Vísir - 20.06.1963, Page 1

Vísir - 20.06.1963, Page 1
 VISIB 53. árg. — Fimmtudagur 20. júní 1963. — 158. tbl. Heimavistarskóli að ulfljótsvatni Fræðsluráð Reykjavíkur hef- ur lagt til að komið verði upp á Úlfljótsvatni heimavistarskóla fyrir 80—100 nemendur í fyrsta og öðrum bekk gagnfræðastigs. Er skóla þessum ætlað að taka við af n. m. k. nokkrum hluta þess fjölmenna hóps reykvískra unglinga, sem árlega leitar eftir skólavist í héraðsskólunum, en án árangurs vegna þrengsla í þeim skólum. Stórstúk- an vill selja Stórstúkan hefur boðið borgar- sjóði til kaups húsið Fríkirkjuveg 11, sem nú stendur autt. eftir að Sakadómur Reykjavíkur fluttist í Borgartún 7. Borgarráð fjallaði um tilboðið fyrir skömmu og ákvað að vísa því til athugunar borgarritara og borgarlögmanns. Þá hefur fræðsluráð einnig lagt til að komið verði upp tveim heimavistarskólum, öðr- um fyrir 12—16 drengi á aldr- inum 7—15 ára og hinum fyrir jafnmargar stúlkur, einnig á aldrinum 7—15 ára. Hlutverk drengjaskólans er „að vera upp- eldisheimili fyrir drengi með alldjúpstæðar truflanir á tilfinn- ingalífi og skapgerð, sem þó er talið líklegt að megi ráða nokkra bót á f sérhæfðu um- hverfi undir handleiðslu sér- menntaðs starfsliðs". Stúlknaskólinn á að vera uppeldisheimili fyrir stúlkur, sem búa við ófullnægjandi heim ilisaðstæður og aðbúð, sýna af- brigðilega hegðun í heimili og skóla. Loks leggur fræðsluráð til að rekinn verði hliðstæður skóli fyr ir 24—28 drengi á aldrinum 7— 15 ára, en sá skóli hefur verið starfræktur nokkur undanfarin ár. Hinir skólarnir eiga sér ekki hliðstæðu sér. Tillögurnar munu koma fyr- ir borgarráð einhvern tfma á næstunni. Ekki er ósennilegt að þær verði ræddar á borgarstjórn arfundi í kvöld, en þar verður fundargerð fræðsluráðs um þetta mál lögð fram. Hvað á ég að borga? Stöðugur straumur af fólki lá um norðurdyrnar á gamla Iðnskólahúsinu í morgun. Margir gengu þar um með eftirvæntingarsvip. Skattskráin lá frammi. Stöðugur straumur fólks lá um norðurdyr gamla Iðnskóla- hússins við Vonarstræti í morg un. Margir voru með eftirvænt- ingarsvip. Sumir komu út með ánægjusvip, aðrir hristu haus- inn. En allir voru hugsandi. Þeir voru nefnilega að fá skattana og útsvörín. Skattskráin liggur þama frammi svo og í Skatt- stofunni f Alþýðuhúsinu. Fimm starfsmenn flettu upp f skattskránni og gáfu forvitn- um upplýsingarnar, sem beðið var um. Stórum og þrekvöxnum verkamanni fannst nóg um hvað afgreiðslan gengi seint, og talaði eitthvað um „vitlausa menn“ f því sambandi. Síðan dró hann upp nýtt skipulag á afgreiðslunni. Háskólastúdent kom út úr röð inni með greiðslurnar á miða. •— Sjáið þið hvað námsmaður inn fær? Fjörutíu þúsund sam- tals og litlu betur. — Og þú hlýtur að hafa haft miklar tekjur?. Hann anzaði því ekki. — Þú vinnur svo mikið, sögð um við. — Þetta er áætlað á mig. Ég Framh. á bls. 5 SKIPTIN6 CNSKA LÁNS- INSHCFUR VCRID ÁKVCÐIN Vísir hefir nú aflað sér upplýsinga, sem margir hafa beðið eftir, um skiptingu enska fram- kvæmdalánsins milli ein stakra framkvæmda og fyrirtækja. Það nemur í heild 230 milljónum íslenzkra króna. Þar af fara 120 milljónir til raf orkumála, 50 milljónir ganga til hafnarframkvæmda og hefir 40 milljónum verið úthlutað, en 10 eru geymdar til næsta árs, 50 milljónir fara til uppbygg- ingar fiskiðnaðarins í iandinu, og hefir 41 milljón króna af þeirri upphæð verið skipt milli sfldarverksmiðja, en 9 milljón- um er enn óráðstafað. Loks fara 10 milljónir til iðnaðar, en þá upphæð fá Iðngarðar h.f. að láni til þess að byggja fyrir iðn aðarhverfi í Sogamýrinni. Mun Ián þetta verða mikil örvun at- vinnulífinu á næstu árum. Hér fer á eftir yfirlit um skiptingu framkvæmdaiánsins í smærri atriðum: Raforkumál: Þær 120 milljónir af enska láninu ,sem ákveðið hefir verið að verja til raforkumála, skipt- ast þannig milli framkvæmda: 10 millj. kr. verður varið til stækkunar írafossstöðvar við Sog og 6 millj. til virkunarrann sókna á þessu ári. 20 millj. kr. verður varið til bygigngarframkvæmda við næstu stórvirkjun fyrir Suðvest- urland ,en ekki er fullráðið enn- jjá f hvaða stórvirkjun verður fyrst ráðizt. 44 milljónir renna til raforku- framkvæmda á þessu ári, sam- kvæmt 10 ára áætluninni um heildarrafvæðingu landsins. Loks renna 40 millj. kr. til framkvæmda, virkjunarrann- sókna og rafvæðingar, sem unn ið hefir verið að i vetur og seinni hluta árs 1962. ^ Til fiskiðnaðarins Af framkvæmdaláninu enska ganga 50 milljónir til fiskiðn- aðar. Úthlutað hefur verið 41 milljón til síidarverksmiðja, sem hér segir. (Tölurnar eru í millj. króna): Síldarverksmiðjur ríkisins 8,5, Rauðka, Siglufirði, 3,0, Hrað- frystistöð Ólafsfjarðar 1,0, Síld- arbræðslan h/f, Dalvík, 3,0, Kveldúlfur, Hjalteyri, 3,0, Sand- vík, Bakkafirði, 1,0, Síldar- og fiskimjölsverksm., Borgarfirðl eystra, 2,0, Hraðfrystihús Eski- Framhald á bls. 5 250 þús. tunnur Síldarútvegsnefnd hefur sam- ið um sölu á 250 þúsund tunn- um af saltsíld til Svíþjóðar, Finnlands, Bandaríkjanna og Vestur-Þýzkalands. Samningum er ekki lokið. M. a. er eftir að semja endanlega við Sovétríkin og jafnvel Israel og samningar hafa verið gerðir við kaupendur í Danmörku og Noregi, en magn ið ekki ákveðið ennþá. Hér er eingöngu um Norður- lands- og Austurlandssíld að ræða. Cóð laxveiði í flestum ám — Veiði hefst í síðustu án- um í dag og á morgun, en ekki er hægt að segja annað en að veiði hafi gengið vel í flestum þeim ám, þar sem veiði er hafin, að Elliðaánum undanskildum, sagði Þór Guðjónsson, veiðimála stjóri i stuttu samtali við Visi i morgun. Lélegastar hafa Elliðaárnar verið miðað við fjölda veiddra laxa. Á sama tíma í fyrra, höfðu verið dregnir þar á land alls 36 laxar, en nú hafa aðeins 7 laxar veiðzt í Elliðaánum. Hef- ur það því þótt stórtíðindum sæta, ef lax hefur veiðzt í Ell- iðaánum að undanförnu. Veiði I Norðurá hófst 1. júni og samkvæmt síðustu tölum er komið hafa til Veiðimálastjóra hafði veiðzt 51 lax þar, en á sama tímaií fyrra 59. Veiði hef- Framh. á bls. 5

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.