Vísir - 21.11.1963, Page 11
V1 SI R . Fimmtndagur 21. nóvember 1963.
11
Bazar
Félagið Sjálfsbjörg í Reykja-
vík: Munið bazarinn 8. desember.
Munum veitt móttaka á skrif-
stofu Sjálfsbjargar á Bræðraborg
arstíg 9, kl. 9-12 og 1-5 alla virka
daga. Laugardaga kl. 9-12.
Minningarspjöld Fundarhöld
Spáin gildir fyrir föstudag-
inn 22. nóvember.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Beztu vinirni-r eru þeir,
sem ekki kosta mann neitt pen-
ingalega eða á annan hátt.
Gerðu ekkert, sem þú kannt að
sjá eftir síðar meir.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Eyddu frístundum dagsins á ein
hverjum rólegum stöðum, þar
sem ekki er tekið mikið eftir
þér og þú getur notið fullrar
hvíldar. Forðastu dýrar skemmt
anir.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þér kann að verða nauð-
synlegt að standa með vini þín-
um en gegn fjölskyldu þinni,
þannig að andrúmsloftið verður
fremur þungbúið.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Svo virðist sem þú sér alveg að
ná settu marki, en þér kann að
verða nauðsynlegt að tala ekki
af þér, þannig að þú missir af
bátnum i þetta sinn.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Það væri skynsamlegra fyrir þig
að leiðrétta það, sem að undan-
förnu hefur afvega farið, heldur
en gefa loforð, sem þú getu-r
ekki staðið við.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Þeir Meyjarmerkingar, sem gert
hafa viðpigandi varúðarráðstaf-
anir, munu verða hæfari til að
mæta núverandi vandamálum
heldur en þeir, sem hafa sofið á
verðinum.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Einhverjar efasemdir, sem leita
á þig kunna að standa I vegi
fyrir því, að betri skilningur
geti ríkt milli þín og félaga
þinna.
Dreki-nn, 24. okt. til 22. nóv.:
Þú ættir ekki að hætta við þau
viðfangsefni, sem gefa góðan
arð af sér, þó að góðir vinir
þínir eða fjölskyldumeðlimir
hafi einhverjar tillögur I þær
áttir fram að færa.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þú ert nú undir áhrifum
hrifningar hjartans, og farirðu
eftir þeim, þá er ekki annað
að sjá en að það verði þér til
góðs. Það er á þínu valdi að
taka ákvarðanir.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Allt bendir til þess, að
margt snúist þér í vil núna, en
þú hefur einnig áhyggjur af
vissum vandamálum, sem enn
bíða úrlausnar.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Það er fátt, sem hugur
þinn ræður ekki við nú, þessa
dagana, en vera kann, að það
sé ekki til hagræðis fyrir pen-
ingapyngju þína. Forðastu til-
hneigingar til öfga.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Velgengni þín kynni að
verða þpss j^aldandi, að einþyer.^
'Skyldwr'’þér fælist f-rá þér sak-,ó
ir annarlegra tilfinninga sinna
í þinn garð.
Minningarspjöld Háteigskirkju
eru afgreidd hjá: Agústu Jóhann
esdóttur Flókagötu 35, Áslaugu
Sveinsdóttur Barmahlíð 28. Gróu
Guðjónsdóttur Stangarholti 8,
Guðrúnu Karlsdóttur Stigahlíð 4,
Sigríði Benónýsdóttur Barmahlíð
7. Ennfremur i bókabúðinni Hlíð
ar, Miklubraut 68.
BELLA
Æ"kulýðsfélag Laugarnessókn-
ar: Fundur í kirkjukjallaranum í
kvöld kl. 8,30. Fjölbreytt fundar-
efni. Séra Garðar Svavarsson.
Ymislegt
Pétur segðu nú þessa skemmti-
legu sögu. Þú veizt, þessa sem ég
eyðilegg alltaf fyrir þér.
Kalli
kón«-
unnn
Um leið og stýrimaðurinn kom
inn í búrið, brast hann f grát.
Ég vildi að ég hefði aldrei orðið
sjómaður snökti hann. Þá hefði
ég setið rólegur og öruggur heima
í Mudanooze, í stað þess að híma
hér eins og api í búri. Ææóó.
Tommi reyndi eftir beztu getu
að hugga hann, en það gekk
ósköp lítið. Líbertínus sneri sér
aftur á móti að Kalla, öskuvond-
ur. Af hverju gerið þér ekki eitt-
hvað, spurði hann reiðilega. Þegn
ar eiga að verja konung sinn.
Kóngur, hah, sagði Kalli með fyr
irlitningu. Þér gerðuð yður sjálf
ur að kóngi á þessari eyju, en
áður en það skeði voruð þér ó-
sköp venjulegur farþegi á skipi
mínu, og óskuðuð eftir að verða
sjómaður. Þér gátuð ekki stýrt,
þér gátuð ekki búið til mat, en
þér gátuð strandað mínum góða
Krák, á andstyggilegu sandrifi.
Gallinn er sá, svaraði Libertínus,
Þetta er allt saman yður að kenna
að þeir vita ekki hver ég er.
Kalli yppti öxlum. Gott og vel, ég
skal segja þeim það, en ég býst
ekki við að það geri mikið gagn.
Svo hrópaði hann, að hann vildi
tala við kónginn.
R
I
P
K
I
R
e
Y
Ég verð að hafa Desmond með
mér, segir Rip. Ég fer aldrei á
sjóræningjaveiðar án þess að hafa
þjóninn minn með. Auðvitað, svar
ar Júlía, það er ekki nema sjálf-
sagt. Ef ráðizt verður um borð í
skipið, þá getur hann verndað
þernuna mína Þér sjáið það herra
Kirby, hversu hrædd ég er við
þennan Senor Scorpion yðar. Ég
vona að þér getið alltaf talað um
hann í svona léttum tón svarar
Rip henni. Hann veit sem er að
það er þýðingarlaust fyrir hann
að reyna að koma vitinu fyrir
hana eða hinn þrjózka föður
hennar.
Lltli ferðaklúbburlnn hafði
myndakvöld fyrir skömmu í Golf
skálanum, við mjög góðar undir-
tektir. Sýndar voru kvikmyndir
úr ferðum klúbsins, sungið, farið
f Ieiki og síðan dansað. Mjög
góð þátttaka var í ferðum klúbbs
ins síðastliðið sumar, en betur má
ef du*;a skal.
Kiúbburirm hefur á stefnuskrá
sinni að ferðast og skemmta sér
á heilbrigðan hátt og hefur þetta
tekizt með eindæmum vel. 1 at-
hugun er hvort klúbbféiagar og
annað unet fólk vilji koma sam-
an svo sem einu simti f mánuði
til þess að stytta sér stundir við
ieik og dans, reynt verður að
vanda til þessara kvöldstunda eft
ir föngum.
Það er ekki of seint að skrifa
sig á lista, en það eru um það
bil 50 ungmenni sem skrifuðu sig
á myndakvöldinu.
Þeir, sem taka vilja þátt í kvöid
vökum þessum, sendi nafn sitt
og símanúmer fyrir 25. nóvem-
ber á afgreiðslu blaðsins merkt
Litli ferðaklúbburinn. Þvf aðeins
verður hægt að hafa þessar kvöld
vökur að nóg þátttaka sé fyrir
hendi. Ungt fólk, sýnum að við
getum skemmt okkur án þess að
hafa vín með höndum.
Ef einhver ágóði verður af
kvöldvökum þessum, verður þvf
varið til ferðalaga næsta sumar.
Litli ferðaklúbburinn er í þann
veginn að gefa út félagsskírteinl
og verður framvegis lægra ferða-
gjald fyrir félaga en utanféiags-
Eftirfarandi áletrun stendur
yfir barnum í einum pipar-
sveinablúbb New York-borgar:
„Munið að hjónabandið gef-
ur karlmanninum aðeins tæki-
feeri til að komast að þvf hvers
konar eiginmann konan hans
hefði kosiö“.
*
Nokkru fyrir andlát frönsku
vfsnasöngkonunnar Edlth Piaf
voru kvikmyndaframieiðend-
ur í Hollywood farni rað huga
að því aö gera kvlkmynd um
hið ævintýralega en jafnframt
sorglega líf hennar.
En handrltið var látið bíða,
því að ókleift reyndist að
finna þá leikkonu sem gæti
tekið að sér hlutverkið — og
söngkonan sjálf, gat af mörg-
um ástæðum ekki leiklð það.
Nú, eftir andlát Edith Piaf,
hafa þeir f Hollywood ákveðið
að Iáta verða af þessu — og
eftir margar og miklar reynslu
kvikmyndir halda þeir að þeir
séu búnir að finna réttu leik-
konuna.
Hún þarf að geta litið veiklu
lega út, en jafnframt verið
falleg. Hún þarf að hafa skap-
gerð Edlth og jafnframt sung-
ið vfsur hennar.
En hver er það, sem samein
ar allt þetta? — Jú, það er
Audery Hepburn. Málið er
þegar komið svo langt að und
irrltun kvikmyndasamningsins
er ^kki álltin langt undan.
*
1 skozkri bók um Napóleon
fannst þessi setning:
„Napoleon var alveg áreið-
anlega af skozku bergi brot-
inn, þvf að jafnvel f blóðug-
ustu bardögum stakk hann
hendinni inn fyrir skyrtuna og
hélt þar með krampataki um
seðlaveskið sitt“.