Vísir - 23.12.1963, Page 14

Vísir - 23.12.1963, Page 14
10 AUGLÝSING um takmörkun á umferð í Reykjavík þann 23. og 24. desember 1963. Ákveðið hefir verið að gera eftirfarandi ráðstafanir vegna mikillar umferðar mánu- daginn 23. og þriðjudaginn 24. desember. n.k.: 1. Einstefnuakstur: a. í Pósthússtræti frá Hafnarstræti til suðurs. b. Á Vatnsstíg frá Laugavegi til noröurs. c. Á Frakkastíg frá Hverfisgötu að Lind- argötu til norðurs. 2. Bifreiðastöður takmafkaðar: Bifreiðastöður verða takmarkaðar við xh klst. á Hverfisgötu frá Vatnsstíg að Snorrabraut frá Hverfisgötu að Njálsgötu, á Barónsstíg milli Skúlagötu og Berg- þórsgötu, Frakkastíg, Vitastíg, Klappar- stíg og Garðastræti norðan Túngötu. Þessi takmörkun gildir mánudaginn £}. desember og til hádegis þriðjudaginn 24. desember n.k. Ennfremur verða frekari takmarkanir en nú gilda settar um bif- reiðastöður á Laugavegi, í Bankastræti, Aðalstræti og Austurstræti, ef þörf krefur. 3. Takmörkun á umferð vörubifreiða: Umferð vörubifreiða, sem eru yfir 1 smá- lest að burðarmagni, og fólksbifreiða, 10 farþega og þar yfir, annarra^en strætis- vagna, er bönnuð á eftirtöldum götum: Laugavegi frá Höfðatúni í vestur, Banka- stræti, Austurstræti, Aðalstræti og Skóla vörðustíg , fyrir neðan Týsgötu. Enn fremur er ökukennsla bönnuð á sömu götum. Bannið gildir frá kl. 13 mánudag- inn 23. desember og til hádegis þriðjudag- inn 24. desember. Ferming og afferming er bönnuð við sömu götu á sama tíma, nema sérstaklega standi á, og þarf þá leyfi lögreglunnar til slíkrar undanþágu. i 4. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurg stræti, Aðalstræti og Hafnarstræti 23. desember, kl. 20—24. Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir forðist óþarfa akstur þar sem þrengsli eru og að þeir leggi bifreiðum sínum vel og gæti í hvívetna að trufla ekki eða tefja um- ferð. Þeim tilmælum er beint til gangandi veg- faranda, að þeir gæti varúðar í umferðinni, fylgi settum reglum og stuðli með því að öruggri og skipulagðri umferð. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 21. desember 1963. Sigurjón Sigurjónsson. Hann valdi rétt.... hann valdi........... NILFISK — heimsins beztu ryksugu ,.,. og allir eru ánægðir! Gíðir oreiðsluskilmálar. Sendum um allt land. Vegleg jólagjöf, - nylsöin og varanleg! I|(l|\|l|\ O. KORNERUP• HANSEN Sími 12606. - Suðurgötu lO, BLAÐSÖLUÉÖRN^ VISIR greiðir kr. 1,00 i sblulaun fyrir hvert selt blað Árrií Jónsson — Framhald af bls. 19. „Það vona ég, að komi fram í bókinni. „Reyfarinn" í sög- unni er mér auðvitað hálfgert aukaatriði. Hann er bara vel eða illa heppnuð tækni. Per- sónuleikarnir, viðbrögð þeirra og þróun finnst mér vera það, sem skiptir öllu máli. Ég veit vel, að þetta er ekki I sam- ræmi við nýjustu tízku í bók- menntum, samanber „nýi róm- aninn franski". ÞU mátt ekki gleyma, að ég er hálf-fimmtug- ur og enginn „avant-garde“- höfui^ur." „Mér skilst, að breyting sé á stíl þínum og tækni frá fyrri skáldsögu þinni, „Einum unni ég manninum" — — hverju svarar þú?“ „Kannski — — ég veit það ekki. Gamla bókin var í róman- tískum stíl. Stíllinn á nýju sög- unni er ósköp hversdagslegur, ekkert merkilegt við hann.“ „Finnst þér gaman að skrifa skáldsögur?" „Þvert á móti, en því verður ekki breytt.“ Eftir öll þessi greiðu svör skáldsöguhöfundarins, var hann spurður, hvort hann ætiaði ekki að halda áfram að skrifa. — ,,Nei, áreiðanlega ekki“, sagði hann, „ég lagði alla rithöfundardrauma á hill- una fyrir meira en áratug. Þe'r eru löngu rykfallnir og verða ckki látnir í hreinsun“. Oss þótti karlmannalega mælt og buðum góðar nætur. - s t g r. V í S IR . MánudagUr 23. desember 1963. Jól í Argyle — Framhald af bls. 17. Sunnudagaskólar kirknanna hér hafa líka mikinn viðbúnað fyrir jólaskemmtanir sínar, sem eru talsverður viðburður í bæjarlífinu síðustu dagana fyrir jólin. Jóla- skemmtanir þessar fara fram í kirkjunum sjálfum, og annast börnin þær að mestu eða öllu leyti undir leiðsögn sunnudaga- skólakennara sinna. Skiptast þar á helgileikir, einsöngvar, kór- söngvar, hljóðfæraleikur og upp- lestrar. Kostar þetta yfirleitt mikla vinnu og undirbúning. Okkur, sem hér erum hvort tveggja í senn gestir og heima- fólk, finnst, að forleikur jólanna hér sé bæði of langur og íburðar- mikill miðað við jólin sjálf, sem hér standa aðeins einn dag, 25. des. Aðfangadagur er hér á eng- an hátt helgur dagur. Þann dag eru verzlanir opnar eins lengi frameftir og venjulega, og veit- ingahús loka ekki fyrir en undir miðnætti. Annar jóladagur er heldur ekki neinn hátíðisdagur hér. Allar verzlanir og skrifstof- ur eru þá opnar, og engar guðs- þjónustur i kirkjum. ^fkomendur íslendinga og ann- arra Norðurlandabúa hafa þó ekki með öllu gleymt helgi að- fangadagskvölds, og enn er reynt að hafa eitthvert helgihald það kvöld á einstaka heimilum og í fáeinum kirkjum. Enn er það t.d. fastur siður á Brú, sem er önnur lútherska sveitakirkjan hér í byggðinni, að hafa aðaljólamess- una kl. 3 séðdegis á aðfangadag. í lúthersku kirkjunni okkar hér í Glenboro er aðaljólamessan kl. 10 á aðfangadagskvöld. Er sú mðssa með nokkuð sérstökum hætti. í lok messunnar eru raf- piagnsljósin í kirkjunni slökkt, en allir kirkjugestir kveikja á litlum kertum ,sem hver og einn er lát- inn hafa. 1 daufri birtunni frá kertaljósunum er slðan beðið sam an, presturinn blessar yfir söfn- uðinn, og allir syngja „Heims um ból“ (auðvitað á ensku). Er þetta hátíðleg stund og fögur. I þetta sinn á einnig að syngja hér I Glenboro hluta af jólahátíðar- söngvum séra Bjarna Þorsteins- sonar. Til hægðarauka fyrir fólk- ið þýddi ég íslenzka textann á ensku. Þetta verður því líklega í fyrsta sinn sem hátíðasöngvar séra Bjarna verða sungnir á enska tungu. Þessi viðleitni okkar Iútherskra til viðhalds helgi aðfangadags- kvölds er þó alls ekki illa séð hér um slóðir. Þar sem þetta er eina messan hér I bænum á aðfanga- dagskvöld, er kirkjan okkar venju lega troðfull af fólki, og er þá jafnan margt af fólki annarra safnaða. Jafnvel katólskir eru stundum gestir okkar vlð þetta tækifæri. Annars verð ég að segja eins og er, að okkur finnst sjálft jóla- haldið stórum óhátíðlegra hér en heima á Fróni. Heima er fólk ekki tiltakanlega kirkjursekið, nema á stórhátíðum. Hér kemur fólk til kirkju hvern sunnudag ár- ið um kring, ef það mögulega getur, en stórhátíðirnar verða hins vegar ekki eins stórar. j-joir örlagaríku atburðir, sem gerzt hafa nýl. hér 1 álfu, munu á vissan hátt setja svip sinn á jólin, ekki aðeins í Bandaríkj- unum, heldur einnig hér í Kan- ada. Morð Kennedy og allt er á eftir fór verkaði fyrst á fólk eins og hálfgert rothögg. En eftir á spyrja margir: „Hvernig stend- ur á, að annað eins og þetta get- ur gerzt hér í þessari álfu, álf- unni, sem hefur verið svo stolt af frelsishugsjónum sfnum og frið arást? Is something rotten in the state of Denmark, eins og Hamlet sagði? Vera má, að fleiri líti í eigin barm nú um þessi jól en áður, til að reyna að finna svar við þess um spurningum, hvort nokkuð sé t.d. hulið I okkar eigin barmi af þeim öflurn, sem myrða saklaus negrabörn og bana þeirh leiðtoga, sem vann að því, að allir hefðu jafnan rétt að lögum. Ef hin hálfvaknaða sjálfsgagnrýni finn- ur einhver af hinum réttu svör- um, má segja að fórnimar hafi ekki verið til einskis. „ Að minnsta kosti rni. Eetla, að hugir margra verði hljóðari nú um þessi jól en stundum fyrr, en bænirnar, sem upp stfga til föð- ur Ijósanna, heitari og einlægari. Við þrjú í lútherska prestshús- inu f Glenboro sendum öllum vin um og vandamönnum heima inni- legar óskir um gleðileg jól. Við óskum landi og þjóð gæfu og blessunar á komandi ári. Megi þessi hátíð kenna okkur öllum, hvar sem við erum, að ganga betur en fyrr veg hin" sanna friðar. Skrifað í Glenboro, 12. cjesember 1963. Kristján Róbertsson. DillTSCHE WEIHNACHTS- UHD NEUJAHRSGOTTESDIENSTE Katholischer Weihnachtsgottesdienst am 1. Weihnachtstag, dem 25. Dezember 1963, um 15,30 Uhr in der Christköfiiifiskirche, Lændabí, Steykjcsvík Die Gemeinschaftsmesse zelebriert Bischof Jóhannes Gunnars- son. Die Predigt halt Pater A. Mertens, der auch den Gottesdienst leitet. • ★ Evangelischer Weihnachts- und Neujahrsgottesdienst am Sonntag, dem. 29. Dezember 1963, um 14.00 Uhr in der Domkirche in Reykjavik. Die Weihpachts- und Neujahrsandacht hált Propst Sigurjón Gudjónsson von Saurbaer. Der Chor der Domkirche und die Gemeinde singen deutsche Weihnachtslieder. An der Orgel: Dr. Páll ísólfsson. ★ Die Gottesdienste werden nicht in Rundfunk ubertragen. Die Botschaft wilrde sich úber eine rege Beteiligung sehr freuen. Dr. C. H. Cassens Chargé d’affaires a.i.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.