Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 15

Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 15
V í S I R . Föstudagur 3. júlí 1S64. 15 ANDREW GARVE: *£ Vl Bdk> í KEÐJU — Hann er í umbúðum í ein- um björgunarbátnum — það er að segja, ég vona, að hann sé þar enn - þar sem ég skildi við hann. Þetta er einn af þessum sjálfvirku, sem blása sig upp sjálfir, er þeir koma niður á yfirborð sjávar. Ég hleyp útbyið is með hann undir hendinni og ræ í land. Árarnar, ef árar skyldi kalla, eru innan í. Amanda hristi höfuðið. Mikiil efi lýsti sér í svip hennar. — Þetta er brjálæði, sagði hún loks, Ef þetta er allt satt - og ef þér reynið þetta, mun- uð þér drukkna. — Það held ég ekki. — Þér eruð væntanlega góð- ur og þolinn sundmaður. — Sannast að segja er ég það ekki, öðru nær, en ég treysti á bátinn. Og minnizt þess, að skipið siglir mjög hægt fram hjá Spithead. Það verður ekki svo mjög áhættusamt að henda sér útbyrðis. Ég ætti að geta verið kominn í land og símað vestur að allt hafi heppnazt — áður en skipið leggst að bryggju í Southampton. Það er að segja, ef þér komið ekki upp um mig. Amanda horfði á hann eins og í vafa. - Hvernig er það með regl- urnar fyrir „frumkvæðis-prófun inni“ — með tilliti til þess, að þér verðið að treysta á mig? — Það er ekkert í reglunum, sem bannar okkur að þiggja hjálp á leiðinni frá hverjum sem ér. Ef þér viljið hjálpa mér, er sannast að segja dálítið ann- að, sem þér gætuð verið mér hjálplegar með: Falið böggulinn úndir rúminu yðar þangað til ég þarf að hafa bátsins not, Ég er dauðskelkaður að einhver há- setanna finni hann. — Gerið þér yður ljóst, að ég mundi verða rekin, ef það kæmist upp, að ég hefði hjálpað yður? — En það kernst ekki upp, það er ég viss um - nú, og svo er alltaf hermálaráðuneyt- ið. — Ég ætla að minnsta kosti að „sofa á því“. Ég skal segja yður af eða á — á morgun. Þegar Munro gægðist inn í gjafabúðina næsta morgun, bauð Amanda hann velkominn rneð brosi, Hún sagðist hafa hug- leitt málið og „sofið á því“ og tekið ákvörðun um að bregðast ekki trausti hans - og geyma fyrir hann böggulinn. — Þér eruð gull af kven- manni, sagði Munro, þá kem ég með hann á gönguþilfarið klukk an 21. Ég legg hann þar á bekk, þar sem þér getið tekið hann. Þakka yður hjartanlega, hitt- umst heil! Um kvöldið gekk allt eins og í sögu. Allt var á sínum stað, hann losaði um tjörguðu snúr- una og dró böggulinn upp úr bátnum og skildi hann eftir, þar sem um hafði verið talað. Nokkru síðar um kvöldið kom Amanda til hans, þar sem hann sat í aðalsalnum úti í horni og var mjög leyndardómsleg á svip og hvíslaði að honum, um leið og hún settist: — Þetta er allt í lagi. Þau spjölluðu lengi saman yfir glasi af víni. Munro talaði mest um herinn, Amanda sagði hon- um frá starfi sínu á skipinu. Hún var greinilega vel gefin stúlka. Brátt fóru þau að dansa og döns uðu til miðnættis. Kvöldið var þeim báðum ógleymanlegt. □ Það var aðfaranótt síðasta dags ferðarinnar. Skipið nálgað- ist eyna Wight á réttum tíma. Veður var gott og kyrr sjór. Munro hafði ákveðið að stökkva útbyrðis klukkan fimm. Þeim hafði talazt svo til, að Amanda kæmi upp á afturþil- farið með böggulinn skömmu eftir klukkan tvö, þegar hætt var að dansa. Þar átti Munro að hitta hana og taka við böggl- inum. Hún kom þegar klukkan var tíu mínútur yfir tvö og rétti honum böggulinn og settist á bekk við hlið hans - sama bekk inn, sem hann hafði setið eða legið á svo margar morgun- stundir, Rödd hennar var dá- lítið óstyrk. — Hvað er að? spurði hann. Ertu óstyrk á taugum? - Já, sannast að segja. Ég vildi óska, að þú vildir hætta við þetta. Það er brjálæðislegt. — Vitleysa, sagði Munro. Það gengur eins og í sögu. — Það er svo langt niður, og straumurinn frá skrúfunni getur dregið þig niður. Hvaða vit er í að hætta á annað eins og þetta vegna „frumkvæðis- prófunar“? Hún andvarpaði og bætti við: — En ég get víst ekki fengið þig ofan af þessu. — Því miður ekki, sagði ,Munro og í allt öðrum tón en jáður og þagnaði skyndilega, en | hélt svo áfram eftir skamma jstund, en hún var nú sýnu ióstyrkari en áður. — Það er ekki ástæða lengur til þess að draga að gera játn- ingu fyrir þér. Sannleikurinn er sá, að þetta með „frumkvæðis- |prófunina“ er uppspuni. Ég dikt jaði þetta upp og þú munt kom- :ast að -raun um af hverju. Ég 'er lögreglumaður - rannsókn- arlögreglumaður - og ég er í embættiserindum ... Amanda starði á hann. - Ég skil þetta víst ekki ... - Og þó 'er það í rauninni ofur einfalt. Ég er að rannsaka morðmál — morð, sem framið var á þesu skipi fyrir þremur mánuðum. Nú veiztu víst hvað ég er að fara? — Þú — þú átt við fröken Everett? TRABANT #64 Trabant ’64 er til á lager eirs og er. Trabant fólksbíllinn kostar kr. 67.900 Trabant station kostar kr 78. 900 Trabant bifreiðin reynist sér- staklega vel. Kynnið yður skilmála vora. B'ilaval Laugavegi 90 BIFREIÐALEIGAN Er líka fyrir yður Sveinn Björnssan & Co. Garðastræti 35 Box 1386 - Sími 24204 Ódýra FiHhatta seljum við í dag og íæstu daga Mikið úrval af léttum iumarhöct- um HATTABLJÐIN HULD Kirkjuhvoli. Sími 13600. DUN- OG FIÐURHREINSUN vatnsstíg 3. Sími 18740 SÆNGÚR REST BEZT -koddar. Endurnýjum gömlu sængurnar, eigum dún- og fiðurheld vei. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. 5 V IÐ SELJUM: N.S.U. Prinz ’62 Volvo station ,62 Volvo 444 ’55 Opel Cadett station ’64 Opel Caravan ’60 og ’Ö9 Taunus statlon ’59 Chervolet Impala ’59 Mercedes Benz 220 ’53 mjög góður C.M.C. vatna- og fjallabif- reið með 17-20 manna húsi. Ford station ’55 rauðará SKÚLAGATA 55 — SÍMI15811 Símar 2210 — 2310 KEFLAVÍK I AUGLÝSID I VÍSi R 2 A N Flugvélin hefur sig á loft aftur og Wawa krýpur í grasið, svo að það sjáist ekki að hinir miklu vöðvar hans hafa öðiazt krafta á nýjan leik. Mambo er lagður af stað til föður síns, segir Joe, sem fylgist með öllu í kíki. Við skul- Wawa þegar hann sér son sinn um sveima yfir og sjá hvernig náigast, komdu og hjálpaðu mér. fer. Hérna er ég, Mambo, kallar Hreinsum samdægurs || Sækjum - H sendum. B Efnalaugin Lindin í ' Skúlagötu 51, sími 18825 Hafnarstrætj 18, sími 18821 TUNÞOKUR BJÖRN R. EÍNARSSON símí aosss Herrosokkcir crepe-nylon .<1 29.00 á

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.