Vísir - 24.07.1964, Page 1
„Óðinn" hæsta söltun-
arstöðin á Raufarhöfn
1 hlutfalli við þá ágætis sild-
veiði, sem verið hefur í sumar,
er söltun með minna móti. Ekki
samt svo að skilja, að sáralftið
hafi verið saltað. Síðustu daga,
t. d., þrátt fyrir dræm aflabrögð,
hefur ágæt söltunarsfld borizt á
land og síðast í morgun til-
kynntu allmörg skip um afla,
góða söltunarsild. Flest þessara
skipa héldu til Raufarhafnar, en
Raufarhöfn mun í augnablikinu
vera hæsti söltunarstaðurinn.
Hæsta söltunarstöðin þar er
Óðinn með 61X1 tunnur. Er
meðfylgjandi mynd frá söltun
hjá Óðni. Aðrar stöðvar á Rauf
arhöfn fcafa saltað sem hér seg
ir: Hafsilfur 5393, Borgir 3987,
Norðursild 3415, Óskarsstöð
2277, Síldin 2027, Gunnar Hall-
dórsson 1514, Björg 1236, Skor
497, Hólmsteinn Helgason 33.
Af söltun á hæstu stöðinni, Óðni, Raufarhöfn.
Sildarsölusazmingar við Rússa fyrír helgi?
I
Samningaviðræður við
Rússana um sölu salt-
síldar til Sovétríkjanna
standa enn yfir. Árang-
urslausar tilraunir til
samkomulags hafa farið
fram að undanförnu, en
vonir standa hins vegar
til að samningar takist
fyrir helgina. Er fundur
haldinn í dag.
Blaðið hafði í morgun tal af
Erlendi Þorsteinssyni formanni
Sildarútvegsnefndar og sagði
hann svo frá, að enn hefði ekki
slitnað upp úr samningaviðræð-
um, og vonir stæðu til að sam-
komulag næðist fyrir eða um
helgina.
Skilmálar þeir, sem Síldarút-
vegsnefnd setur, munu vera þeir,
að Rússar borgi sambærilega og
aðrir þeir aðilar, sem saltsíld
kaupa. Þar eð Sovétríkin hafa
verið „clearing" land, hafa þau
náð hagkvæmari kaupum en aðr
ar þjóðir hingað til, en sú sér-
staða er hvergi sú sama og áð-
ur. Rússarnir hafa að nokkru
leyti viðurkennt þessi sjónarmið
nú.
Síldarútvegsnefnd stendur
sömuleiðis mun betur að vígi nú
en áður, þar sem þegar hafa
verið gerðar óvenju góðar síld-
arsölur til annarra þjóða en
Rússa, fyrr í sumar.
I
DILKAKJÖT Á ÞROTUM
Um þessar mundir eru kjöt-
kaupmenn hver á fætur öðrum
að verða uppiskroppa með
dilkakjöt. Má búast við, að helg
in núna, verði sú síðasta sem
hægt verður að fá kjöt. Mun
það ekki verða aftur á boðstól
um fyrr en eftir sumarslátrun,
sem hefst um miðjan ágúst.
Er þetta óvenjusnemma, sem
dilkakjötið þverr. Áfram mun
hins vegar fást nautakjöt, ali-
kálfakjöt og ærkjöt, en það
síðastnefnda er eins og nafnið
bendir til, kjöt af eldra sauðfé.
Mikil óánægja er ríkjandi
meðal kjötkaupmanna með
verðlagningarákvæði á allri
kjötvöru og hafa þeir hugsað
sér til hreyfings í því sam
bandi. Fullyrða kjötkaupmenn
að kjötverð sé Iangt undir
sannanlegum dreifingarkostnaði
selt fyrír 77
milljónir króim
Á þremur síðustu mánuðum j Reykjavík miðað við fólksfjölda.
eyddu Islendingar 77 milljónum I Þar var vín keypt fyrir 64 milljónir
króna í brennivínskaup. Talan fyr-
ir apríl, maf og júní er 77 millj.
og 620 þúsund krónur. Á sama
tíma í fyrra var talan 69 millj. 505
þúsund. krónur. Athyglisvert er, að
langmest er keypt af brennivíni í
Heildaraflinn fyrsta órsfjórðunginn 1964:
íslenzkir fkkhma fengu 75 þús.
tonnum meiri afla, eis úríðúBur
BLAÐIÐ I DAG
Bls. 2 íþróttir.
— 3 í boði pólska sendi-
fulltrúans. Myndir
og texti.
— 4 Hún syngur dægur-
Iögin. — Viðtal.
— 5 De GauIIe deilir
við Bonn.
— 9 Öfgamaðurinn
Goldwater. — Föstu
dagsgreinin.
1
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
veiddu íslenzkir fiskimenn 345.283
tonn af fiski, sem er 75 þús. tonn-
um meira en á sömu þrem mán-
uðum í fyrra. Af þessum afla fluttu
bátarnir 325 þús. tonn í land, en
hlutur togaranna var mun rýrari,
rúm 20 þús. tonn.
I þessum afla bar vitaskuld mest
á þorski. Af honum bárust á land
219.196 tonn, síld 65.028 tonn og
ýsu 22.983 tonn.
Af þorskaflanum fóru 109.003
tonn í frystingu, 72.580 tonn í sölt-
un, 68.610 tonn í hérzlu, 15.180
tonn í ís, 4.838 tonn í innanlands-
neyzlu, 1.291 tonn í mjölvinnslu
og 24 tonn í niðursuðu. Af síldinni i tonn í frystingu og 3.231 tonn í
fóru 60.807 tonn í bræðslu, 9.630 ; söltun.
þessa þrjá mánuði. Næst kom sal-
an á Akureyri, sjö og hálf milljón
krónur, 2.1 millj. kr. á ísafirði, 1.5
millj. á Siglufirði og 2.2 millj. á
Seyðisfirði.
Dagmóla-
glenna
Reykvíkl _;ar, sem voru
snemma á ferli í morgun, góm-
uðu þá fáu sólargeisla, sem
skinið hafa á höfuðborgina und
anfarna daga. Þétta reyndist þó
aðeins vera dagmálaglenna.
Veðurstofan fullvissaði okk-
ur um að áframhald yrði á SV-
kalda og skúrum. Hins vegar
mætti búast við ágætu veðri á
Norður- og Norðausturlandi.
Eftirlit með
sett á lc
dfst
Sett hefur verið á laggirnar
j embætti umsjónarmanns með
1 j, gisti- og veitingahúsum i land-
!:§ inu. Er þetta gert samkvæmt
reglugerð frá 30. júní 1964, og
er margt merkra nýmæla að
finna í reglugerðinni. Er vald
umsjónarmannsins mikið og get-
ur nann látið Ioka veitingahúsi
fyrirvaralaust, finnist honum á-
stæða til slíks.
Umsjónarmaður með gistihús-
um var ráðinn Edward Frederik-
sen og starfar hann undir um-
sjón landlæknisembættisins og
Framh. á bls. 6.