Vísir - 06.06.1963, Page 1
I,
VISIR
53. árg. — Fimmtudagur 6. júní 1963. — 126. tbl.
■
FJÖLMENNUM á
fundinn í kvöld
Ingólfur Jónsson ráðherra.
Kosningafundur D-listans í Háskóiabíó verBur í kvöld og
hefst kl. 8,30. Reykvíkingar fjölmennum á þennan fund og
sýnum með því að við styðjum öfluglega áframhaldandi við-
reisnarstjóm.
1 byrjun fundar Ieikur Lúðrasveit Reykjavíkur. Fundar-
stjóri verður Páil ísólfsson.
Ræður fiytja: Bjami Benediktsson dómsmálaráðherra, Guð-
rún P. Helgadóttir skólastjóri, Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri, Sveinn Guðmundsson forstj. Birgir Kjaran hagfræð-
ingur, Pétur Sigurðsson sjómaður, Jóhann Hafstein banka-
stjóri og Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra.
Siónvarpað verður frá fundinum fram í anddyri hússins.
.. .....................................................
BIEKKINSARNAR UM HÆKKUN
AfURBANNA ERU FRÁLEITAR
Rætt við Ingólf Jónsson ráðherra
— Ef kommúnistar og
Framsókn fá í samein-
ingu glundroðavald við
þessar kosningar, þá
dregur til upplausnar og
vandræða á þessu landi,
jafnt í sveit sem við sjó.
Þannig mælti Ingólfur Jóns-
son, er Vísir átti tal við hann
um stjómmáiaástandið i gær.
— Þá hefur þjóðin lltið lært,
sagði ráðherrann. Undir vinstri
stjóminni litu aðrar þjóðir á
okkur sem negraþjóð úr svört-
ustu Afríku, enda var það engin
furða. Erlendar og innlendar
skuldir jukust sífellt og krónan
okkar var hvergi skráð eða
gjaldgeng.
Ef hins vegar rikisstjómin
fær traust kjósenda verður hald
ið áfram á braut uppbyggingar-
innar. Þá verður unnið áfram
að því að bæta lífskjörin i land-
inu og tryggja efnahagslegan
gmndvöll þjóðarinnar.
— Framsóknarmenn hafa und
anfarið verið að tala um árásir
á heimilin og eiga þar við hækk
un á landbúnaðarafurðum. Hvað
segið þér um það?
— Það eru undarlegir menn,
Framsóknarmenn. Þegar þeir
tala við bændur telja þeir af-
urðaverðið allt of lágt. En þeg-
ar þeir tala við fólk við sjóinn
reyna þeir að læða því irin að
afurðaverðið þurfi að lækka.
Þannig eru heilindin hjá þess-
um merkismönnum. Slikir menn
munu ekki erfa landið.
Það er alkunna að afurða-
verð bóndans hækkar, ef kaup-
gjald hækkar í landinu, þar sem
tekjur hans eru miðaðar við
tekjur verkamanna, iðnaðar-
manna og sjómanna. Hækkun
afurðaverðsins stafar því af
30% kauphækkununum sem
orðið hafa á síðustu tveimur
árum, en ekki af árás viðreisn-
arinnar á hag neytenda við sjáv-
arsíðuna, eins og Framsóknar-
menn vilja vera láta.
Hér tala þeir tveimur tung-
um ,sem svo oft ella. Margir
Framsóknarmenn láta að því
liggja, þegar þeir ræða við
bændur, að flokkur þeirra hafi
mestan hug á því að mynda
stjórn með Sjálfstæðisflokkn-
um eftir kosningar. En þegar
þeir tala við svokallaða vinstri
menn segja þeir að sjálfsagt sé
að mynda stjórn með Alþýðu-
bandalaginu! Þess vegna eru
menn farnir að spyrja hve lengi
Framsókn muni takast að
blekkja fólk til fylgis við sig
með slíkum endemis málflutn-
ingi.
Annars má gjarnan minna á
það, þegar við ræðum um þess-
Framhald á bls. 5.