Vísir - 30.07.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 30.07.1963, Blaðsíða 1
53. árg. — Þnðjudagur 30. júlí 1963. — 172. tbl. Elliðaárnar: 25 laxar veiaa- ust sma daginn Óhætt er að segja, að laxveiðar hafi gengið yf- irleitt betur í sumar en í fyrrasumar, eftir þeim upplýsingum, sem veiði- málastofnuninni h a f a borizt, sagði veiðimála- ———------- .. -■—'-■■■ < Baden-Baden: Finnar unnu í fjórtándu umferð vann Finnland ísland 5—1 (83—69), Bretland vann Svíþjóð 5—1, Pólland vann Irland 6—0, Belgía vann Holiand 6—0, Frakkland vann Noreg 6 — 0, Spánn vann Líbanon 4—2, Ítalía vann Sviss 6—0, Þýzkaland vann Austurríki 6—0, Danmörk vann Egyptaland 4—2. Fyrir ísland spil- uðu Símon, Þorgeir, Hjalti og Ás- mundur. — Stefán. stjóri í stuttu viðtali við Vísi í morgun. Þrátt fyrir það að veður hafi verið fremur óhagstætt hér á Suðurlandi til laxveiða mestan hluta júlímánaðar, hafa góðar laxagöngur komið. Veiðimálastjóri kvað góðar líkur benda til þess, að ágúst- mánuður yrði bezti laxveiðimán- uðurinn f sumar. Veiðimálastjóra hafa ekki borizt gögn um veiðina s.l. viku f mörgum ám, en vitað er, að veiði f Ölfusá og- Þjórsá hefur verið góð. Sama er að segja um Norðurá. Þar hafðj verið dreg- <inn á land 25. júlí alls 531 lax, en á sama tfma í fyrra 502. Einnig hefur veiði í Laxá í Þing- eyjarsýslu verið mun betri í sumar. Af Elliðaánum eru þær frétt- ir, að veiði f þeim hefur gengið ágætlega að undanförnu. Vikan 22. til 28. júlí var bezta laxveiði vikan í Elliðaánum f fyrra, og er hún það einnig nú sem kom- ið er. Með rigningunum að undan- förnu hefur veiði í Elliðaánum giæðzt og hefur veiðin komizt upp f 25 laxa á dag. LEIT MEÐFRAM FLÓANUM í DAG Leitinni af piltunum tveimur, sem saknað er og talið er að farið hafi á trillubát út á flóann, verður hald- ið áfram f dag. Verður gengið með strönd flóans, frá Reykjavfk upp 'f Hvalfjörð og farið út f eyjamar. Vart varð ferða trillubátar kl. 5 aðfararnótt sunnudags, en þá er talið, að þeir félagar hafi farið f trilluferð. Hins vegar sást aðeins einn maður í trillunni. Leigubílstjór inn, sem ók þeim félögum um nótt- ina hefur gefið sig fram, og kveðst hann hafa ekið þeim niður á Grandagarð. Báðir eru þeir félagar vanir trillu- ferðum. Clannasigling og á- rekstur I höfninni í morgun var skipstjóri og 2 skipsmenn hans teknir fastir, öivaðir, eftir glannasigiingu inn- an hafnarinnar, sem endaði með þvf "ð þeir löskuðu 18 tonna bát, sem þeir voru á. Um kl. 6 í morgun urðu menn varir við 18 tonna vélbát frá Isafirði, sem var siglt á fullri ferð á hættulegan hátt innan hafnarinnar. Var bátnum stefnt á fullr; ferð að strandferðaskip inu Herðubreið, sem lá við bryggju. Rétt áður en komið var að skipinu, var báturinn settur á fulla ferð aftur á bak. Tókst bátsverjum að komast hjá á- rekstri við Herðubreið, en höfn- uðu hins vegar á bryggjunni og löskuðu stefni bátsins. Skipstjórinn reyndist ölvaður svo og skipsmenn hans tveir, þegar þeir voru handteknir. Voru þeir færðir f Síðumúla, tekin blóðprufa og sfðan í sjó- próf í morgun. Forseti dómsins er Þór Vilhjálmsson, borgardóm ari. Lögreglunni blöskrar háttalag drukkinna skipstjóra að undan- förnu og hefur hún látið svo ummælt að framvegis verði meira eftirlit haft til að reyna að koma í veg fyrir annað eins og átt hefur sér stað nú. SÍLD ÚR SUNNUTINDI S Þessi mynd var tekin fyrir honum í bræðslu hjá Síldarverk- ina tók fréttaritari Vísis, Ólaf- í skömmu af síldarbátnum Sunnu smiðjunum á Seyðisfirði. Mynd- ur Bjömsson. ) tindi, er verið var að landa úr Blciðið i dag Sfða 3 Á sýningu Kristfnar Jónsdóttur. — 4 Bridgemótið í Bad- en-Baden. — 7 Sigurjón Bjömsson ritar um uppeldis- mál. -v 7 Nýjar danskar bækur. — 9 Unglr athafna- menn: Davíð Sch. Thorsteinsson. mmaammammnmmmm Island leggur stærstan hluta þjóB- arteknanna til ibúíabygginga Fyrir skömmu var skýrt frá skýrslu bankastjóra norska Hús- næðisbankans, Johans Hoff- manns hér í blaðinu. I skýrsl- unni eru að auki merkllegar upp lýsingar um það hvaða lönd leggi stærstan hlut til íbúða- bygginga. I ljós kemur þegar það er athugað að Island fjár- festir meira í íbúðum, miðað við brúttó þjóðarframleiðslu, en nokkurt annað Iand. Er það at- hyglisverð staðreynd, einkum þegar þess er gætt að stundum heyrist það sagt að byggingar hér á Iandi séu litlar og afturför á því sviði. Tölumar um fjárfestinguna eru þessar: Island 8,2%,Sviss 7,0%, Ítalía 5,5%,FinnIand 5,4%, Vestur- Þýzkaland 5,3%, Svíþjóð 5,0%, Bandaríkin 5,0%, Frakkland 4,9%, HoIIand 4,8%, Belgfa 4,7%, Noregur 3,9%, Bretland 3,2% og Danmörk 3,0%. •i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.