Vísir - 18.06.1964, Page 11
V1 S IR . Fimmtudagur 18, iúní 1964.
11 -
myndafélögin
...
SfA'fr CON&£;m
Sean
# # % STJÖRNUSPÁ #
Spáin gildir fyrir föstudaginn
19. júní.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
aprii: Þú ert öruggur um að
græða1 á viðfangsefnum, aem
margir taka þátt í. Breytt af-
staða þín gæti orsakazt af
breyttum viðhorfum,
' Nautið, 21. aprfl til 21. maí:
Þegar þú hefur komizt að lok-
um að ákveðinni niðurstöðu í
vafaatriðum, þá geturðu ,-núið
þér af alvöru að þeim viðfangs-
efnum, sem fyrir liggja.
Tvíburarnir, 22. maf til 21
júní: Það er auðveldara að i'fa
í þessum heimi, þegar þú tekur
hann eins og hann er og gerir
sem minnstar kröfur til nans.
Gerðu það, sem þér finnst
skemmtilegt, í kvöld,
Krabbinn, 22. júní til 23. júli:
Enda þótt svo virðist, sem eirt-
hvað sérstakt sé á seyði á bak
við þig, þá eru engar horfur á
því, að það valdi þér óþægind-
um Það gæti verið í sambandi
við smá dagamun.
Ljónið, 24. júli til 23. ágúst:
Þú ættir að ræða félagsmálin og
málefni nágrennisins, við ein-
hvern, sem hefur áhuga á slíku.
Taktu til athugunar að styrkja
þig fjárhagslega og skapa meira
öryggi.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.
Bezta leiðin til að afla sér sem
áreiðanlegastra upplýsinga er að
spyrja þann ,sem hæst er sett-
ur. Þroskað og reynt fólk, er
bezti félagsskapurinn.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Þú ættir að leggja út á nýjar
brautir til að afla' þér þekkingar
eða fara í smáferð, ef þess ger-
ist þörf, til að koma málefnum
þínum áfram.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Ef þú athugar gang fjármál-
anna hjá þér sjálfum vel, pá
kynni svo að fara, að þú sæir
leiðir, sem reyndust vel við að
afla þér meiri tekna.
Bogmaðurinn, 23 nóv. til 21
des.: Þátttaka þín í félagslífinu
yrði fyllri og skemmtilegri, þeg
ar þú leyfir hinum helmingnum
að sjá um smáatriðin. Þú ættir
ekki að vísa neinum frá þér án
þess að gera tilraun til að ’eysa
hans vanda.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Þú kynnir að finna fyrir
nokkurri öfund í garð annar-a,
sakir stöðu þeirra ,í heiminum.
Þú lærir af reynslunni og skóla
lífsins.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.'
febr.: Dagurinn er hagstæður
fyrir þig til að itunda einhverja
skemmtilega tómstundaiðju eða
reyna, að læra eitthvað nýtt. Þér
gengur betur, ef maki þinn styð-
ur þig.
Fiskarnir, 20. febr. tii 20.
marz: Reyndu að koma reikning
unum á fastan kjö] og koma þér
undan of erfiðri ábyrgð. Leitaðu
til þeirra ,sem gjörst þekkja,
um sérstök viðfangsefni.
Fundahöld
Frá Kvenréttindafélagi íslands:
Ellefti landsfundur kvenna hefst
föstudaginn 19. júní kl. 4 í Breið
firðingabúð. 19. júní hófið verð-
ur haldið á sama stað um kvöldið
kl. 8.30. Vestur-íslenzkar konur
velkomnar í hófið. Félagskonur,
fjölmennið.
Breytingar á inn-
flytjendaiggiöf
Bandnríkjanna
Þann 18. maí sl. úrskurðaði
hæstiréttur Bandaríkjanna, að
tveir kaflar „Laga um innflytj-
endur og veitingu borgararétt-
inda“ væru ógildir, þar eð þeir
færu í bága við stjórnarskrá lands
ins.
Samkvæmt nefndum köflum
téðra laga glatar maður, sem öðl-
azt hefir amerískan borgararétt,
þeim rétti við vissar aðstæður, ef
hann hefir dvalizt þrjú ár í t'æð-
ingarlandi sínu eða þar sem hann
hafði borgararétt áður eða við
fimm ára dvöl í öðru landi.
Vegna þessa nýuppkveðna úr-
skurðar Hæstaréttar geta þeir að-
ilar, sem öðlazt höfðu amerískan
borgararétt en glatað honum
vegna framangreindra ástæðna,
sótt um, að mál þeirra verði tekið
til endurskoðunar. Slíkar umsókn-
ir ber að senda Ameríska sendi-
ráðinu, Laufásvegi 21 Reykjavík.
Styrkveiting
Á fundi stjórnar Rithöfunda-
sambands íslands, sem haldinn
var 9. þ.m. var úthlutað dvalar-
styrkjum frá Menntamálaráði ís-
lands.
Þeir sem styrk hlutu voru r't-
höfundarnir Jón frá Pálmholti cg
Jóhann Hjálmarsson, kr. 10 þús.
hvor,____________________
Orðsending
Dýraverndunarfélagið bendir á
eftirfarandi:
1) Samkvæmt lögum um dýra-
vernd nr. 21/1957 er bannað að
þeyta hljóðpípur skipa að óþörfu
nærri fuglabjörgum.
2) Frá 19. maí til 18. ágúst
njóta allar fuglategundir nema
hrafn, svartbakur og kjói alfrið-
unar. Friðunin varðar eigi aðeins
líf fuglanna heldur einnig egg
þeirra og hreiður.
3) Kettir valda dauða mikils
fjölda fuglsunga. Umráðamönn-
um katta er treyst til að loka
ketti inni að minnsta kosti að
næturlagi yfir sumartímann.
Flugvélar
Flgsýn. Flogið til Norðfjarðar
kl. 09.30 (Ath. alla daga nema
mánudaga.)
r
Aheit og gjafir
Strandakirkja: Frá 12 Valkyrj-
um kr. 435.00. Frá S.H. 125.00
Kalli kr. 200.00.
Hinn vinsæli enskl leikari,
John Mills, á unga, fallega
dóttur sem heitir Hayley, eins
og sjálfsagt margir vita. Hay- ■
ley vakti fyrst athygli á sér í
myndinni Tlger Bay, þar sem
hún lék með föður sínum og
unga leikaranum Horst Buch-
olst, sem nú er orðinn fræg-
ur. (The Magnificent Seven,
1, 2, 3 o. fl.) Þá lék Hayley
smástelpu með fléttur og því
hefur hún haldið áfram þar til
nýlega, að hún gerð'i kunn-
ugt, að hún væri orðin full-
orðin. Ýmsir vöknuðu við
vondan draum, en ekki kvik-
myndaframleiðendurnir, því að
þeir sáu að hún var ekki síð-
ur falleg sem ung kona. Og
þar kom að, að Hayley átti
að fá sinn fyrsta koss. (Kvik-
myndakoss). Eins og nærri má
geta var mikið um að vera cg
margir æstir. En engir þó eins
og aumingja John og Horst
(sem hefur verið eins og
eldri bróðir Hayley, síðan
þau Iéku saman fyrst). Þeir
voru gersamlega í taugafiækju
þar til búið var að „skjóta“
senunni, og .þegar þeir svo
loks fóru burt með Hayley á
milli sín andvarpaði Horst: —
Ég hefðl aldrei trúað því að
koss gæti haft svona mikil á-
hrifi — þegar maður kyssir
hann ekki sjálfur. x
James Bond er sífellt að
verða vinsælii og vinsælli, og
bækurnar um hann endur-
prentaðar æ ofan í æ. Og kvik
um að
reyna að fá rétt tll þess að
kvikmynda sögurnar. En einka
leyfið hefur þegar verið feng-
og þeir sem það hafa eru
ekki líklegir til þess að sleppa
þessari gullnámu. Og sá sem
Ielkur Bond, Sean Connery,
er ekki orðinn síður frægur.
Áður en hann byrjaði að leika
„agent ”007 of the Secret Ser-
vice“ var hann tiltölulega ö-
þekktur, og hafði aðeins leikið
nokkur smáhlutverk, en nú
standa honum allar dyr opn-
ar. Connery er eins og Bond,
hinn mesti kenjakarl, sérvitur
með afbrigðum og fer sínar
eigin götur hvað sem öðrum
finnst. Hann er hamingjusam-
lega giftur góðri konu, sem nú
er hætt að þurfa að vinna úti.
Skotarnir: Bóksali nokkur i
Aberdeen settl nýlega upp
skilti i glugganum hjá sér,
með svohljóðandi áletrun: Ef
þér ætlið að gefa einhverjum
kunningja yðar bækur í jóla-
gjöf, þá kaupið þær strax og
takið þær með i sumarleyfið,
svo að þér getið verið búinn
að iesa þær áður.
Rip teygir sig af veikum mætii
eftir símanúm, því að hann ve t
að það er hans eina von. Hon-
um tekst að ná tólinu niður á
gólfið, en þá er hann líka að
þrotum kominn, og hann getur
aðeins muldrað svo lágt að var a
heyrist sendið .. . sendið sjúkra-
bfl. Á meðan eru Pé..ninn og Fern
á hraðri leið írá húsinu, og þorp
arinn segir glottandi: Ég hefi allt
af haldið upp á málsháttinn sem
segir að dauðir menn kjafti ekki
frá. Hann er stuttur og sannur.
Dagskrá í umsjá Marfu Þor
steinsdóttur og Herdísar
Ólaf.sdótt.ur, flutt að tilhlut
au Kvenréttindafélags ís-
lands. Fram koma Anna
Loftsdóttir, formaður Hjúkr
unarkvennafélags íslands,
Jóna Guðjónsdóttir, formað
ur verkakvennafélagsins
Framsóknar, Margrét Auð-
unsdóttir, form. starfs-
stúlknafélagsins Sóknar og
Valgerður Guðmundsdóttir,
form. Ljósmæðrafélags Is-
lands.
21.45 Tónleikar: Carnival í París
op. 9 eftir Johan Svendsen.
22.10 Kvöldsagan: „Örlagadagar
fyrir hálfri öld“, eftir Bar
böru Tuchmann, XI. Herst.
Pálsson.
22.30 Djassþáttur. Jón Múli Árna
son stjórnar þættinum.
23.00 Skákþáttur. Ingi R. ,>ó-
hannsson flytur.
23.35 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
18.00 .G. E. College Bowl.
18.30 True adventure
19.00 Afrts news
19.15 Social Security in action.
19.30 My three sons.
20.00 Hootenanny
21.00 The Dick Powell theater.
22.00 Candid camera.
22.30 Mystery Theater
23.00 Afrts final Edition news.
23.15 The Steve Allen show.
Þessir áttmennlngar eru ný-
bakaðir læknakandídatar, sem
útskrifuðust fyrir nokkrum dög-
um. Á myndinni eru frá vinstri:
Kári Sigurbergsson, Aðalsteinn
Pétursson, Helgi Þ. Valdemars-
son, Páll Þórhallsson, Anna
Katrín Emilsdóttír, Sverrir ^
Bergmann, Matthías Kjeld og •
Gísli G. Guðmundsson. Hæsta
prófið tók Helgi Þ. Valdemars-
son, en hann hlaut fyrstu eink-
unn.
' '\l ]