Vísir - 15.06.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 15.06.1963, Blaðsíða 1
VISIR 53. árc. — Laueardaenr 15 ii'mf lflfi'l — 155 rhl DomusMedita verBurrisið innan tveggja ára í gærkvöldi hófust byrjunarframkvæmdir við byggingu fyrirhug aðs læknahúss, Domus Medica, sem á að rísa á horni Snorrabrautar og Byggingarfreimkvæmdir hófust gærkvddi i Egilsgötu, neðan við Heilsuverndarstöðina. — Voru saman komnir um 20 læknar, til að vera vitni að því er Bjarni Bjamason, læknir, for- maður Domus Medica, tók fyrstu skóflustung- una. Áður lýsti Bjarni í nokkrum orðum undirbúningi, skipulagi og hlutverki byggingarinnar, sem er teiknuð af arkitektun- um Gunnari Hannessjmi og Hall dóri Jónssyni. Domus Medica verður fjórar hæðir og kjallari, hver hæð 320 fermetrar, en mögulegt verður að byggja 450 fermetra viðbygg ingu. Á fyrstu hæð hússins verð ur félagsheimili lækna, en á þrem efstu hæðunum læknastof ur. Þar munu sitja sérfræðingar i hinum ýmsu greinum og aflað verður fullkominna rannsóknar- tækja, m. a. röntgentækja. Er ætlunin að þarna geti farið fram rann.aóknir, sem fólk hefur hing að til þurft að leita eftir út um allan bæ. Kjallara hússins hefur Framh. á bls. 5 Bjarni Bjarnason tekur fyrstu skóflustunguna fyrir Domus Medica. — Nokkrir læknanna, sem voru viðstaddir. Verkföll og yfír- vofméi verkföll Um 100 verkfræðingar eru nú í verkfalli gagnvart ölium at- vinnurekendum, nema rikinu, svó sem Reykjavíkurborg, Vinnuveitendasambandinu. Vinnumálasambandi samvinnu- félaganna, Félag íslenzkra iðn- rekenda og praktiserandi verk- fræðingum, eða verkfræðistof- um. Þeir sem reka verkfræði- -« 24 þús. múl til H/'alteyrar Vegna hinna yfirvof- andi verkfalla er nú svo komið að síldarbátarnir halda alls ekki til þeirra hafna, þar sem boðað hefur verið til vinnu- stöðvunar. Hafa því bát arnir einkum landað á Hjalteyri síðustu sólar- hringana og hafa þar borizt á land síðasta sól arhringinn 24.000 mál. Hefur ágæt veiði verið og bátamir streyma lát- laust inn. Síldin fer eingöngu í bræðslu, og hefur verksmiðjan haft ágæt- lega undan, en nú eru allar þrær orðnar fullar og gera má ráð VISIR Vísir kemur næst út þriðjudaginn 18. júní. fyrir einhverri bið, ef ekkert lát verður á Iöndunum bátanna. I dag komu þessir bátar til Hjalt eyrar: Eldborg, 1275, Báran 568, Héðinn 1068, Margrét 1399, Þor- leifur Rögnvaldsson 1543, Strák ur 374, Guðfinnur 629, Sigurpáll 1107, og Gjafar er að Ianda 1200. Síðar í kvöld eru væntanlegir til Hjalteyrar bátarnir Jón Jóns son, Sæþór, Guðmundur Þórar- insson, Jón Gunnlaugsson, Hann es Hafstein, Akraborg með samtals um 6—7000 mál. Af miðunum eru um 12—15 tímar, en um það er ekki að sak ast, vegna ofangreinds ástands. Aðeins á Austfjörðum hefur ekki verið boðað til vinnustöðv unar, en þangað er að sjáifsögðu mun lengra stím en til Hjalt- eyrar. Er þvl mikið annríki á Hjalt- eyri, en enn sem komið er, er nægilegt vinnuafl. I fyrra bræddi verksmlðjan á Hjalteyri um 110 þús. mál. Til Siglufjarðar hafa borizt 3050 mál sfldar, sem veizt hafa út af Langanesi. Skipin eru: Halkion 850, Jón Gunnlaugsson 500, Einar 600, Vattanes 600 og Hoffell 800. stofurnar hafa rætt eitthvað við fulltrúa stéttarfélags verkfræð- inga, en aðrar samningaviðræð- ur munu ekki hafa átt sér stað en/nþá og deilan er ekki komin til kasta ríkissáttasemjara. Skipasmiðir hafa verið I verk- falli siðan 20. maí og virðistlítið gerast til lausnar á því verkfalli. Fulltrúar frá vinnuveitendum og verkamannafélaginu Dags- brún komu saman á nýjan við- ræðufund í gær og stóð hann I tvær klukkustundir. Síðast en ekki sízt er að geta hinna stöðugu viðræðufunda sem sáttasemjari ríkisins heldur með fulltrúum deiluaðila á Ak- ureyri og Siglufirði. Sáttafund- ur var I þeirri deilu í Alþingis- húsinu í allan gærdag, aðeins stutt matarhlé I gærkvöld, og fundi fram haldið að því loknu. Mestu kaupkröfurnar munu lttt hafa verið ræddar ennþá og lítil líkindi til að fullt samkomulag náist fyrir þann tíma sem verk- föll eiga að byrja að koma til framkvæmda fyrir norðan, en það er núna um helgina á Ak- ureyri og Siglufirði og á Húsa- vík og Raufarhöfn I næstu viku. Vikuferð í geimnum BRAUTSKRÁÐIR 15 STÚDíNTAR fró laugavatni í gær Verður kona í næsta geimfari Rússa ? Kl. 12 á hádegi í gær skutu Rússar á loft geimfari, Vostok fimmta, og er talið að það eigi að vera á lofti allt að viku, en lengsta geimferð til þessa er 4 sólarhring- ar. 1 Vostok fimmta er 29 ára of- ursti úr rússneska flughernum, Valery Bykovski að nafni. Jarð- nánd geimfarsins er 188 kílómetrar en jarðfirð 235 kílómetrar. Krúsjoff, forsætisráðherra Sovét ríkjanna, skýrði blaðamönnum frá þessari geimferð í Moskvu í dag, en ekki er vitað hvaðan geimfarinu var skotið. Hann var spurður að því hvort kona væri í geimfarinu, og svar hans var: „Ekki ennþá“. En heyrzt hefur að öðru geimfari verði skotið á loft í Sovétríkjun- um á morgun og í þvi verði kona. Menntaskólanum á Laugár- vatni var slitið í gær. Frá skól- anum útskrifuðust að þessu sinnl 15 stúdentar, 8 úr mála- deild og 9 úr stærðfræðideild. Hæstu einkunn hlaut Einar Magnússon úr stærðfræðideild, 8,26. Efst I máladeild var Ing- unn Stefánsdóttir, 7.78. Þetta er í 10 skipti sem Menntaskólinn á Laugarvatni útskrifar stúd- enta. í vetur stunduðu 99 nemend- ur nám i menntaskólanum, og var skólinn fullsetinn. Þær breytingar urðu á kennaraliði, að Þórður Kristleifsson, sem kennt hefur vð skólann frá upp hafi, Iét af störfum fyrir aldurs sakir. Þórður hefur kennt við héraðsskólann frá 1930. Þakkaði skólameistari, Jóhann Hannes- son, Þórði fyrir heilladrjúg störf í þágu skólans.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.