Vísir - 03.07.1964, Side 2

Vísir - 03.07.1964, Side 2
ENN TAPAR KEFLAVÍK STIGI FRAM náði að halda 0:0 Botnlið 1. deildar vefjast j uðu þeir fyrsta stigi sínu fyrir Keflvíkingum um j í deildinni til Þróttar. Leik þessar mundir, því í gær; urinn í gær var líkur leikn- kvöldi töpuðu þeir stigi til i um við Þrótt að því ieyti Boltinn hrökk fyrir mark Fram og þar upphófst æðisleg þvaga. Hér munaði ekki miklu að Kefl- víkingum tækist að skora, en varnarmenn Fram hreinlega steyptu sér yfir boltann eins og gammar og héldu honum þar til Geir markverði tókst að góma hann og komast út úr þvögunni. En Framararnir áttu eftir að koma með sinn þátt í þennan leik, og raunar má segja að Framarar hefðu getað farið með sigur af hóimi í þessari viðureign, svo Iitlu munaði undir lokin. Ásgeir Sigurðsson átti hörkuskot á 32. mín„ en Kjartan Sigtryggsson varði það skot mjög laglega. Fram sótti um þessar mundir talsvert og I eitt skiptið mátti sannarlega ekki miklu muna í þvögu við markið, en vörn Keflavíkur tókst að koma boltanum f horn. Keflvíkingar voru hér óheppnir að koma ekki með bæði stigin úr þessari viðureign, og kannski get- ur þetta haft áhrif á lokabarátt- una I þessu móti. Liðið leikur á- gætlega úti á vellinum og fram- farirnar á flestum sviðum frá því I fyrra eru ótrúlega miklar og sýnir hvað hægt er að gera undir góðri handleiðslu, en Óli B. Jóns- son tók við þjálfun liðsins í vor. Framh. á bls. 5 Fram, en fyrir nokkru töp- STAÐAIi I 1. OG 2. DEILD Staðan i 1. deild: Keflavík 5 3 2 0 12-6 8 Akranes 6 4 0 2 14—11 8 KR 4 3 0 1 9-5 6 Valur 6 2 0 4 15-17 4 Þróttur 5 1 1 3 5-10 3 Fram 6 1 1 4 11-17 3 Markhæstu menn: Hermann Gunnarsson, Val, 7 ; Ellert Schram, KR, 6 j Eyleifur Hafsteinsson, tA, 5 Bergur Guðnason, Val, 5 , Haukur Þorvaldsson, Þrótti, 4 Næstu leikir eru á sunnudag hér í Reykjavík þá leika ÞRÓTT UR og AKRANES og daginn eftir KR og VALUR. í fyrrakvöld sigraði FH Vík- ing f 2. deild með 6 mörkum gegn 1 i fremur Iélegum leik. Lið FH er sem kunnugt er að mestu skipað leikmönnum úr handknattleiksliði félagslns, en þeir eru margir vel liðtækir i knattspyrnu einnig. Staðan í 2. deild er nú þessi: Suðurlandsriðill: Vestm.eyjar 4400 11—5 8 F.H. 5 2 2 1 15—8 6 Víkingur 5 2 0 3 8-15 4 Breiðablik 4 112 5-5 3 Haulcar 4 0 1 3 5—11 1 NorðurlandsriðiII: Akureyri 2 2 0 0 12-1 4 isafjörður 2 10 1 3-10 2 Siglufjörður 2 0 0 2 3-7 0 Sóttu „bftilinn til BLÖNDUÓSS r i að Fiann var án marka og að mestu leyti eign Kefl- víkinga, sem ekki gátu nýtt neitt af fjölmörgum tækifæmm sínum. Sókn Keflvíkinga var frá upp- hafi mun þyngri og áttu þeir all- góð upphlaup, sem enduðu með skotum fram hjá. Framarar áttu einnig ágætis skot, einkum Ásgeir Sigurðsson, v. útherji. í seinni hálfleik sótti Keflavík jafnvel enn fastar, en tókst aldrei að skora, en færin til að skora urðu þó mýmörg og sum nokkuð opin. Geir markvörður Fram varði mjög fallega skot frá Sigurði Al- bertssyni á 15. mínútu, en þá má segja að markið hafi legið í loftinu. Rúnar Júlíusson h. innherji átti ágætt skot, en rétt yfir, og tveim mínútum siðar gerðist atvik, sem var nokkuð ljótt og hefði átt að færa Keflvíkingum vltaspyrnu. Meðal beztu leikmanna Kefla víkurliðins eru tveir ungir menn úr hljómsveitinni Hljómar, sem virðist eftir öllum sólarmerkjum að dæma vera langvinsælust allra unglingahljómsveita lands ins. Hafa ungu mennirnir I þeirri hljómsveit nú farið 1 hljómleika ferðalag út um land og veldur þetta Keflvíkingum erfiðleikum á knattspyrnusviðinu. Karl Hermannsson hætti við að fara I ferðalagið og kaus heldur að iðka knattspyrnuna, og kastaði þar frá sér tugþús- undum króna, en Rúnar Júlíus- son fór með félögum sínum I bítlahljómsveitinni og I fyrrinótt óku þeir „bítlarnir“ á Mercedes Benz-bíl sínum alla leið frá Blönduósi til Reykjavíkur til að geta unnið Keflavíkurliðinu gagn. Rúnar keppti með I gær og stóð sig með ágætum, og Karl var sömuleiðis með og báð ir voru meðal beztu manna Iiðs- ins. í nótt fóru „bítlarnir" aftur til baka norður og þegar Kefla vík mætir KR 15. júlí n.k. verð ur ennþá lengra fyrir Rúnar að komast til Reykjavíkur. Þá verða þeir félagarnir á Raufar- höfn, og þá verður Rúnar að aka til Akureyrar og fara. flug- leiðis til Reykjavíkur. Til að við halda knattspyrnunni hefur Rún ar knött meðferðis og hleypur reglulega, og virðist honum ganga vel að halda sér I þjálfun, annað varð a. m. k. ekki séð I Ieiknum I gær. Spennandi kepþni í Laugarda! í kvöld: VINNUR KR ÚRVAISUÐ FRl? Líklegt er að hörkukeppni fari fram á Melavellinum í Reykja- vík. Líklega í fyrsta sinn I nokk ur ár, sem frjálsar íþróttir bjóða upp á spennandi keppni. Það er KR, sem keppir við úrval FRÍ I frjálsum íþróttum, en það er að mestu skipað mönnum úr ÍR, en þessi tvö félög eru stór- veldi á sViði frjálsra íþróttahér. Keppnin hefst kl. 8 á Laugar- dalsvellinum, en sleggjukast mun fara fram kl. 7,15 á Mela- velli. Keppnin 1 kvöld er I þess- um greinum Sleggjukast, 400 metra grindahlaup, kringlukast, há- stökk, 100 metra hlaup, 1500 metra hlaup, 400 m. hlaup, lang- stökk, kúluvarp og 4x100 m boðhlaup. Á morgun heldur keppnin á- fram kl. 15 og þá keppt I 110 m grindahlaupi, þrístökki, stang arstökki, spjótkasti, 800 metra hlaupi, 200 metra hlaupi 300 metra hlaupi og 4x400 boð- hlaupi. Má vænta góðrar skémmtunar af þessu nýstárlega móti, sem er eitt lofsverðasta framtak frjáls íþróttamanna um nokkuð Iangt skeið og má vænta þess að þetta geti orðið upphaf þess að frjáls íþróttirnar dragi til sín fólk á áhorfendapallana, sem undanfar in ár hafa ekki þurft að kvarta undan átroðningi. Meðal keppenda I kvöld er Jón Þ. Ólafsson, sem kom heim frá Kaliforníu I fyrradag. Þrír keppendur eru frá hvorum aðila I þessari keppni og er stigaút- reikningur á þann veg að fyrsti maður fær 5 stig, annar 3 — þá 2 af þriðja manni og eitt af fjórða manni. Mótið er haldið I tilefni af 65 ára afmæli KR fyrr á þessu ári. E

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.