Vísir - 22.06.1963, Síða 3

Vísir - 22.06.1963, Síða 3
VÍSIR . Laugardagur 22. jnní 1963. 3 ■ynð íslendingar höfum hingað til sioppið við þau ósköp að gegna herþjónustu og þær skyld- ur sem þeirri þjónustu fylgir. Af þeirri ástæðu má sennilega rekja það agaleysi. sem hér er ríkjandi og einkennandi er fyrir íslend- inga, og af þeirri ástæðu má einnig telja skort okkar og kunn- áttuleysi f meðhöndiun skotvopna stafa. Því er að Sjálfsögðu svo farið að þrátt fyrir „herþjónustuleysi", eru menn hér á landi ekki algjör- lega gersneyddir áhuganum á skotvopnum, og þvl er það svo, að byssur, riflar og önnur skot- vopn eru í eigu ailmargra íslend- inga, f það minnsta Reykvíkinga. Eru þau þá jafnan notuð tii þeirra ágætu þarfa, sem kaliast á „skytterf" á fagmáli, og felst f því að skjóta fugla á öræfum og f óbyggðum. Er þetta vinsælt sport og skemmtilegt. A hugasamir skotmenn hafa stofanð með sér félag, Skot- féiag Reykjavfkur, og eru sem slfk ir aðilar að Iþróttab. Reykjavík- ur. Iðkan þessi telst því sem fþrótt, þótt vissulega fari ekki mik ið fyrir fréttum af keppnum í þess ari íþróttagrein á íþróttasíðum dagblaðanna. Skotfélagið hefur þó með sér æfingar á vetuma og er æft reglulega að Hálogalandi, þótt aðbúnaður þar sé ekki sem fuii- komnastur til slíkra æfinga, Efnt er þá til skotkeppna og móta. Það bar til tíðinda í vetur, að kona, Edda Thorlacius, vann til verðlauna í einni af keppnum þess um og mun þaö vera f fyrsta skipti, sem fslenzk kona hlýtur skotverðlaun. Hún er einn- ig fyrsta kpnan sem hefur náð 100 stigum á æfingu. gkotfélagið hefur nýlega Iokið Vetrarstarfsemi sinni, eða um mánaðarmótin maf/júnf. Var þá haidið hið áriega vormót. í vorkeppninni er keppt með cal. 22 markrifflum á 75 feta færi. Keppt var f þremur flokkum: meistaraflokki, fyrsta flokki og öðmm flokki, í ferns konar stell ingum, liggjandi, sitjandi, á hné og standandi. í þetta skipti kepptu aðeins tveir f meistaraflokki, enda þarf til þess að komast f þann flokk að skjóta á 10 skffur f röð og ná a.m.k. 98 stigum af 100 möguleg- um f liggjandi steliingu. Sigraði Valdimar Magnússon í meistaraflokki og hiaut að verð- launum umferðarstyttuna Skot- manninn sem Niels Jörgensen, kaupmaður hefur gefið félaginu. Úrslit vorkeppninnar f einstökum flokkum. Meistaraflokkur. 1. Valdimar Magnússon 2. Sverrir Magnússon. 1. Flokkur. 1. Leo Schmidt 2. Egill J. Stardal 3. Edda Thoriacius 2. Flokkur. 1. Gfsli Magnússon 2. Jóh. Christensen 3. Karl Oisen JXinn 31. mai fór fram Viktors- keppnin en f henni hefur ver- ið keppt um mjög fallegan grip, rennda líkingu af riffilskothylki úr harðvið sem Viktor Hansen hef ur smíðað og gefið félaginu. Keppt í sömu stellingum sem á vormótinu og sigraði þar cinnig Vaidimar Magnússon. Hafði hann Skotmennimir taka sigti standandl. Verðlaun veitt Eddu Thoriacius, en hún er fyrsta konan, sem hlýtur verðlaun f skotkeppni hér á Iandi. SKOTIÐ A SKIFUNA Þetta er hópurinn, sem tók þátt f Viktorskeppninni. hlotið sigur tvisvar í röð f undan- farandi keppnum og vann nú grip inn í þriðja sinn og þar með til eignar. Valdimar var greinilega í mjög góöri þjálfun að þessu sinni Annað athyglisvert í þessari keppni var frammistaða Eddu Thorlacius, sem stóð sig í báðum keppnunum mjög vel og er hún án efa fyrsta fsienzka konan sem hlýtur skotverðlaun og fyrsta kon an f félaginu sem hefur náð 100 stigum á æfingu. Mótstjórar voru Njörður Snæholm, Ingólfur B. Guðmundsson og Bjarni R. Jóns- son en dómendur Eriing Edvald og Magnús Jósepsson. Að ioknu vormóti var haldinn skemmtiflud ur f Glaumbæ og þar afhenti Bjarni R. Jónsson sigurvegurun um verðlaunin. 1‘jtiæfingar á æfingasvæðinu upp í Leirárdal eru nú fyrir nokkm byrjaðar og er þæði æft með haglabyssum og rifflum. Nú eru nærri 220 skráðir meðlimir f félaginu og mikill áhugi ríkjandi fyrir vaxandi starfsemi þess. Húsnæðisvandræði em eitt helzta vandamál félagsins í dag. Félagið hefur undanfarin ár feng- ið afnot af íþróttahúsinu að Há- logalandi eitt kvöld f viku, en þar eru mjög takmörkuð skilyrði til æfinga vegna stærðar hússins. Féiagið hefur fyrir alllöngu feng ið loforð um aðsetur til æfinga í skálanum sem er undir stúkunni á íþróttasvæðinu í Laugardalnum, en það húsnæði hefur til þessa verið notað sem Iagergeymsla fyr ir Hitaveitu Reykjavíkur. Þar væri hægt að skjóta á 50 metra braut sem myndi gerbreyta öllum æf- ingaskilyrðum. Vonar félagið fast lega að úr þessu rætist í bráð. Ctjórn Skotfélags Reykjavfkur ^ er nú skipuð þessum mönn- um: . Egill Jónsson Stardal, form. Jóhannes Christensen, varaf. Edda Thorlacius, gjaldkeri Tryggvi Árnason, ritari Meðstjórnendur: Robert Schmidt Leo Schmidt Kari Olsen.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.