Vísir


Vísir - 14.08.1963, Qupperneq 6

Vísir - 14.08.1963, Qupperneq 6
0 V1SIR . Miðvikudagur 14. ágúst 1963. VISIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. f Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vlsis. — Edda h.f. B/öð/’n aftur komin Þetta tölublað Vísis er fyrsta dagblaðið sem lands- menn fá í hendur eftir hálfs mánaðar verkfall blaða- manna. . í fyrsta sinn í sögu íslenzkra blaða hefir blaða- útgáfa fallið niður af þeirri orsök. Eins og greint er frá á forsíðu Vísis í dag náðust samningar milli samn- inganefndanna á fundi í morgun eftir næturlanga setu. Fysir nokkrum klukkustundum samþykkti síðan Blaða mannafélagið hina nýju samninga — og blaðaútgáfan er aftur hafin. Því munu margir vera fegnir, ekki síð- ur lesendurnir en blaðamennimir sjálfir. Þetta hlé sem á útgáfunni hefir orðið mun vafalaust hafa kennt mörg- um að meta gildi dagblaðanna. Þeim er margt fundið til foráttu, en þó er það svo að blöðin era snar þáttur í menningu þjóðarinnar og mikilvæg upplýsinga- og fræðslulind. Kauphækkun blaðamanna er 12,5%. Er það vel sambærilegt við það sem aðrar stéttir þjóðfélagsins hafa hlotið að undanfömu. Auk þessa er nú í fyrsta sinn samið um fasta greiðslu til blaðamanna fyrir eftir- vinnu. Enn eru blaðamenn stétt sem engan fastan vinnutíma hefir og engan hámarksvinnutíma, svo sem aðrar stéttir þjóðfélagsins. Stafar það af því hvert er eðli blaðamennskunnar. Fréttimar gerast jafnt á nóttu sem degi, og jafnt á virkum dögum sem helgum. En það er bæði eðlilegt og sanngjamt að blaðamönnum sé engu að síður greidd aukaþóknun fyrir störf sem unnin em utan venjulegs vinnudags almennings. Viðurkenn- ing á því sjónarmiði hefir nú fengizt. Er það mikilvægt skref í kjarabaráttu blaðamanastéttarinnar, og reyndar ekki annað en nokkur leiðrétting til samræmis við kjör þau sem aðrar stéttir þjóðfélagsins hafa þegar fengið. Dagblöðunum er mikilsvert að njóta sem hæfastra og beztra starfskrafta. Góð kjör eru forsenda þess að ungir og vel menntir menn leggi fyrir sig blaða- mennsku. Sú hagsbót, sem nú hefir fengizt, er þýðing- armikið skref í þá átt. Það á vonandi eftir að koma greinilega í Ijós síðar. Kjaradómur er grundvöllur Dómur Félagsdóms í verkfræðingadeilunni sýnir bezt hve misvitrar aðgjörðir forystu stéttarfélags verk- fræðinga hafa verið að undanfömu. Með því að stefna samgöngumálaráðherra fyrir hönd Vegagerðarinnar hugðist forystan hindra það að ríkið gæti ráðið til sín opinbera starfsmenn og greitt þeim laun á grundvelli Kjaradóms. Slík atlaga var í hæsta máta fávísleg og hvíldi ekki á neinum laga- rökum, eins og dómurinn bendir á. Kjaradómur hlýt- ur að vera grundvöllur launakjara ríkisstarfsmanna og vitanlega getur stéttarfélagið ekki meinað félögum sín- um að gerast opinberir starfsmenn ef þeir kjósa það. Tímabært var að öllum aðilum væru gerðar þessar staðreyndir Ijósar. $ ■ ■ 3 íþrótfir í blœðamfBnncBverkfallinu: Spenna í deiEdakeppninni Nýtt íslandsmet í hástökki Sænskar stúlkur í heimsókn Talsvert hefur verið um iþróttaviðburði undanfarna verkfallsdaga blaðamanna og munum við í stuttu máli geta þeirra helztu, en ekki er á- stæða til að rekja sögu þeirra náið. Knattspyrna I. deildar keppnin hefur að- eins boðið upp á 3 leiki að und- anförnu. Allsögulegir hafa leik- ir þessir orðið. Valur gerði jafntefli í útileik sínum í Keflavík, 2:2. Nokkru síðar vann Keflavík Akureyri fyrir norðan með 2:0 í spenn- andi og skemmtilegum leik, sem nýliðarnir í I. deild unnu rétt- mætt og er Akureyri þar með f stórkostlegri fallhættu, enda þótt þeir hafi verið með öll tromp á hendi sér fyrir nokkr- um vikum, en þá átti liðið ein- tóma heimaleiki eftir, sem vita- skuld á að vera mikið hagræði. Valur glataði síðustu voninni um bikarinn þetta sama kvöld, tapaði stórkostlega fyrir KR 2:7. KR lék mjög góðan leik, einn bezta leik sem íslenzkt lið hefur sýnt í sumar. Valsmenn voru aftur á móti án nokkurrar bardagagleði. KR, Akranes og Fram eru því ein eftir í barátt- unni um sigur, en annað hvort Akureyri eða Keflavík falla í 2. deild, sennilega Akureyri, en úr því sker leikur KR og Ak- ureyrar á Akureyri seint f þess- um mánuði. • í 2. deild er Breiðablik í úr- slitum úr a-riðli, en í b-riðli er keppni hnífjöfn. Eftir er leikur Þróttar og Isfirðinga, sem varð að fresta þar eð Isfirðingar voru lengur í ferðalagi til Fær- eyja en áætlað var. Fari svo að Þróttur vinni þennan leik (á morgun) eru 3 lið jöfn og verða að leika aftur Það eru Þróttur, Siglufjörður og Hafnarfjörður, en tapaði nýlega leik sfnum á Sigiufirði 2:4 (2:0 í hálfleik). • Bikarkeppni hófst fyrir helgi og var sannkölluð bikarstemn- ing yfir leikjunum. Úrslit urðu þau í fyrstu leikjunum að Akra- nes-b vann Val-b 2:0 og það þrátt fyrir að Valur væri með hinn snjalla og íturvaxna Al- bert Guðmundsson í sfnum röð- um, á ísafirði vann heimatiðið Breiðablik í jöfnum leik, sem gat farið hvernig sem var, en í Hafnarfirði gerðu heima- menn, „kandidatar" ásamt 3 öðrum um 1. deildarsæti, fyrir b-liði Fram, 2:2 og var leik- urinn mjög fjörlegur og jafn og var framlengdur. Leik Dfmons og Breiðabliks var aflýst, bæði félögin hætt að leika knatt- spymu fyrir áhorfendur. • I kvöld heldur bikarkeppnin áfram, KR-b og Þróttur-b leika á Melavelli. Frjólsíþróttir Talsvert hefur verið um að vera á frjálsíþróttasviðinu. Hæst ber ágætt met Jóns Þ. Ólafssonar á frjálsíþróttamóti f Noregi eftir „fíaskó'Mands- keppni við V-Norðmenn. Hann stökk 2.06 á erfiðum brautum. er rignt hafði á f 3 daga. „Lands keppnin" sjálf var einhver mesta háðung sem fslenzkir frjáls- fþróttamenn hafa orðið fyrir. Þessi hluti Noregs vann fslenzka landsliðið með 39 stiga mun! Undanfarna tvo daga hefur Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum farið fram og munum við skýra nánar frá því á morg un. Sænskar stúlkur frá GKIK hafa dvalið hér á vegum KR og keppt. Var mjög ánægjulegt að sjá stúlkurnar f keppni, enda mjög snjallar. Heimsókn þeirra hafði líka góð áhrif á íslenzkar frjálsfþróttakonur sem um þess ar mundir eru mjög að sækja sig. I handknattleik kepptu sænsk- ar stúlkur frá sama félagi, en Víkingur sá um móttöku flokks- ins. Kepptu stúlkumar marga leiki, unnu og töpuðu á vfxl en sýndu góða leiki. I blaðinu á morgun tökum við upp þráðinn aftur og munum sem fyrr skýra frá fþróttavið- burðunum kvöldið áður. Norræna sundkeppnin Um þennan glæsilega bikar er keppt í norrænu sundkeppnrnni, sem lýkur senn. Eignast íslendingar bikarinn? Það er undir þér komið. Syndum öll 200 metrana.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.