Vísir


Vísir - 03.07.1964, Qupperneq 16

Vísir - 03.07.1964, Qupperneq 16
Philipus ók sjálfur kringum Mýv Föstudagur 3. júlí 1964. I ferð sinni kringuní Mývatn í gær ákvað Philipus prins að taka sjálfur við stjórn bifreiðar- innar. Það var við Geirastaða- kvísl, þar sem Laxá rennur úr Mývatni, sem hann settist undir stýrið. Var sýnilegt, að hann var í sjöunda himni yfir að fá tækifæri tii að keyra. Nú vita allir, að vegurinn í kringuni Mývatn er mjór, hæðóttur og hlykkjóttur og víða blindbeygi- ur á honum við hraunkletta. En prinsinn var sýnilega leikinn bíl stjóri og fór allar þessar beygi- ur léttilega, stundum mætti hann bílum á ferð eða fór fram úr þingeyskum bænduni á dráttarvélum. Veifaði hann þá glaðlega tii þeirra. Hann vildi og alltaf nema staðar til að horfa á fugla og fara út til að mynda þá. Meðal annars ók hann af- leggjarann frá sumarbústaðnum Höfða, sem er á köflum nijög brattur og hættulegar beygjur á honum, einnig afleggjarann inn i Dimmuborgir, sem er mjög grýttur. Bifreiðin, sem hann ók, var Ieigubifreið frá Akureyri af Zephyr-gerð. Fréttamanni Vísis tókst að ná meðfylgjandi mynd af prinsinum, þar sem hann þeysir fram hjá eins og æfður ökumaður. Kosið í skipu- iagsnefnd og varaforsetar Miglionini frá Ítalíu og Guilleanáin frá ír- landi. Þetta er fjórða og síðasta ráð stefna Evrópuráðsins um end- urskoðun kennslubóka um Framh. á bls. 5 í gær var kosið i skipulags- nefnd í borgarstjórn Reykjavíkur. Þessir voru kjörnir: Gísli Hall- dórsson, Þór Sandholt og Geir- harður Þorsteinsson. Varamenn voru kjörnir: Úlfar Þórðarson, Valdimar Kristinsson og Þorvald- ur Kristmundsson. Kennarasambandi Evrópu. Auk menntamálaráðherra flutti dr. G. Neumann deildarstjóri í menningarmáladeild Evrópu- ráðsins, ávarp við setningu ráðstefnunnar í morgun. For- seti hennar var kjörinn Guð- mundur M. Þorláksson magister Rádsiefna um endurskoðun kennslubóka / landafræði hófst i REYKJAVIK / morgun Oft hefir verið að þvi fundið að lítið og stundum rangiega væri sagt frá íslandi í erlend- um landafræðikennslubókum. Nú cr sérstakt tækifæri til að bæta úr þessu og verður áreið- anlega reynt af íslands hálfu. í morgun var sett í hátíða- sal Háskóla íslands ráðstefna að forgöngu Evrópuráðsins, á vegum menntamálaráðuneytis- ins til endurskoðunar á kennslu bókum í landafræði um Norður Evrópulöndin sérstaklega. Dr. Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra, flutti ávarp við setn- ingu ráðstefnunnar, en undir- búning hennar hafa haft með höndum af hálfu menntamála- ráðuneytisins Þórður Einarsson, fulltrúi, Guðmundur Þorláks- son, magister og dr. Sigurður Þórarinsson og eru þeir Guð- mundur og Sigurður einnig fulltrúar íslands. Ráðstefnuna sækja um 40 fulltrúar frá 18 ríkjum, sem eiga aðild að Evrópuráðinu eða menningarsáttmála þess, og frá þremur alþjóðlegum stofnun- um, Menningar- og vísinda- stofnun Sameinuðu þjóðanna, Efnahagsbandalagi Evrópu og t ra setnmgu íanaairæoiraost NÝTT NÁMSEFNI UM ÍSLAND / ERLENDUM KENNSLUBÓKUM 9 sóttu um embætti yfirborgardómara Einn sófti um ytfrsækudómara-stiErf Umsóknarfrestur um embætti yfirborgardómara og yfirsakadóm- ara rann út um mánaðamótin. Sækja níu um embætti yfirborgar- dómara en aðeins einn sækir um embætti yfirsakadómara. Þessir sækja um embætti yfir- borgardómara: Bjarni Kr. Bjarna- son, borgardómari, Emil Ágústs- son, borgardómari, Guðmundur Jónsson, borgardómari, Hákon Guðmundsson, hæstaréttarritari, : Jón Finnsson, bæjarfógetafulltrúi í Hafnarfirði, Kristján Jónsson, borgardómari, Magnús Thorodd- Framhald á bls. 5. Vörulisti kvclJsölustaðu verður Á fundi borgarstjórnar Reykja vikur í gær var samþykkt að heimila fjölgun vörutegunda, sem kvöldsölur mega verzla með til kl. 23,30 Jafnframt var ákveðið að borgarráð geti heim ilað verzlunum, sem hafa til sölu „sæmilegt úrval heiztu uukiun nauðsynjavara“, að hafa opið til kl. 22 á kvöldin. Sigurður Magnússon, borgar- fulltrúi, gerði að tillögu sinni að vörutegundir yrðu ekki jafn- margar og fyrrgreind tillaga mælti fyrir um. Jafnframt lagði hann til að borgarstjórn frest- aði ákvörðun um siðari tillöguna um heimild fyrir verzlanir að hafa opið til kl. 22. Báðar til- lögurnar voru felldar, fyrri til- lagan með 13 atkvæðum gegn einu og seinni tillagan með ellefu atkvæðum gegn þrem. Sigurður Magnússon tók fyrst ur til máls um tillögurnar. Kvaðst hann vera mjög andvíg- ur tillögum um aukinn vörulista Frarnh. á bls. 5

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.