Vísir - 14.06.1963, Síða 1

Vísir - 14.06.1963, Síða 1
VÍSIR Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið, að Flokksráð Sjálfstæðisflokksins komi saman til fundar í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík föstu- daginn 21. júní næstkomandi kl. 12 á hádegi. STÚDENTSHÚFUR MÁTAÐAR Stúdentshúfurnar — stúdents- húfurnar, höfuðfötin, sem lík- Er ljósmyndari Vísis kom við húfurnar. Loksins er sá dagur lega eru mest þráð allra höfuð- í morgun í Verzlun P. Eyfeld kominn er sækja má stúdents- fata á íslandi. - Framh. á bls. 5 Hildur Guðmundsdóttir úr Verziunarskólanum mátar húfuna og við hlið hennar stendur systir hennar, Dagný — og Ieggur sjálfsagt á ráðin um hvemig hún elgi að vera þannig að hún fari sem bezt. Verkföll stöðva síldarvertíðina um helgina ef ekki semst Krafizt 100% hækkunar í nætursöltun Núna um helgina koma til framkvæmda verk- föll þau, sem verkalýðs- félög á Akureyri og Siglufirði hafa boðað, hafi samningar ekki tek- izt fyrir þann tíma, og hinn 20. þessa mánaðar, eða um miðja næstu viku, bætist Raufarhöfn í hópinn. Ef þannig tækist til, sem því miður er útlit fyrir eins og mál in horfa við í dag, myndi það í rauninni þýða stöðvun síldar- vertiðarinnar í þann mund sem skipin eru rétt byrjuð að veiða, og veiða vel, þar eð langstærstu og afkastamestu verksmiðjurnar eru á Siglufirði og Raufarhöfn og líklegt er að verkföllin myndu greiðast út til fleiri staða, svo sem Norðfjarðar, en þar hefur verið veitt verkfalls- heimild, þótt verkfall hafi ekki verið boðað. Þessar fréttir vekja eðlilega hinn mesta óhug með þjóðinni. STÖÐUGIR SÁTTAFUNDIR. Þessa dagana, og raunar jafnt nótt sem dag, stýrir sáttasemj- ari ríkisins, Torfi Hjartarson, fundum I Alþingishúsinu með fulltrúum deiluaðila, þar sem alls er freistað, sem unnt er, til að afstýra þeirri þjóðarógæfu sem vofir yfir ef ekki semst. Sáttasemjari var á fundum með samninganefndum Akureyringa og Siglfirðinga til kl. 4 í nótt og nýr sáttafundur hefur verið boðaður kl. 4 í dag. Auk þess hófust f gær samn- ingaviðræður milli Vinnuveit- endasambands Islands og verka- mannafélagsins Dagsbrúnar f Reykjavík, en Dagsbrún hefur lengi haft lausa samninga. Dags brúnarsamningunum hefur ekki verið vísað til sáttasemjara enn þá og hafði nýr viðræðufundur verið boðaður kl. 2 í dag. 100% HÆKKUN I NÆTURSÖLTUN. Vísir hefur skýrt frá ýmsum atriðum kröfugerðar verkalýðs- félaganna fyrir norðan. Til við- bótar má nefna að krafizt er 100% hækkunar taxta fyrir síld arsöltun að næturlagi, það er frá kl. 8 á kvöldin. I fyrsta lagi er krafizt 20% almennrar kaup- hækkunar og sfðan 80% ofan á það, ef um nætursöltun er að ræða. Mynd þessi var tekin stuttu áður en byrjað var að siá upp fyrir 1. hæðinni. Á myndinni eru þeir Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri og Þorvaldur Karlsson, yfirsmiður. (Ljósm. Vfsis: B .G.). HÚS KVENNA RÍSAFGRUNN! Milli Túngötu, Öldugötu og Garðastrætis f Reykjavík er mikið hús að rísa af grunni, Kvennaheimilið Hallveigarstað- ir, kennt við Hallveigu Fróða- dóttur fyrstu húsfreyju í Reykja vik. Það er kvenfélagasamband tslands, sem að byggingunni stendur og er nú loks 40 ára gamall draumur að rætast. Kvennaheimilið Hallveigar- staðir á sér langa sögu að baki og er ekki unnt að rekja hana sér, aðeins minnast á nokkur atriði. Fyrir um það bil 40 ár- um stofnuðu nokkur kvenfélög f Reykjavfk með sér bandalag til að sameina krafta sína og vinna að málum, sem einkum varða konur, svo og öðrum þjóðmálum. Sáu þær fljótt að heppilegt myndi að fá eigið hús undir starfsemina og fór banda- lagið fram á að ríkisstjórn og Alþingi veittu ókeypis lóð und- ir húsbyggingu, hvað þessir að- ilar gerðu. Lóðin ,sem fengin var, þótti ekki heppileg og var seld með samþykki yfirvalda og sú lóð keypt, sem Hallveigarstaðir nú rísa á. Margt varð því til hindrunar að bygging heimilisins gæti hafizt og með breyttum tímum Framh. á bls. 5

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.