Vísir - 18.06.1963, Síða 4
V1SIR . Þriðjudagur 18. júní 1963,
4
Hundrað fimmtíu og sex nem
endur útskrifuðust frá Mennta-
skólanum í Reykjavík að þessu
sinni. Eru það fleiri nýstúdentar
en nokkru sinni fyrr i sögu skól
ans. Bekkjardeldir voru sjö, átta
tóku próf utanskóla, meðal
þeirra dúxinn, Baldur Hermanns
son. Hér sést hinn glsæilegi hóp
ur frá Menntaskólanum í Hljóm-
skálagarðinum.
NtSTÚDENTAR í
REYKJAVÍK
Hér birtir Vísir myndir af hin-
um nýbökuðu stúdentum úr
skólunum i Reykjavík, Mennta-
skólanum og Verzlunarskólan-
um. Samtals eru þeir 179, stærri
hópur en nokkru sinni fyrr, og
fríður að sama skapi. Leiðir
þeirra liggja inn í allar greinar
menntunar og atvinnulífs. Mik-
ils er af þeim vænzt og allir
vita að þeir bregðast ekkl.
Vísir óskar þeim til hamingju.
Við munum síðar birta mynd
ir af stúdentum frá Menntaskól
anum á Akureyri og Laugar-
vatni.
Rektor Menntaskólans, Krist-
inn Ármannsson afhendir Reyni
Axelssyni prófskirteini hans.
Reynir hlaut hæstu einkunn á
stúdentsprófi, þeirra, sem í skól
anum sátu, 9.22.
:◄
Stúdentar frá Verzlunarskóla
i íslands urðu 23 í ár. Hér eru
; þeir með skólastjóra sínum, dr.
Jóni Gíslasyni.
TRÉSMIÐIR
CASCOL
Vatnshelda trélímið komið
aftur.
Einnig fyrirliggjandi:
PLASTPLÖTU-LÍM
VEGGFLÍSA-LlM
Trélím fljótandi og duft.
Sími 1-16-20.
i