Vísir - 30.04.1964, Blaðsíða 1
54. árg. - Fimmtudagur 30. apríl 1964. - 98. tbl.
Næturgist'mg og hópferð
útíSURTSíY
Ferðum út í Surtsey fjölgar verður í sjóinn hyggjast menn
nú mjög og er það nýjast að á stíga á land.
morgun, 1. mai ætlar starfsfólk í gærkvöldi luku 8 af 9 út-
Fiskiðjunnar, á 2. hundrað lendingum dvöl sinni í Surtsey,
manns, að nota frídaginn til að en þeir höfðu dvalizt þar heil-
fara út að eynni og ef gott an sólarhring og verið þar næt-
^<M^mmmmMm^^^^^^^^
ursakir. Bar þeim öllum saman
um, að dvölin í eynni að nætur
lagi hefði verið stðrkostleg en
gos var I gígnum nær allan tím
ann og glóandi hraun, sem rann
til sjávar.
Þegar Haraldur sótti þessa
næturvistarmenn út í Surtsey,
flutti hann þangað í leiðinni tvO~
Islendinga, sem hyggjast dvelja
þar í einn eða tvo daga til kvik
myndatöku. Hér var á ferðinni
Ósvaldur Knudsen sem frægur
varð m.a. fyrir hinar frábæru
myndir sínar af Öskjugosinu.
Hefur hann haft auga með Surti
síðan hann fór að bæra á sér og
hyggst gera kvikmynd um mynd
un eldfjallaeyjunnar.
Einn útlendinganna, sem
dvöldust í eynni ákvað að verða
þar eftir m.a. til þess að aðstoða
Osvald og stendur annað tjaldið
sem þeir reistu í Surtsey enn
og má því segja, að þetta tjald
sé fyrsta gistihúsið í Surtsey.
Ef veðurblíða helzt, má búast
við að æ fleiri haldi út I Surts
ey og veitir eigandi bátsins
Haralds góða þjónustu við flutn
ing á fólki út í eyna.
Myndir þessar voru teknar í Surtseyjarferð f gær. Vinstra megin útlendingarnir sem dvöldust í eynni, komnir um borð í Harald.
Hægra megin er verið að róa með Ósvald Knudsen í Surtsey.
VISIR
Visir kemur ekki út á morg-
un, þar sem ekki er unnið í
prentsmiðjunni 1. maí. Á Iaug-
ardaginn kemur blaðið út kl. 10
fyrir hádegi.
Ráðstöhnarfé trygginga-
félaganna tíl íbúBalána
Lagt hefur verið fram senn, að 25% af öðrum
á Alþingi stjórnarfrum- verðbréfa-og víxlakaup-
varp, sem nefnist lög<^_
um ávöxtun fjár trygg-
ingafélaga. — Segir þar
m. a., að 25% af ráðstöf-
unarfé tryggingasjóðs
líftrygginga skuli notuð
til kaupa á íbúðalána-
bréfum Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins. Enn
fremur geti félagsmála-
ráðherra ákveðið með
reglugerð fyrir eitt ár í
um f élaganna skuli varið
á sama hátt.
í greinargerð segir, að með
þessum ákvæðum svo og öðrum,
sem eru í frv., sé gert ráð fyrir,
að rikissjóður fái ráðstöfunar-
rétt á 20 millj. króna Iánsfé á
ári miðað við núverandi lána-
starfsemi félaganna, og þar af
sé fjórðungur frá líftryggingum.
1 fyrstu grein frv. er skýrt
frá til hvaða tryggingastarfsémi
lögin nái ekki, þ. e. almanna-
trygginga, lífeyrissjóða, atvinnu
leysistrygginga o. fl. í næstu
grein eru ákvæði um hvernig líf
tryggingar skuli ávaxtaðar, þ.
e. í ríkisskuldabréfum, í skulda-
bréfum með rlkisábyrgð, í bönk
um og sparisjóðum, í skuldabréf
um tryggðum með veði f hús-
eignum o. fl. í greinargerð segir
um þessa grein, að líftryggingar
tryggingafélaganna séu hliðstæð
Framh. á bls. 9.
Veiði- og fískiræktarfélag stofnað
um Elliðavatn ag vatnasvæði þess
Blaðið í dag
BIs. 3 Afmælisviðtal við
Jón Leifs.
4 Hátiðisdagur verka-
lýðsins 1. mai.
6 Siða Heimdallar.
7 Viðtal við listmálar-
ann Pétur Friðrik.
8 Kvikmyndin „Ævin-
týrið".
9 Grein Gunnars Thor-
oddsens f jármála-
ráðherra.
Bændur og aðrir eigendur jarða
umhverfis Elliðavatn og jarða, sem
liggja að þeim ám o • lækjum, sem
í það renna, héldu nýlega með sér
fund og stofnuðu Veiði- og fiski-
ræktarfélag. Meðal þessara aðila
er Reykjavíkurborg, sem á þarna
jarðir. Formaður félagsins var
kjörinn Hjörleifur Hjörleifsson,
skrifstofustjóri hjá Rafmagnsveit-
unni, en framkvæmdastjóri Einar
Sæmundsen, vörzlumaður Heið-
merkur.
Tilgangur þessa félagsskapar er
að friða vatnssvæði Elliðavatns,
stofna til silungsræktar í vatninu
og koma skipulagi á veiðina þar.
Félagsstofnúnin var undirbiiin í
samráði við veiðimálastjóra. Mikil
silungsveiði var áður í Elliðavatni,
og einnig laxveiði áður en Elliða-
árstiflan við vatnið var byggð. Sið
an hefir laxi ekki verið hleypt upp
í vatnið, og silungsveiðin þar er
mjög að ganga til þurrðar, vegna
þess að menn hafa veitt í vatninu
án mikils eftirlits.
Nú á þetta allt að breytast til
batnaðar, það er markmið hins
nýja félags, og verða seld veiði-
leyfi þarna í sumar og eftirlit jafn
framt aukið. Hugsanlegt væri síð-
ar að koma einnig upp laxaklaki
í Elliðavatni. Hólmsá og Suðurá
renna í Elliðavatn, og af bæjum á
vatnasvæði hess má nefna Vatns-
enda, Elliðavátn, Lögberg, Geitháls
og Gunnarshólma.
Illfært um Húsavík sökum snjóa
Stanzlaus hríð hefur
verið á Húsavík tvo síð-
ustu sólarhringana, og
orðið nær ófært um bæ-
inn, nema þær götur,
sem ruddar hafa verið.
Vegir allir í nágrenni
þorpsins eru illir yfir-
f erðar, og algerlega óf ær
ir litlum bílum.
Mikið kapp er lagt á
að halda opinni leiðinni
til Akureyrar, en Vaðla-
heiði er nú orðin mjög
þungfær.
Frs. á bls. 5.
i n*N