Vísir - 13.06.1963, Síða 1
X-
Óttar Möller, forstjóri Eimskipa-
félagsins, fagnar skipstjóra Gull-
foss, Kristjáni Aðalsteinssyni
við komu skipsins. Milli þeirra
stendur Viggó Maack verkfræð
ingur, sem umsjón hafði með
viðgerðinni. (Ljósm. Vísis I. M.).
„Gullfoss betri en
nokkru sinni fyrr "
er einróma ólit
„Það er einróma álit
mitt og allrar áhafnar-
innar, að Gullfoss hafi
aldrei reynzt betur en í
þessari fyrstu ferð sinni
eftir lagfæringarnar“,
skipshafnarinnar
sagði skipstjórinn Kristj
án Aðalsteinsson í morg
un. „Stuðlar allt að því
— minni hristingur, ný
innrétting í reyksölum
og farþegarýmum og
traustari bygging skips-
ins en áður á þeim hlut-
um skipsins, sem endur-
nýja þurfti“.
Þetta var og áiit farþeganna,
sem með Gullfossi komu í morg
un frá Kaupmannahöfn, þeirra,
sem áður hafa ferðazt með skip
inu.
Framh. á bls. 5
• • ••• --v •: •
iiPliiiiiiiil
MÍllllliÍ
f
t, *
w '*,> -
f$SI III nii
M«« f>
piipw
'4 y. '
■
••'••■ ....
■
• ' •• : „
■
j>< "íl
- :
''i
■■>■ .............
Gullfoss sigíir inn á innri höfnina, giæsilegri en nokkru sinni fyrr. (Sjá og mynd úr Gullfossi á 5. síðu).
Afbrugðsveiði 50 mílur út
ufLungunesi
Síldveiðin fyrir norðan og aust-
an byrjar sérstaklega vel og er
það von aUra að áframhald
verði. Aðalveiðsvæðið er um
50 sjðmílur norðaustur af
Langanesi. Þar var leitarskipið
Pétur Thorsteinsson statt í
morgun, er Vísir hafði tal af
Þóri Atla Guðmundssyni, sem
er skipstjóri i þessari ferð.
Hann sagði að mjög mikil veiði
hefði verið í gærkvöldi og í
nótt og skipin væru að kasta
og fylla sig allt í kringum hann.
Veðrið væri blítt og síldin fal-
leg og fjöldi skipa kominn á
miðin. Enn fremur sagði skip-
stjórinn að 13 skip með sam-
tals nær 15 þúsimd mál innan-
borðs væru á ieið til lands,
hefðu byrjað að sigla inn upp
úr miðnættinu, og fara Aust-
fjarðabátamir til Austurlands-
hafna og einhver skipanna til
Eyjafjarðarhafna. Síldin óð á
tímabili í gærkvöldi.
Eftirtalin skip vom á ieið
inn kl. 10.30 í morgun með
aflamagn sem hér segir: Nátt-
fari 1550 mál, Dalaröst 700,
Bára 600, Grótta 1700, Eld-
borg 1250, Stefán Benedikts-
son 1300, Ámi Geir 700, Héð-
Framh. á bls. 5
Harður
árekstur
Harður árekstur varð í Hafnar-
firði seint f gærkvöldi. Skemmdust
báðar bifreiðarnar mikið, en meiðsli
urðu ekki á fólki.
Laust fyrir kl. 11 í 'gærkvöldi
var bifreiðinni M 757 ekið upp Linn
etsstíg að Hverfisgötu. En þegar
þangað kom var leigubifreið úr
Reykjavík að koma sunnan Hverf-
isgötuna og skall af miklu afli á
miðja M-bifreiðina, þannig að sú
síðarnefnda færðist úr stað án þess
þó að velta. Þrír farþegar voru
auk ökumanns í Reykjavíkurbifreið
inni, en ökumaður var einn í M-
bílnum. Ekkert af fólkinu sakaði.
Hins vegar urðu miklar skemmdir
á bílunum einkum M-bílnum, sem
var óökufær á eftir.
Stal
9000 kr.
1 gærkvöldi var kært yfir pen-
ingastuldi til lögreglunnar. Hafði
manni horfið veski með samt. um
9 þús. krónum.
Lögreglan hóf þegar eftirgrennsl-
anir og leit að þjófnum og bai-st
skjótt vitneskja um mann nokkurn,
sem féll strax undir grun. Var hann
staddur í veitingahúsi nokkru og
fór óspart með fé, enda þótt lög-
reglan hefði rökstuddan grun um
að hann ætti ekki að hafa fé undir
höndum, ef allt væri með felldu.
Þá fannst og i sama veitingahúsi
merkt peningaveski í salerni, en
þar hafði því verið fleygt eftir að
það var tæmt. Þótti þá ekki leng-
ur þurfa vitnanna við, var maðiu'-
inn handtekinn og hefur nú viður
kennt stuldinn.