Vísir - 11.06.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 11.06.1963, Blaðsíða 8
8 VÍSIR . Þriðjudagur 11. júní 1863. VtSIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VtSIR. R'tstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjðri: \xel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og ’tgreiðsla Ingó’.fsstrœti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. f lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 Hnur). Prentsmiðja Vfsis. — Edda h.f. Sigur viðreisnarinnar Viðreisnin hefur sigrað. Það sýna kosningaúrslitin ótvírætt. Þjóðin hefur kveðið upp dóm sinn yfir stefnu síðustu þriggja ára. Sá dómur er jákvæður. Með kosn- ingunni hefur þjóðin lýst því yfir að hún óskar eftir því að viðreisnin haldi áfram. Og þjóðin hefur látið þá skoðun sína í ljós, að FramsóknarflokU<urinn eigi ekkert eríndi í Stjómarráðið og hún hefur hafnað kommúnistum á eftirminnilegan hátt. Þetta er í fyrsta sinn sem stjóm, sem starfað hefur heilt kjörtímabil, hlýtur fylgisaukningu og verulegan meirihluta allra kjósenda. Sú staðreynd sýnir að stefna stjómarinnar hefur verið heilladrjúg og farsæl. Að vísu tapaði Alþýðuflokkurinn örlitlu í þessum kosningum, eða 1%. En þar á móti kemur að Sjálfstæð- isflokkurinn hefur aukið fylgi sitt um 1.7%. Hafa því viðreisnarflokkamir aukið fylgi sitt meðal þjóðarinn- ar. Áður höfðu þeir 54.9% hennar að baki sér, en nú 55.7% fylgi. Það er alltaf auðveldara að vera í stjómarandstöðu. Yfirleitt vinnur stjómarandstöðuflokkurinn á í þing- kosningum. Því átti Framsóknarflokkurinn nú sitt stóra tækifæri. Það vissi flokksforystan og því var unnið til hins ýtrasta og áróður flokksins var í há- marki vikum saman, bæði hér í Reykjavík og einnig úti á landi. Ekkert var til sparað og einkum reynt að vinna atkvæði kjósenda á því að vitna til utanríkis- málanna. En þessi atlaga að viðreisninni og utanríkis- stefnu stjómarflokkanna hefur herfilega mistekizt. Þjóðin hefur lýst því yfir að hún tekur ekki mark á orðum Framsóknarflokksins. Myndur nýrrar stjómar stendur nú fyrir dyram. Eðlilegast er að Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokk- urinn starfi áfram saman. Stefna þeirra hefur hlotið traust. Henni verður að halda áfram. Ósigur kommúnista Það er gremjutónn í Þjóðviljanum í morgun. Blaðið kvartar sáran undan því að „meirihluti kjósenda hafi orðið gagnsýrður af borgaralegum viðhorfum“ hér í Reykjavík síðustu tvo áratugina. Það er eðlilegt að kommúnistar séu gramir. Fyrir bá vom kosningarnar stór ósigur. Þeir hafa tapað mestu af öllum flokkum, eða 4.4% á öllu landinu og einu þingsæti. Höfðu þeir þó innlimað Þjóðvöm og reyndu að bjarga lífi sínu á þeirri samvinnu. Úrslitin sýna að kommúnistar hafa misst traust al- mennings. Fylgi þeirra hrynur ekki, en við því var ekki að búast. Það minnkar hins vegar hægt og þétt. Nú er ekki lengur vafi á þvf, að áhrif kommúnista eru að fjara út. Þeir eru að verða sami smáflokkurinn hér á landi og þeir em á hinum Norðurlöndunum. PROFUMO-HNE YKSUÐ John Profumo. Lundúnablöðin, jafnvel þau, sem ávallt hafa bezt og dyggi legast stutt Harold Macmillan forsætisráðherra og stjórn hans, hafa ekki farið dult með það, að undanfömu, að afleiðingar Profumo-hneyslisins, séu hinar alvarlegustu fyrir Macmillanog stjóm hans. Og svo mikinn álitshnekki hefur Macmillan beð ið vegna þessa máls, að jafn- vel búizt við, að hann neyðist til að biðjast lausnar, en áður en þetta leiða mál kom til sögunn- ar, var Macmillan staðráðinn I að Ieiða flokk sinn fram til sig urs i næstu kosningum, og var almennt búizt við að þær myndu fara fram síðar á þessu ári. En svo breyttar vora horf- umar og áreiðanlega vegna þessa máls, að Ian McLeod, annar formaður íhaldsflokksins, þá nýkominn til Bandarikjanna, sagði þar að kosningar myndu ekki fara fram fyrr en á næsta ári. í raun og vera hefur hvert áfallið dunið yfir á fætur öðru í þessu máli í seinni tið. John Profumo hermálaráðherra neydd ist sem kunnugt er til þess að biðjast lausnar vegna kunning- skaparins við sýningarstúlkuna Christine Keeler, neitaði hátið- lega, að nokkuð hefði verið 6- sæmilegt við kynni þeirra, en í bréfi þvi er hann ritaði forsætis ráðherra og baðst lausnar, kvaðst hann hafa sagt þinginu ósatt um þetta atriði í hlífðar skyni við sína nánustu. Jafn framt sagði hann af sér þing- mennsku. í sambandi við þetta er þess að geta, að mikil gremja er rlkj andi innan íhaldsflokksins, jafn vel meðal aðalráðherra, út af allri málsmeðferðinni, en sum- um þeirra varð ekki kunnugt um lausnarbeiðni Profumo fyrr en þeir heyrðu fréttina I út- varpinu. Svo gerist það hinn 8. þ. m., að einn af kunnustu læknum landsins, dr. Stephen Ward, sem áður hafði verið nefndur -f sam bandi við Profumo og sýningar stúlkuna, en hann hefur m. a. stundað ýmsa helztu menn landsins, er handtekinn. Það vora tveir af yfir- mönnum Scotland Yard, sem handtóku dr. Ward, án sérstakr ar handtökuheimildar, en fram kvæmdu handtökuna I beinu um boði frá skrifstofu hins opin- bera saksóknara. Farið var með Ward læknir til Marylebone- lögreglustöðvar og var hann yfirheyrður þar og fimm klukku stundum slðar var hann þeim sökum borinn, að hafa lifað að öllu eða nokkru leyti á tekjum af vændi. 1 neðri málstofu þingsins fer brátt fram umræða um málið með sérstöku tilliti til öryggis- málanna. Umræðan fer fram að kröfu stjómarandstöðunnar. — Macmillan mun þá verða spurð ur margs varðandi þetta mál allt. Og sú spurning er nú á allra vöram: Biðst Macmillan lausnar? ☆ í gær var sagt i fréttum frá Lundúnum: Nokkrar líkur era nú sagðar til þess að svo kunni að fara, að Harold Macmillan forsætisráð- herra Bretlands biðjist lausnar vegna Prufumo-hneykslisins. Macmillan kom til Lundúna I morgun að aflokinni nokkurra daga dvöl norður á Skotlandi, þar sem hann var sér til hvíld- ar og hressingar. Hann ræðir við Butler varaforsætisráðherra um ofannefnt mál þegar I dag og stjórnarfundur verður hald- inn um það, ef til vill fljótlega og áreiðanlega áður en málið verður tekið fyrir í neðri mál- stofu þingsins, en umræðan fer fram að kröfu jafnaðarmanna, og er það með tilliti til örygg- is landsins, sem málið verður rætt. Annar af tveimur formönn- um íhaldsflokksins brezka, Ian McLeod, skýrði frá því I ræðu í fyrri viku, að þingkosningar myndu að líkindum ekki fara fram á Bretlandi fyrr en næsta ár. Til skamms tíma voru líkur taldar meiri, að efnt yrði til haustkosninga. Þegar yfirlýsing McLeods kom fram var hún skilin svo, að Ihaldsflokkurinn hefði beðið mikinn álitshnekki vegna Profumo-hneykslisins, og væri heppilegast fyrir hann, að kosningum yrði frestað þar til færi að fyrnast yfir hneykslið. Enn fremur gerðist það í vik- unni sem leið, að handtekinn var hinn kunni læknir, dr. Ward, sem títt var nefndur í fréttum, er á allra vitorði vora orðin kynni Johns Profumo landvarna- ráðherra og sýnvngarstúlkunnar Christine Keeler, en það var á heimili hans, sem þau kynntust ráðherrann og sýningarstúlkan. Dr. Wárd hefur verið sakaður uni að hafa að nokkru eða veru legu leyti haft tekjur af vændi. Þá er þess að minnast, að John Frofumo, sem áður hafði N lýst yfir á þingi ,að ekkert ó- sæmilegt hefði verið við kynni hahs og Christine Keeler, varð að játa, að hann hafði sagt ó- satt um þetta, — og baðst hann þvl lausnar frá embætti og sagði af sér þingmennsku. Kvaðst hann hafa sagt ósatt til þess að hlífa konu sinni og barni, sem ekkert hefðu um þetta vitað. LEYNILEG- SKÝRSLA Það varð kunnugt I gær, að Macmillan hafði fálfð Dilhorne lávarði að rannsaka Profumo- málið, áður en Promumo baðst lausnar. Mun hann skila skýrslu I vikunni. Kunnugt er, að hann hefur rætt við Profumo. Ekki er enn vitað hvort þessi skýrsla verður birt opinberlega, en hún verður send Harold Wilson, leið toga stjórnarandstöðunnar sem trúnaðarskjal. DR. WARD I GÆZLUVARÐHALDI Dr. Ward var I gær úrskurð- aður í viku gæzluvarðhald. HLUTABRÉF FALLA Hlutabréf I iðnaði hafa nú fallið nokkuð og er orsökin beyg ur um, að Macmillan kunni að biðjast lausnar, og muni álits- hnekkir sá, er hann og flokkur hans hefur beðið, ef til vill leiða til þess að jafnaðarmenn myndi næstu stjórn landsins, og fram- kvæmi þá áform um þjóðnýt- ingu. Enn er þess að geta, að mjög var rætt I fréttum um skeið um einn af starfsmönnum sov- ézka sendiráðsins, þar sem hann var meðal kunningja Christine Keeler og kom á heimili dr. Wards, en sendirácjsstarfsmaður þessi er nú I Sovétríkjunum. Afleiðingar málsins hafa þann ig orðið æ víðtækari og búizt við frekari. Að margra ætlan getur þetta mál orðið til þess að auka sig- urmöguleika jafnaðarmanna í næstu kosningum, jafnvel þótt þær dragist fram á næsta vor. Harold Wilson, höfuðleiðtogi jafnaðarmanna, er nú I viku heimsókn I Moskvu og ræðir helztu vandamál við Krúsév, svo sem afvopnun, samkomulag um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn o. fl. 0Qn3Ki3323HXZXX333Qaa33 fflJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.