Vísir - 15.06.1964, Síða 6
6
V1S IR . Laugardagur 13. júni 1964.
Utgefandi: Blaðaútgáfan VTSIR
Ritstjóri: Gunnar G Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði.
I lausasölu 5 kr eint. - Sfmi II660 (5 línur)
Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f.
Stóryrkja er leiðin
Einn merkasti búnaðarvísindamaður landsins, dr.
Sturla Friðriksson, flutti nýlega erindi á Hellu, sem
hann nefndi „Stofnum til stóryrkju“. Það er alkunna,
að einna helzt stendur það íslenzkum landbúnaði fyr-
ir þrifum í dag, hve sumar jarðir eru litlar og illbýlar
og veldur það lélegri fjárhagsafkomu stéttarinnar. Dr. j
Sturla benti á framtíðarveg í þessum efnum. Hann
sýndi fram á, að á samfelldum ræktunarsvæðum má
stofna til stóryrkju og beita stórvirkum vélum á hag-
rænan hátt. Bændum er í lófa lagið að beita bústofni
sínum, geldneytum og sauðfé á ræktað land, en með
því má skapa milljónaaukningu í búfjárstofni lands-
manna. Kornyrkja og hraðþurrkun heys með vélum
eru líka miklir framtíðarmöguleikar íslenzkra bænda.
Þekking á þessum búskaparháttum er hér enn á byrj-
unarstigi og miklu meira fé þarf að verja til rannsókna
á þessu sviði. En til þess þarf að breyta hinum þröng-
sýna framsóknarhugsunarhætti sem of víða ríkir enn
í sveitunum, taka upp nýja stefnu og fara nýjar leiðir
til bættra lífskjara. Vísindin varða leiðina og styrkja
trúna á landið.
Stúdentarnir og framtíðin
í dag brautskráist stærsti stúdentahópurinn frá
Menntaskólanum í Reykjavík, 211 talsins. Og glaðir
stúdentar ganga út um dyr annarra menntaskóla lands-
ins síðasta sinni, með hvítar húfur á kollunum. í bjart-
sýni þessa unga fólks, menntun þess og starfsvilja
felst framtíðarfjársjóður íslenzku þjóðarinnar. Það á
eftir að gera landið enn betra og byggilegra með störf-
um sínum, hvatningu og hugmyndum. Á þessum tíma-
mótum færi vel á því, að hinir ungu stúdentar gerðu
sér ljóst, að starfskrafta þeirra er ekki sízt þörf á sviði
vísinda og tækni. Þar erum við íslendingar enn eftir-
bátar annarra þjóða. Þótt húmanistiskar greinar séu
í fullu gildi þá kallar nútíminn á tækni og vísinda-
menn meir en nokkru sinni fyrr. Framfarir á þeim
sviðum eru undirstaða þess að þjóðinni farnist vel í
framtíðinni. Þar bíða heillandi heimar þess að þeir
verði kannaðir og þar lyftir mannvitið grettistökum.
Það er hamingjuósk Vísis til hinna ungu stúdenta, að
þeir megi sem flestir leggja á þann brattann.
Hlutleysið og stúlkan
JTríð og fönguleg stúlka lýsir því í fyrradag yfir í
Þjóðviljanum, að hún muni fara í gönguferð um Suð-
umesin til þess að lýsa andúð sinni á „öllu hernaðar-
brölti yfir höfuð“. Unga stúlkan ætti að velta því fyrir
sér, hvers vegna ekkert land veraldar hefir lýst yfir
ævarandi hlutleysi frá stríðslokum.
[TSTJÓRI: JÓN BIRGIR PÉTURSSOI
IfcsttnSaiwntmi
1111111®
Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, vígir nýja vöilinn og sendir Erni Hallsteinssyni úr FH
boltann. Bak við þá stendur Magnús Pétursson aiþjóðlegur dómari, sem dæmdi þennan leik.
2. DEILD
Fjölmenni var á grasvelli Akur-
eyringa á laugardaginn, þegar lið
þeirra lék sinn fyrsta opinbera leik
I sumar þar nyrðra. Áhorfendur
létu ekki rigningu og leiðinlegt
veður aftra sér og fengu líka að
sjá m'kinn yfirburðasigur yfir iiði
tsfirðinga.
Ekki gekk Akureyringum vel að
skora fyrsta markið, sem kom
ekki fyrr en eftir 32 mínútur, þeg
ar Valsteinn h. útherji, einn bezti
maður liðsins skoraði. Fimm min.
siðar skoraði Kári Árnason 2:0 og
þannig var staðan I hálfleik. 1
seinni hálfleik skoraði Skúli Ág-
ústsson 3:0 á 10 mfn., en eftir það
var eins og ísafjarðarvörnin stæði
ráðþrota frammi fyrir Steingrími
Björnssyni, hinum marksækna mið
herja Akureyringa, — og fimm
sinnum fór hann upp á sjálfdæmi
gegnum vörnina og skoraði á 25
mínútumi!
Leiknum lauk með 8:0, sigri Ak-
ureyrar, en á sfðustu mínútum
áttu lsfirðingar tvfvegis færi á að
skora mark, en tókst ekki.
Jón Stefánsson var ekki með í
þessum leik vegna meiðsla og
Bjöm Helgason var heldur ekki
með liði ísafjarðar. Akureyringar
virðast ætla rakleitt í 1. deild og
verður ekki séð að annað félag f
2. deild geti heft þá för.
★
Fyrsti leikurinn hjá Breiðabliki
á heiniavelli fór fram á laugardag-
inn í úrhellisrigningu og roki.
Knattspyrnuvöllurinn við Kópa-
vogsbraut og Vallargerði var form-
lega tekinn I notkun og flutti bæj-
arstjórinn Hjálmar Ólafsson stutta
ræðu og sendi knöttinn til Hafn-
firðinganna, sem hófu Ieikinn.
Hafnfirðingar skoruðu fyrsta
markið, sem var hálfgert klúður-
mark, þvf boltinn rúllaði eftir mark
Ifnunni og varnarmanni Kópavogs-
liðsins tókst ekki að hreinsa frá
markinu fyrr en boitinn hafði farið
inn fyrir lfnuna.
Breiðablik átti talsvert meira í
leiknum en FH, en ekki tókst að
skora mark fyrr en seint í sfðari
hálfleik. Daði Jónsson, h. útherji
sendi fallega sendingu inn á miðj-
una, en þar tók 'Jón Ingi Ragnars-
son, fljótur og hættulegur fram-
STUTTA
samtalid
Innan skamms hefst 'j'-'ðatíma-
bilið f sælurfk' skíðamanna vorra
og þeirra sem vilja eyða sumarfríi
sfnu f sólskini, hita og góðum snjó
í Kerlingarfjóllum, en sá staður
er sífellt að verða vinsælli og eft-
irsóttari.
„Við höldum eftir nokkra daga
upp f fjöll, til að búa okkur I
herji, við boltanum og skoraði á-
gætt mark.
Talsverður fjöldi áhorfenda kom
til að horfa á heimaliðið, en að-
staða er afar léleg fyrir áhorfend-
ur og virðist það næsta verkefnið
að bæta aðstöðu þeirra.
undir að taka á móti gestum",
sagði Valdimar Örnólfsson f stuttu
viðtali, í gærkvöldi, „en 6. júlf fer
svo fyrsti hópurinn og alls verða
3 námskeið í júlí og jafnmörg í
ágúst".
— Og hvernig er aðsóknin?
„Við þurfum ekki að kvarta und-
an því og ég held að færri komist
en vilja í sumar, enda held ég
að varla sé hægt að fá betri hvíld
í sumarfrfinu en í kyrrðinni þar
efra og við höfum kappkostað að
halda verðinu á namskeiðunum
niðri eftir megni“.
— Ég hef heyrt að til standi að
Framh. á bls. 3.
Þama er fransk: OL-me;starinn í svigi, Bonlieu, í keppni. E. t v. kemur
hann hingað í sumar og keppir í Kerlingarfjöllum.
Kemur Bonlieu til keppni / Kerlingarfjöllum?