐAN hefur sem kunnugt er deilt hart á ríkisstjómina fyrir bað, að stefna hennar mundi valda sam drætti í verklegum framkvæmd um og íjárfestingu almennt. Stáðreyndirnar í þessum efnum tala þó öðru máli. í þjóðhags- og framkvæmdaáætlun ríkis- stjóraarinnar, sem lögð var fram á siðasta alþingi eru birtar ýtariegar skýrslur um fjárfest- ingu á tímabilinu 1957—1962. Þar fæst samanburður á fjárfest ingu í tíð vinstri stjómarinnar, árin 1957—1958, og fjárfesting áranna 1959—1962, þegar vinstri stjómin var farin frá völdum. Tölur þær, sem hér fara á eft- ir, sýna fjármunamyndunina ár- ið 1957—1962, þ. e. fjárfestingu í myndun fjármuna, annarra en aukningu birgða og bústofns. Tölumar eru allar byggðar í verðlagi í árslok 1962. Fiskverkunarstöövar í Örfirisey. V í S I R . Miðvikudagur 5. júní 1^63. Pascall Pascall nylon sokkamir 30 Din., eru komnir aftur. Verð aðeins 30 krónur. REGNBOGINN, Bankastræti 6 Sími 22135. SAMEINAR MARGA KOSTI-' FAGURT OTLIT. ORKU. TRAUSTLEIKA RÓMAÐA AKSTURSHÆFNI OG L Á G T V E R Ð ! TÉHhNESHA BIFBEIÐAUMBOÐI0 V0N*MT«T, I2.ÍÍMIJTÍÍI Þakkarávarp í tilefni af 85 ára afmælisdegi minum 31. maí var mér sýndur margs konar vináttuvottur, sem ég vil þakka. Fékk ég fjölmarg- ar gjafir og skeyti. M. a .giöddu mig Guðmundur Hersir, for- maður Bakarafélagsins, Sveinafélagið og Ingimar Jónsson bak- arameistan ásamt mörgum fleirum. Ég hef unnið 64 ár i bakarfum, lengst af hér á landi, en 18 ár í fjórum öðrum löndum. Hvar sem ég hef komið hefur mér verið opin föst vinna og veit ég ekki hvað það er að vera at- vinnulaus. Minningarnar eru orðnar margar úr iöngu starfi, og margt hefur breytzt á sfðustu árum. Hafið allir þökl. fyrir vináttu ykkar. Ámi J. Strandberg.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.