Vísir


Vísir - 25.06.1963, Qupperneq 7

Vísir - 25.06.1963, Qupperneq 7
VÍSIR . Þriðjudagur 25. júní 1963, 7 mBázá&mmmsM * I ; '.'■....81 \ '' • ■ IHgHI STYTTAN A KIRKJUSANDI Styttan, sem er af sjómanni á leið til skips, var nýlega reist á lóð fiskiðjuvers Júpiter h.f. og Marz h.f. á Kirkjusandi. Styttan sem er gerð af Jónasi Jakobssyni var afhjúpuð á sjómannadaginn. Stuttu síðar komu norrænir blaðamenn í heimsókn I fiskiðjuverið og þessi mynd þá tekin af þeim undir styttunni, ásamt Tryggva Ófeigssyni útgerðarmanni, sem stendur í miðjum hópnum, með hatt í hendi. □ Sigurjón ijörnsson sóBfræðingur: | J £2 □ Sumardvalir barna TVTú, þegar mikill fjöldi kaup- staðarbarna flykkist í sveit ina, er eklri fráleitt að minnast á eitt og annað í sambandi við sumardvöl kaupstaðarbarna. Því mun yfirleitt vera haldið fram, að sveitadvöl sé börnum holl á sumrin og hafi talsvert uppeldisgildi. Ég hygg að þetta sé mjög oft rétt, þó að auðvitað séu margar undantekningar frá þeirri reglu eins og öðrum. í sveitinni hafa börnin rniklu meiri athafnamöguleika en í bæj um, einkum Reykjavik. Þau kynnast nýjum vinnubrögðum og fá tækifæri til að sjá og skoða einn aðalatvinnuveg ís- lendinga, landbúnaðinn. Þau læra að umgangast húsdýr og er það mörgum kaupstaðarbörnum ekki lítil nýjung. En eigi dvölin að verða barninu til góðs, er höfuðatriðið að sjálfsögðu, að það fái vist á heimili, þar sem verið er gott við það, þar sem því er sýnd nærgætni og hlýja, og þar sem það er ekki látið vinna meira en samsvarar getu þess. Það er kannski þetta síð- astnefnda sem sumt sveitafólk á dálítið erfitt með að skilja. Kaupstaðarbörnin fara í sveitina beint úr skólunum. Við hinar löngu skólasetu hafa þau vanizt tiltölulega athafnaleysi og eru óvön líkamlegu erfiði. Þar af leiðandi þreytast þau fljótt og vinna sér miklu mun erfiðara en börn, sem eru í sveitinni allan ársins hring. Það er ekki alltaf að þrekleysi kaupstaðarbarn- anna sjáist svo mikið á þeim, á yfirborðinu getur það frekar Iýst sér sem eins konar stöðvun arleysi og flökt og jafnvel sem agaleysi. Og því er von að sveita fólki sjáist stundum yfir hina raunveruiegu orsök. En á miklu veltur, að húsbændurnir séu Jipr ir og skilningsríkir og gefi börn unum nægan tima til þess að átta sig og laga sig að. Ef allt er mei’i felldu verða þau orðin vel liðtæk eftir tvær til þrjár vikur gezti aldurinn fyrir börn að vera í sveit er vafalaust aldurinn 8—14, 15 ára. Og æski- legast er ao börnin geti dvalizt sem me't á sama bænum. Það er nokkurt vafamál, hvort rétt er að láta yngri börn en átta ára í sveit til vandalausra. Þó fer það rnikið eftir því hvernig barn ið er gert og hvernig húsbænd urnir eru. Það er talsvert álag á andlegt þrek barnsins að fara í fyrsta sinn frá foreldrum sínum til vandalausra og það reynir vissulega mikið á skilning og nærgætni húsbændanna. Ástæða er til að brýna þetta sérstak- lega fyrir foreldrum, því að trú legt er, að nokkuð sé svndgað gegn þessari reglu. Látið börnin ekki fara of ung í sveitina. Ef þið eigið 5, 6 eða 7 ára börn, sem ykkur fýsir mjög að koma í sveit, er ráðlegt að þið skoðið hug ykkar vandlega og spyrjið ykkur í fullri einlægni, hvort það er raunverulega hollustan fyrir barnið, sem ykkur er efst í huga, — eða hvort þyngri eru á □ □ □ metunum þau þægindi, sem því ° fylgir fyrir ykkur sjálf að losna □ við barnið. § Mér er kunnugt um, að ekki □ er sérlega mikill áhugi fyrir því, § hvorki hjá foreldrum né börn- □ um, að 14—15 ára unglingar ° séu í sveit á sumrin. Þarna er, □ held ég, um dálítið slæma villu § að ræða. Þetta er ranglátt gagn- □ var sveitafólkinu. Ef foreldrar □ telja sig geta ætlazt til þess af g vandalausum bændum og hús- □ freyjum, að þau sýni átta og g níu ára börnum alla þá rækt og □ umhyggjusemi, sem það ungum ° l börnum er nauðsynleg, finnst □ i mér sanngjarnt, að á móti komi § það, að húsbændurnir fái að □ að njóta vinnu barnanna, þegar § 1 þau eru orðin vel liðtæk. Gagn □ i vart börnunum er þetta einnig ° rangt. Bæði er að þau þurfa að □ skilja, að þau standa í nokkurri □ skuld við það vandalausa fólk, g sem hefur reynzt því vel, og □ eins hitt, að mjög er vafasamt g frá uppeldislegu sjónarmiði að □ taka börn burt frá störfum, áð- ° ur en þau hafa náð fullkomlega □ valdi á þeim. Margir unglingar g sem verið hafa í sveit munu t. □ d. minnast þess, hve fyrstu göng § urnar voru mikill sigur. Ekki er □ rétt að svipta börnin slíkulfi'-^ sigrum. Og enda þótt fyrirheit □ um fljóttekna peninga við aðra ° vinnu kunni að freista margra, □ er það foreldranna að hafa vit p fyrir unglingunum í þessum efn Q um sem öðrum. Grundvöllurinn § undir heilbrigðu sjálfstrausti og □ sjálfsmati er ekki að vinna sér q inn mikla peninga, heldur að □ finna að maður getur leyst vel □ af hendi þau verk, sem manni ° eru falin. Reyndar mun varla □ þörf mikilla brýninga hér, því að ° vandamálin eru víst ekki þann- □ ig, að of mikið af ungum börn ° um fari í sumardvöl á einkaheim □ ili en of lítið af unglingum, held § ur er vandinn sá, að með vax- □ andj barnafjölda er að verða § mjög erfitt að koma kaupstaðar- □ börnum fyrir. S 'VÁið sjáum fram á þá þróun, jjj að innan skamms verða □ sveitaheimilin ekki fær um að p taka við nema litlu broti af öll- □ um þeirn sæg kaupstaðarbarna, □ sem hollt væri að komast af mal g bikinu eða mölinni yfir sumar- □ tfmann. Hvað á þá að gera? ° Stefnan virðist koma eins og af □ sjálfu sér og hafa þegar verið “ tekin: Barnaheimili 1 sveit, ann- □ að hvort rekin af einstaklingum, g t. d. sveitafólkinu sjálfu, bæjar □ félögum, ríki eða ýmsum öðrum q aðiljum. Þessi þróun er vissu- lega óhjákvæmileg. Um hitt má □ fremur deila, hvort hún er æski g Ieg eða ekki. Það má þó ætla að □ við höfum nokkuð I hendi okk- ° ar, hvort vel tekst til eða ekki. □ Það fer nokkuð eftir því, hvort ® grundvallarsjónarmiðið er, að □ dvölin hafi uppeldisgildi eða ° hvort við nægjumst við að líta □ á sumardvölina sem eins konar § nýja tegund af fráfærum yfir □ færða á mannlífið. Um það efni langar mig til að □ rabba nokkuð I næsta þætti. STÓRAUKIN SALA SANNAR VINSÆLDIR VÖRUNNAR

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.