Vísir - 23.12.1963, Side 2

Vísir - 23.12.1963, Side 2
V í SIR . Mánudagur 23. desember 1963. UNDIR FÖNN 12 HÝJAR BÆKUR endurminningar Ragnhildar Jónasdóttur, skráðar af Jónasi Ámasyni. Hugljúf saga ástríkrar konu, sem ann hrjóstrugu og stórbrotnu umhverfi sínu af þeirri hugarhlýju og alúð, að ósvikna aðdáun vekur. Bækur Jónasar hafa jafnan verið í röð vinsælustu bóka á hverju ári. ÞÉR AÐ SEGJA FRÁ Æ6ISÚTCÁFUNNI veraldarsaga Péturs Hoffmanns Salómonssonar. Stefán Jóns- son fréttamaður skráði. Þetta er bókin, sem ungir og aldnir hafa ánægju af að lesa, um svaðilfarir og berserksgang víkingsins íslenzka, sem hvergi hopaði, þótt við harðsnúið lið væri að etja — en hlóð valkesti. í BJÖRTU BÁLI er frásögn Guðmundar Karlssonar, biaðamanns og fyrmm slökkviliðsmanns, af brananum mikla í Reykjavík, árið 1915. Bókin er f stóru broti og prýdd fjölda mynda frá atburðinum og af mönnum þeim, sem helzt koma við þessa sögu af mesta eldsvoða á íslandi. — Guðmundur tileinkar þessa fallegu bók minningu föður síns, Karls Ó. Bjarnasonar, vara- slökkviliðsstjóra. DÆTUR FJALLKONUNNAR nefnist bók eftir skáldkonuna Hugrúnu og hefur að geyma æviminningar tveggja kvenna, Sigríðar Sveinsdóttur, sem hefur lagt gjörva hönd á margt og er listfeng kona, m. a. hefur hún smíðað hin fegurstu líkön af ýmsum munum og fleira mætti telja. Saga hinnar konunnar. Önnu Margrétar, er baráttusaga fátækrar alþýðukonu, eins og hún gerðist hörðust um og upp úr síðustu aldamótum. UNDIR GARÐSKAGAVITA eftir Gunnar M. Magnúss. Þessi bók hefur að geyma sögu byggðarlaganna tveggja. Garðs og Leiru, allt frá landnáms- öld. I þessari miklu bók Gunnars M. Magnúss er að finna nokkra skýringu á því þreki og þeirri atorku, sem gerði þeim Suðurnesjamönnum fært að sækja sjóinn jafn fast og um var kveðið. ALLTAF MÁ FÁ ANNAÐ SKIP heitir fyrsta bók Sigurðar Hreiðars, blaðamanns, og geymir farmennskuminningar Rikka f Höfnum, sem segir sína sjó- arasögu af því æðruleysi og þeirri hreinskilni, sem slikum frásögnum hæfir bezt, og Sigurður Hreiðar hefur fært hana í skemmtilegan búning. EINFALDIR OG TVÖFALDIR ný bók eftir Gísla J. Ástþórsson, safn smásagna í léttum dúr með lítilsháttar ívafi af alvöru, sem Gfsla lætur afar vel. Höfundur hefur sjálfur gert nokkrar spaugilegar teikn- ingar sem prýða bókina. Gísli J. Ástþórsson hefur öðlazt slíkan sess í hugskoti íslenzkra lesenda að mönnum hefur jafnan þótt liða of langt á milli bóka hans. GENGIS KHAN hershöfðinginn ósigrandi eftir Harold Lamb, í þýðingu Giss- urar Ó. Erlingssonar. — Þessi ævisaga Mongólahöfðingjans mikla, sem hóf baráttu sína í örbirgð en lagði undir sig meginhluta Asíu og Evrópu, hefur verið þýdd á fjölda tungu- mála og hvarvetna þótt bæði merkileg, fróðleg og ákaflega skemmtileg aflestrar. TÖFRAR ÍSS OG AUÐNA eftir danska landkönnuðinn og ævintýramanninn Ebbe Munck, en Gissur O. Erlingsson þýddi. Formála að þessari bók skrifar Ejnar Mikkelsen skipherra, sá er Peter Freuchen dásamar sem mest í bókum sínum, enda fjallar bók þessi að mestu um mannraunir höfundar og félaga hans á auðnum Grænlands. ÁST OG ÖRLÖG asta úrval hókamarkafains BRIMGNÝR OG BOÐAFÖLL heitir bók sem Jónas St. Lúðvíksson hefur tekið saman um stórorustur á sjó og aðra hrikaleiki á höfunum. Segir þar frá mönnum, sem horfðust í augu við hættuna og brugð- ust ekki á hverju sem gekk. Skemmtilegasta og vandaí- Þetta er íslenzk skáldsaga eftir höfund, sem nefnir sig Jón Vagn Jónsson. Eins og nafnið bendir til er hér á ferðinni ástarsaga í hefðbundnum stil og gerist hún á dögum dönsku verzlananna. HJÚKRUNARNEMINN eftir Renée Shann er ein þeirra bóka, sem Gissur Ó. Erlinrs- son hefur þýtt fyrir Ægisútgáfuna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.