Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 10

Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 10
10 VÍSIR Föstudagur 3. iúlí 1984. Stjórnarskipfi Framh. aí bls. 4 hrifnir af stakkaskiptum hans. En á þá er varla hlustað. "fhaldsfiokkurinn sundraðist og mjög í Profumo-deilunni og óhug sló á flokkinn, baráttu- gleðin hvarf og engu var líkara en hann vœri að hrynja. Harð- vítugar deilur urðu um það hver skyldi taka við flokksfor- ustunni Hailsham lávarður og Butler börðust um Völdin, en sá þriðji, Sir Alec hlaut þau eins og til málamiðlunar. Hann mætti í fyrstu fjandskap margra úr báðum örmum. En honum tókst merkilega fljótt að reisa flokk sinn við og hefja hann upp úr vonleysisandanum Sir Alec hefur tekizt með lip- urð og lagni að áviana sér hylli flokksmannanna og það gekk svo vel að komast yfir þessa fyrstu hindrun, að sumir fóru að gera sér vonir um, að hon úm tefekist að snúa undanhaldi f stjórnmálunum upp í sókn. En það hefur honum ekki herpnazt enn. Cannleikurinn er nú sá, að bæði Wilson og Sir Alec eru orðnir sterkir innan eigin flokka. En þeir hafa fyrst og fremst orðið „flokksmenn", það er að segja þeim virðist ekki takast að ná huga þeirra kjós- enda sem á milli eru, þeirra sem eru óráðnir hverjum þeir eiga að fylgja og flökta á milli flokkanna. En einmitt þessi kjósendahópur ræður úrslitum þingkosninganna hverju sinni. Þarna kemur fram himinhár munur milli núverandi forustu- umanna og þeirra ’ömlu. Gait- skell og Macmillan voru hvor- ugur mjög sterxir „flokks menn“. Gaitskell átti jafnan i mestu erfiðleikum með að hemja „vinstri arminn'‘ og ó- þægðarangann Wilson, sem honum stýrði. Mikill , hluti Ihaldsflokksins gat t.d. aldrei fyrirgefið Macmillan frjálslyndi hans í nýlendumálum og þeim sárnaði mjög þegar hann flutti s!na merku ræðu um að „vind- ur hefði snúizt“ í Afríku, svarti kynstofr.inn væri þar að rísa upn til sjálfsforræðis. En vel má vera, að það hafi einmitt verið vegna bess að þeir voru ekki miklir flokksmenn. sem flokksleysingjarnir, milli- bilsfólkið léði þeim eyra. Það var vissulega hlustað á ræður þeirra langt út fyrir flokks- fylkinguna. Og þess vegna varð harkan og andúðin milli Gait- skells og Macmillans miklu meiri. Þeir voru raunverulega að berjast um sálirnar. þeim Sir Alec og Wilson kemur miklu betur saman. Að vísu ætlaði Wilson í fyrstu þegar Sir Alec kom inn í neðrí málstofuna sem forsætisráð- herra, að reyna að buga hann. en Sir Alec stóðst þá raun og síð'an hefur farið vel á með þeim. Mönnum finnst sem þeir kunni vel við andstæðinginn. En áhrifa þeirra gætir líka sára- lítið út fyrir flokkinn. Nú er talið að það hafi verið mistök hjá Sir Alec, hve mjög hann hafði sig í frammi fyrstu mánuðina eftir valdatökuna Þetta leiddi til þess, að almenn- ingur fór að líta á hann eins og flokkslegan áróðursmann og er það nú greinilegt að síðustu mánuði hefur hann dregið sig mjög í hlé. Vafalaust er það núna ætlun har.s, að koma ekki mikið fram nema á stærstu stundum, þegar fer mjög að nálgast kosningar og gera þá einkum tilraun til að ná flokks- leysingjunum á sitt band. En það er ’ mjög vafasamt að það takist, því að hann hefur þeg- ar fengið á sig sinn stimpil í ímynd þessara kjósenda. Tjar sem engin stórmál er um að tefla og Sir Alec hefur heldur ekki tekizt að ná sama sessi og Macmillan tókst á stundum, sem stjórnskörung- ur á alþjóðavettvangi, er ekki annað til að deila um, en efna- hagsmálin. Þau eru í sjálfu sér alltaf aðalviðfangsefni hverrar þjóðar, en þó ekki líkleg til að vekja upp heitar pólitfskar ást- ríður meðan allt gengur sæmi- Iega. Á því sviði ber þess að geta, að mikill framfaratími er nú f Bretlandi, atvinna er meiri en nóg, víða er skortur á vinnu- afli og fjárráð almennings hafa aldrei verið meiri en nú, pen- ingarnir flæða yfir landið, hin- ar miklu íbúðarhúsabyggingar halda áfram og verzlun með bifreiðir, heimilistæki og margs konar óhóf sem áður var talið slær öll fyrri met. En þrátt fyr- ir þetta eru menn órólegir, dýr- tíð og kaupgjald hefur vaxið og almenningur rekur mest augun f verðhækkanirnar mcðan aukin eyðsla veldur hættu á óhagstæðri utanríkisverzlun. Og undir niðri hefur mönnum sárnað að bandarfskt fjármagn hefur verið að ná auknum á- hrifum í brezkum iðnaði. Það vakti t.d. mjög mikla athygli og særir þjóðernislegar tilfinn- ingar, þegar bandraísku Chrys - er-bílaverksmiðjurnar náðu ný- lega tangarhaldi á stórum hlut í hinum frægu brezku Rootes- verksmiðjum, sem hafa verið taldar einn af burðarásum brezks iðnaðar. Drezki iðnaðurinn hefur átt við erfiðleika að etja. Það er almennt álitið að hann hafi dregizt aftur úr iðnaði megin- landsins, íhaldssemi og nýj- ungaskortur sé honum fjötur um fót. Þetta vandamál verður eitt helzta kosningamálið fyrir brezka Verkamannaflokkinn, fyrst ekkert stærra mál er hægt að finna. Og í því er fólgin ein helzta stefnubreytingin, ef Verkamannaflokkurinn kemst til valda. Ef Harold Wilson flytur inn í Downing Street 10 má telja allmiklar líkur á því, að hann þjóðnýti að nýju brezka stáliðnaðinn og beiti sér fyrir endurskipulagningu iðnaðarins, ihvort sem þjóðnýt- ingin verður mikið til bóta. ÞÖRF OG TEPPA- HREINSUN ÞÆGILEG ÍEMISK VINNA SÍMI 20836 VELHREINGERNING Vanir inenn. Þægileg cljótleg. Vönduð vinna. ÞRIF — Sími 21857 og 40469. NÝJA TEPPAHREINSUNIN Fullkomnustu í vélar ásamt | 'urrkara. *• „55 % Výja teppa- og iiísgagna- ireinsunin Sími 37434. Véícahreingerning Vanir og vandvirkir Ódýr og örugg bjónusta. ÞVEGILLINN, sími 36281 Sjónvarpseigendur ATHUGIÐ Eftirtaldar verzlanir veita viðskiptavinum sínum þá þjónustu að gefa þeim, sem þess óska, dagskrána vikulega: REYKJAVÍK: Aðalkjör, Grensásvegi 48, sími 37780 Alfheimabúðin, Álfheimum 4, sími 34155 Eyþórsbúð, Brekkulæk 1, símar 36875 — 36877 Húsgagnaverzlun Reykjavíkur, Brautarholti 2, sími 11940 Reynisbúð, Bræðraborgarstíg 43, sími 17675 Austurver, kjörbúðir: Skaftahlíð 22-24, Háaleitisbr. 68 og Fálkagötu 2 Melabúðin, Hagamel 39 Radio- og raftækjastofan, Óðinsgötu 2, sími 18275 Radio-ver, Skólavörðustíg 8, sími 18525 Silli og Vaidi, Aðalstræti 10, sími 12317. Sunnubúðin, Laugateig 24, sími 34666 Sunnubúðin, Sörlaskjóli 42, sími 18555 Sunnubúðin, Mávahlíð 26, sími 18055 Verzl. Birgisbúð, Ránargötu 15, sími 13932. Verzlunin Straumnes, Nesvegi 33, sími 19832. KÓPAVOGUR: Kársneskjör, Borgarholtsbraut 51, sími 40780 HAFNARFJÖRÐUR: Boðabúð, Sjónarhóli, sími 51314. KEFLAVlK: Verzlun Hauks Ingasonar, Túngötu 12, sími 1456 4ÓPAVOGS ! 3ÚAR! Málið sjálf, við ögum fyrir ykk ir litina. Full- <omin þjónusta. LlTAVAL Álfhólsvegi 9 fíópavogi Sími 41585. Lei siglitf igid bát, sjálf iiiW * . BÁTALEIGAN^ BAKKAGERÐI13 SíMAR 34750 & 33412 Blómabúbin Hrisateig 1 símar 38420 & 34174 ÞVOTTAHÚS Vesturbæjar Ægisgötu 10 • Sími 15122 BEZT m AUGLÝSA í VÍSI TÚNÞÖKUR ^pÉjU Seljum góðar túnþökur, flytjum heim ef ósk- að er. Sfmi 15624. 1^4 0SAvm^rnniR% Laugavegi 30. Síml 10260. Gerum við og járnklæðum pök. Setjum í einfalt og tvöfalt gler o.fl — Útvegum allt efni. TVerrtun ? prentsmiðja & gúmmistlmplagerð Etnholti 2 - Sími 20960 Verðlaunaafhending S.R.R. Mánudagskvöldið 22. júní hélt Skfðaráð Reykjavíkur kaffisam- sæti til heiðurs norska skíðakenn aranum Ketil Rödsæther, sem uad anfarið hefur haldið skíðanám- skeið á Sigiufirði. Samsætið var haldið í Skíðaskálanum I Hvera- dölum og var fjölmennt. Fór þar fram verðlaunafhend- ing frá skíðamótunum, sem haid- in voru sl. vetur. Formaður Skíða ráðs Reykjavíkur, Ellen Sighvats son, bauð gesti veikomna Sýndar voru myndir frá hálendi tslands Þyí næst fór fram verðlaunaaf- hending, og annaðist bana heið- ursforseti I.S.Í., Benedikt G Waage. Flutti hann snjalla hvatn ingaræðu til skíðamanna, og bðtti honum vænt um að sjá hina ungu skíðakappa Eybór, Tómas og Har ald, sem allir eru innan ferm ingaraldurs, Afhentir voru mjög fallegir silfurfarandbikarar, sem eru í eiau Skíðaráðsins ásamt verðlaunapeningum. Við þetta tækifæri var Ketil Rödsæther af- hentur mjög smekklegur silfur- lyklahringur og var nafn hans grafið á hringinn. Ketil þakkaði fyrir skemmtilega daga á íslandi og kvaðst vonast til, að íslenzkir skíðamenn fjölmenntu við Solfonn á næsta skíðamóti. Eftir verðlaunaafhendinguna var setzt að kaffidrykkju. Við þetta tækifæri flutti varaformað- ur Skíðaráðs Reykjavikur, Lárus G. Jónsson (S.R.) ræðu til heið- ursforseta Í.S.Í., Benedikts G. Waage vegna nýafstaðins 75 ára afmæiis hanr og afhenti honum afmæliskveðju undirskrifa.ða af reykvískum skíðamönnum. Enn- fremur flutti Lárus Jónsson kveðju til Ketils Rödsæther. Lár us hefur tvívegis dvalizt með reykvískum skíðamönnum /ið skíðaæfingar í Solfonn og kynnt ist hann þar miklum kennarahæfi- Ieikum Ketiis. Sungin voru íslenzk lög og var hófinu slitið um miðnætti.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.