Vísir - 18.06.1964, Síða 5
V 1 S IR . Fimmtudagur 18. júní 1964.
KBIHB:
Bankastræti
TRELLEBG
Þegar um hjól-
barða er að ræða
TRELLEBORG hjólbarðar - Ýmsar stærðir
Söluumboð Hraunholt v/ Miklaforg
Gunnar Asgeirsson h.f.
FERÐIR
3 ViKU
BEINA LEIÐ
TIL
LONDON
Slórborgin London er
höfuðsetur lista, mennta
og heimsviðskipta.
London er brennipunktur flugsamgangna
um allan heim. Við fljúgum 10 sinnum í
viku til Bretlands í sumar, þar af þrjár
ferðir beint til London. Tíðustu ferðirnar,
þxgilegustu ferðirnar, beztu ferðirnar.
það eru ferðir Flugfólagsins.
Þér
getið treyst
Kodak
tihnum
mest seldu filmum
i heimi
■ .j*
fi/m Á/otk/sm
i j/á'
ICEJLAMISAIFt
Vitaklúbburinn. Eins dags ferða
lag austur fyrir fjall 28. júní. Uppl.
og pantanir í síma 16373 milli ki.
3-6 21. júní
Ferðafélag íslands ráðgerir eft-
irtaldar sumarleyfisferðir í sumar:
1. Barðaströnd - Látrabjarg —
Arnarfjörður 20.-25. júní
2. Hornstrandir, mánaðamótin
júní-júlí
3. Herðubreiðarlindir — Askja
27. júní-5. júlí
4. öræfi — Hornafjörður 3.-10.
júlí.
5. Snæfellsnes - Dalasýsla 2.-5.
júlí.
6. Vopnafjörður — Melrakka-
slétta 4.-12. júlí
7. Síða — Lómagnúpur 9.-12. júlí
8. Vestfirðir 11.-19. júlí
9 Norður- og Austurland 14.-28.
júlí
10. Askja - Ódáðahraun -
Sprengisandur 15.-26. júlí
11. Kjalvegur — Kerlingarfjöll
— Hagavatn 18.-23. júlí
12. Fjallabaksvegur nyrðri (Land-
mannaleið) 18.-26. júlí
13. Goðdalir - Merkigil -
Kjalvegur 25.-29. júlí
14. Fjallabaksv. syðri 25.-30. júií.
15. Miðlandsöræfin 5.-16. ágúst
16 Herðubreiðarlindir — Askja
8.-16. ágúst
17. Lakagígir 11.-16. ágúst.
18. Veiðivötn 19.-22. ágúst
Allar nánari upplýsingar veittar
í skrifstofu F.í. Túngötu 5. Símar
11798 og 19533.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
með góðum fyrirvara.
146 fulltrúar á
norrænni fiski-
málaráðstefnu
Á sunnudaginn eru væntanlegir
til Reykjavíkur fulltrúar Norður-
landanna á níundu norrænu fiski-
málaráðstefnuna. AIls eru væntan-
Iegir hingað 85 fulltrúar, margir
með konur sínar með sér. Flestir
erlendu fulltrúanna koma frá
Noregi eða 35, Svíþjóð 26, Dan-
mörku 14, Finnlandi 7 og Færeyj-
um 3. íslenzku fulltrúarnir eru 61
talsins. Ráðstefnan fer fram í há-
tíðasal Háskólans.
Ráðstefnan verður sett á mánu-
dagsmorguninn kl. 10 af Emil Jóns
syni, sjávarútvegsmálaráðherra, en
þann dag heldur Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri erindi um stöðu ís-
lenzkra fiskveiða í Evrópu og
Klaus Sunnená, fiskimálastjóri
Norðmanna talar um vandamál og
hagsmuni strandríkis varðandi
skipulag fiskveiða.
Á þriðjudaginn heldur Jöran
Hult, forstjóri frá Svíþjóð, fyrir-
lestur um starfsemi sænsku laxa-
rannsóknarstofnunarinnar, og Poul
Fr. Jensen frá Danmörku talar um
alþjóðlega stöðlun á fiski og fisk-
afurðum og dr. phil. Poul M.
Hansen frá Danmörku sýnir lit-
kvikmynd af fiskirannsóknum við
Austur-Grænland.
Carl Lindskog, forstjóri frá Sví-
þjóð, heldur fyrirlestur um aðstoð
við vanþróuð riki á sviði fiskveiða
á miðvikudag, en á fimmtudag
talar Per.Rogstad, ráðuneytisstjóri
frá Noregk um sölu á ferskfiski.
Lokaerindi ráðstefnunnar og lík-
lega það sem mesta forvitni vekur
er erindi Jakobs Jakobssonar,
fiskifræðings, um tækniþróun í
síldveiðum Islendinga.
Fulltrúar ráðstefnunnar sitja boð
og boðsferðir fjölmargra aðila og
sérstök dagskrá er sett upp fyrir
konur fulltrúanna. Ráðstefnunni
lýkur 26. júní á Þingvöllum.
TEKNIR ÚR
UMFERÐ í NÓn
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í morgun voru 80 ölv-
aðir menn teknir úr umferð á göt-
um borgarinnar í nótt.
Þetta er stærri hópur en fanga-
geymslurnar rúma, og varð að
taka Hegningarhúsið á Skólavörðu-
stíg líka í notkun eftir því sem
þar var pláss fyrir hendi. Sumir
hinna ölvuðu voru og fluttir heim
til þeirra.
Þrátt fyrir það að jafn margir
ölvaðir menn væru teknir úr um-
ferð, kom hvergi til neinna átaka
né óspekta og engin truflun á há-
tíðarhöldunum, sem fóru í öllu hið
bezta fram. Hins vegar þótti sjálf-
sagt að fjarlægja dauðadrukkna
menn, svo þeir yrðu sjálfum sér
ekki til vanvirðu og öðrum til leið-
inda.
ilfls. lerðubreið
fer austur um land í hringferð 23.
þ.m. Vörumóttaka í dag og íöstu-
dag til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar,
Mjóafjarðar, Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Bakkafjarðar, Þórshafnar
og Kópaskers. Farseðlar seldir á
mánudag.
Ms. SkjaSdbreið
fer vestur um land til I'safjarðar
22. þ.m. Vörumótttaka í dag og
föstudag til Patreksfjarðar, Sveins
eyrar, Bíldudals, Þingeyrar, Flat-
eyrar, Suðureyrar og ísafjarðar. —
Farseðlar seldir á mánudag.
Ný íslenzk
kviksmynd sýnd
I kvöld kl. 21 verður sýning í
Laugarásbíói á nýrri íslenzkri
kvikmynd frá Geysismyndum,
„Fjærst í eilífðar útsæ“ eftir Reyni
Oddsson. Myndin er tekin í tilefni
af 20 ára afmæli lýðveldis á Is-
landi og er ljóðræn lýsing á 'andi
og þjóð, gerð fyrir breiðtjald cg
i Eastmanlitum, Þetta er í fyrsta
j sinn, sem kvikmyndalist er tekin
á dagskrá íslenzkrar listahátíðar,
og vonandi á hún eftir að skipa
| þar virðulegan sess í framtíðinni.
; Með íslenzku myndinni verður
j sýnd japanska kvikmyndin Hara-
[ kiri, sem er eitt af öndvegisverk-
um kvikmyndalistar síðustu ára og
vakti óhemju umtal og hrifningu á
kvikmyndahátíðinni i Cannes 1963.
Fólki er vinsamlega bent á að taka
ekki börn með sér á þessa sýningu.
Aðgöngumiðar verða seldir í Laug
arásbíói.
Svo sem skýrt var frá í Vísi
í fyrradag varð mjög alvarlegt um-
ferðarslys þar snemma á sunnu-
dagsmorguninn, er ölvaður öku-
maður ók á brúarstöpul með þeim
afleiðingum að bifreiðin hefur tek-
izt á loft — að því er virðist —
og henzt yfir ána. I bifreiðinni
voru tveir piltar, auk ökumanns.
Ökumaðurinn slapp sjálfur að
mestu ómeiddur, en báðir félagar
hans slösuðust. Annar þeirra svo
mjög að hann lézt af völdum
meiðsla sinna í sjúkrahúsinu á
Akranesi í gær. Hann komst aldrei
til mcðvitundar að heitið gat.
Lézf öf
meiðsla
Annar piltanna, se n slösuðust á
þjóðveginum gegnt Skarholti í
Leirársveit s.I. sunnudag lézt af
vöidum meiðsla sinna í gær.
IBátur sekkur
Vélbáturinn Smári frá Keflavík
sökk norð-austur af Eltíey sl. þriðjii
dagskvöld. Fimm menn voru á bátn
um og björguðust þeir allir í gúm
bát, en vélbáturinn Rcynir frá Bíldu
dal tók svo áhöfnina upp.
Smári, sem var 25 tonn að stærð,
var á humarveiðum þegar ieki kom
að honuni og eftir um það bil 1
klukkustund var báturinn sokkinn.
Smári sendi frá sér neyðarkall og
fór áhöfnin í gúnibát þegaf sýnilegt
var, að báturinn mundi sökkva. Vél
báturinn Reynir frá Bíldudal kom
svo á staðinn og bjargaði áhöfninni
af Smára.
: TP