Vísir - 18.06.1963, Side 16

Vísir - 18.06.1963, Side 16
Þeir héldu ræður, sungu, léku jafnvel heilu bamaleikritin mér og mínum likum til skemmtunar. Það var hátíð — þjóðhátíð sögðu þeir og ég, æsk an, á að erfa landið — þeir eru að byggja upp til þess að ég geti tekiö við. Þeir reistu tjöld og fánaborgir og dönsuðu fram á nótt og buðu mér og .mínum likum upp á blöðrur með ýlum. Blöðrur með ýlum handa okk- ar sem eigum að erfa Iandið og taka vlð, minna getur það ekki verið. Og jafnvei sólin skein og það jafnt á alia, „ríka og fátæka unga og gamla“. En ég kærði mig kollóttan. Ég fór að vísu í bæinn, leit yfir mannfjöldann og skoðaðl blöðr urnar. Ég jafnvel kíkti til veð- urs. En ég hafði velþóknun á þessu öllu saman, Iét umstang- ið gott heita — varð mér úti um sólskýli og fékk mér blund. Og hvað skyldi mér og min- um sosum Iiggja á — ég á jú að erfa landið. Hinytri umgerð... Úr ræðu borgarstjóra í gær Geir Hallgrimsson, borgar- stjóri, flutti stutta en snjalla ræðu á útisamkomu Reykvik- inga á Arnarhóli í gærkvöldi. f upphafi ræðu sinnar bauð borg arstjórinn fslendinga frá Vest- urheimi velkomna til hátiðar- innar. Siðan minntist hann þess, sem hafði skilið Austur-fslend- inga og Vestur fslendinga, og kvaðst fagna heimsókn þeirra hingað. „Okkur þykir vænt um þessa heimsókn, og það er ekki laust við illa dulið stolt, þegar við sýnum löndum okkar vest- anhafs, hvað hefur gerzt á liðn- um áratugum i heimalandinu. En glöggt er gestsaugað, og þótt Vestur-íslendingum hætti jafnvel til að vera alltof ánægð- ir með það ,sem þeir sjá í gamia landinu, þá opnast augu okkar heimamanna fyrir ýmsu, sem hér er ábótavant, þegar við fylgjum gestum okkar um“. Þá sagði borgarstjórinn: „Þótt allt hafi þurft að byggja hér frá grunni á skömrnum tíma, þá er sá tfmi kominn, að við gerum okkur grein fyrir að engu mann virki er fulllokið, fyrr en það hefur verið tengt landslaginu og umhverfinu með frágangi lóðar og lands. Á þessu er víða mis- brestur, bæði við byggingar ein staklinga og hins opinbera. Þótt Geir Hallgrímsson borgarstjóri fjárskortur ráði um það nokkru er hann ekki einhlítur. Flestir gestir okkar eru sammála um, að innanstokks geti ekki spyrti legri og almennt öllu betur bú- in heimili en hér á fslandi. Þar hefur fjárskortur ekki staðið fyrir þrifum, en utanstokks er víða aðra sögu að segja, þar sem ekkert er gert til fegrunar þótt lóðin utanhúss heyri heim ilinu til ,engu síður en það, sem mnan veggja er. Viðurkennt skal fúslega að sameiginleg stjóm borgarbúa, Reykjavíkurborg ætti hér að ganga á undan með góðu for- dæmi, bæði með frágangi lóða opinberra bygginga, opinna svæða og einkum fullnaðarfrá- gangi gatna. Nú þegar langt er komið að gera Reykjavík að reyklausri borg, einmitt í krafti þess reyks, sem borgin dregur nafn sitt af, er tími til kominn að gera Reykjavík einnig að ryklausri borg. Slíkt verður ekki gert nema fyrir sameiginlega fjármuni og átak borgaranna, og takmarkið er ekki sett of hátt, — að inn- an áratugs, fyrir ellefuhundruð ára afmæli Reykjavíkur og ís- landsbyggðar, verði því náð. Hin ytri umgerð, sem við sköp- um okkur, hlýtur alltaf að end- urspegla það, sem hið innra með okkur býr. Líkfundur Lík Björns Braga Magnússonar rak nýlega á Akranesi og var það flutt til Reykjavíkur. Hafa þá fund izt lík beggja ungu mannanna, er hurfu frá Reykjavík sömu nótt fyrir nokkrum vikum. Hinn mað- urinn var Jón Björnsson. Níu manns slasasi Nokkur umferðarslys urðu í Reykjavfk og næsta nágrenni um helgina, þar af urðu tvö umferðar- óhöpp á þjóðvegum út frá Reykja- vik á sunnudaginn, þar sem sam- tals sex manns slösuðust. Fyrsta óhappið var tilkynnt Reykjavíkurlögreglunni klukkan rúmlega 3 e. h. Það hafði orðið á Þingvallaveginum móts við Stíflis- dal. Bifreið var að taka fram úr annarri, en hefur annað hvort lent í lausamöl eða farið of langt út á vegbrúnina, því hún valt og þrennt sem í henni var, ungur drengur og tveir kvenmenn, slösuðust og voru öll flutt í sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Ekkert hinna slösuðu var talið alvarlega meitt. Hitt slysið varð um kl. hálf tlu á sunnudagskvöldið á Hólmsárbrú við Gunnarsholt. Hafði ökumaður- inn ekki náð brúnni, en lenti á Framh. á bls. 5 stúdent frá Flateyri. ísafirði. I Miðdegisblundur Þriðjudagur 18. júhí 1963. 10 ölvaðir við akstur Mikil ölvun var á götum Keyjavíkur í gærkveidi og nótt og aliar geymslur lögreglunnar fullar. Ekki hafði samt nein staðar komið til neinna óspekta né á- taka og lögregian telur ölvun ekki hafa verið mikið meiri held ur en almennt hefur gerzt und- anfarið um helgar. Um þessa helgi voru 10 öku- menn teknir fyrir ölvun Fjögur duuðuslys Um helgtna og í lok sfðustu viku urðu fjögur dauðaslys úti á landi. Sjómaður og stúdent drukknuðu á Súgandafirði, bóndi varð undir dráttarvél norður á Skaga og barn drukkn- aði í kælivatnsþró á Akranesi. Tveir ungir menn drukkna. Það sviplega slys varð um kl. 2 aðfaranótt laugardagsins að tveir menn drukknuðu utarlega í höfnipni við Suðureyri í Súg- andafirði. Tildrög þessa voru að ungur piltur frá ísafirði Þórir Gests- son, er var staddur þarna, fór út á fleka, er legið hafði f fjör- unni, og rak hann síðan á flek- anum út með landi því að mik- ill straumur var og aðeins kui út fjörðinn. Var hann kominn á móts við brimbrjótinn, eða hafnargarðinn rétt fyrir utan kauptúnið, er annar ungur maður, Sigurður Guðmundsson, stúdent frá Flateyri, sem hefur verið að vinnu á Suðureyri f sumar, varð var við flekann á reki. Hljóp hann út á brimbrjótinn Þór til hjálpar. Álitið er að maðurinn á flek- anum hafi annað hvort dottið af honum eða ætlað að reyna að komast upp á hafnargarðinn og ekki tekizt, en Sigurður stungið sér til sunds til að reyna að bjarga honum. En hann hafði ekki afl til að halda Þóri á flóti. Jónas Sigurðsson, verka- maður á Suðureyri, sá nú að eitthvað alvarlegt var að gerast þama. Hann vakti upp menn og fóm þeir strax á báti á slysstað- inn. Var Sigurður þar á floti og lífsmark með honum en Þór- ir sást hvergi. Farið var með Sigurð f land og náð í lækni sem strax kom og hóf þegar lífgunaraðgerðir en þær bám ekki árangur. Föt Sigurðar Framhald á bis. 5. Síld til l’áscYíkur Húsavík í morgun. Fyrstu síldinni sem til Húsavfkur berst á þessu sumri var landað bér f fyrradag. Það var v.b. Héðinn sem land- »ði 200 tunnum og fór aflinn ýmist frystingu eða salt. Tveir bátar frá Húsavfk hafa undanfarið stundað ufsaveiðar út af Skjálfanda og fengið þar dágóð- án afla, einkum í grennd við Flat- ey. Annar þessara báta, Andvari, kom inn til Húsavíkur í morgun með 26—27 lestir. Ufsinn er yfirleitt fremur smár og fer það smæsta í bræðslu, en hitt til vinnslu í frystihúsi. Leit var gerð að áfengi á tveim bifreiðastöðvum á sunnudagskvöld- ið og fannst áfengi í 4 bifreiðum. Var það gert upptækt, en mál bif- reiðastjóranna kært til sakadómara embættisins. Alls fundust 9 flöskur í þessum fjómm bifreiðum. í einni bifreið- nna fundust 4 flöskur, 3 í annarri og síðan sín hvor flaskan á tveim bílum. Lögreglan taldi sig hafa rök- studdan grun um að hjá einum þessara leigubílstjóra myndi meira að hafa ef betur væri leitað. Fékk hún því úrskurð hjá fulltrúa saka- dómaraembættisins um leyfi til húsleitar hjá viðkomandi manni. Húsleitin bar þann árangur að þar fundust 14 heilflöskur af brennivfni, 1 hálfflaska af smygl- uðu whiskýi og 16 pakkar af smygluðum Chesterfield vindling- um. I gær var svo enn einn leigu- bílstjóri staðinn að ólöglegri sölu áfengis úr bifreið sinni

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.