Vísir - 29.08.1963, Síða 3
V1S 1R . Fiinr.ií .’dagur 29. águst 1963,
....................................... IMI'III
3
HÚSIÐ er auðsjáanlega orðið
gamalt. Það er frekar dimmt,
og lágt til lofts. Umhverfið hef-
ur yfir sér einhvem annarleg-
an blæ, og þessar gömlu vélar,
grófir veggirnir og lyktin, minna
einna helzt á enska iðnbylting-
armynd. Einu sinni voru þær
nýjar, og vöktu þá aðdáun og
undrun, eins og arftakar þeirra
gera í dag. En nú er niður þeirra
þagnaður fyrir fullt og allt. —
Tækninni hefur fieygt fram, og
þær orðið úreltar.
Það var töluvert umstang og
nokkuð erfiði að vinna við þess-
ar gömlu vélar.
Þegar ullin hafði verið greidd
var hún fyrst látin í sápulútar-
kar. Síðan var hún látin í ullar
þvottakar, og vandlega skoluð
upp úr volgu vatni. Þá var hún
undin og sett í sltápa til þurrk-
unar.
Skáparnir, sem voru hitaðir
með hveravatni, urðu allt að 60
stiga heitir, og þar þornaði ull-
in á um það bil 12 tfmum. Það
þurfti mörg handtök, og margur
svitadropinn hefur fallið í þess-
ari gömlu verksmiðju. En nýjar
vélar taka við af þeim gömlu,
og þá er þeim gömlu fleygt.
★
Ef við göngum inn i næsta
sal, þá sjáum við vélarnar, sem
tekið hafa við. Þar er þungur
niður, hróp og köll, og allt ber
vott um annríki. Hér er hátt til
lofts og vitt til veggja. Salur-
inn er bjartur og allt er gljá-
fægt og hreint. Stórar vélasam-
stæður teygja sig eins og stór
skrímsli fram eftir gólfinu, og
vlnna af fullum krafti. Þær hafa
tekið við af gömlu vélunum i
litla salnum.
Það var Björn Þorláksson,
bóndi á Varmá í Mosfellssveit,
sem hóf byggingarframkvæmdir
við Álafoss veturinn 1894—95.
Hann fór til Noregs og keypti
þar tóvinnuvélar, sem settar
voru upp næsta vetur, og byrj-
aði ullarvinnslu þann 1. apríl
1896. Vélamar voru knúnar
vatnsorku frá Álafossstíflunni,
ullin þvegin up úr volgri ánni
og þurrkuð úti til að byrja með.
★
í apríl 1896 var við Álafoss
litið verksmiðjuhús úr steini og
lítið timburhús, þar sem starfs-
fólkið, innan við 10 manns, bjó.
En framkvæmdir hafa orðið
miklar og er risið lítið snoturt
þorp, þar sem stórar verksmiðju-
byggingar gnæfa upp úr. Verk-
smiðjan rekur ýmislegt, sem
starfsfólkinu er ómissandi, svo
sem mötuneyti, barnagæzlu,
sundlaug, böð, vélaverkstæði,
frystigeymslu, bifreiðaverkstæði
o. m. fl. Hús eru öll hituð með
hveravatni.
Verksmiðjan tekur við ullinni
beint frá bændunum, og full-
vinnur hana í margvíslega sölu-
vöru, svo sem trefla, teppi, á-
klæði, Ieista o. fl., og til þess
fóru á s.I. ári 160 tonn af ull,
en búizt er við að nú muni
framleiðslan tvöfaldast.
M Y N D I R:
Efsta mynd: Þetta eru nýju vél-
amar, sem teknar hafa verið í
notkun á Álafossi. Einn starfs-
mannanna stendur við þær.
í miðju: Verkstjórinn Guðjón
Hjartarson við einn gömlu þurrk
skápanna.
Neðst t. v.: Teppum pakkað inn
áður en þau fara á markaðinn.
Neðst t. h.: Hér stendur einn af
starfsmönnum Álafoss við aðra
gömlu ullarbvottayélina.
Gamli og nýi tím-
inn á ÁLAFOSSI