Vísir - 24.07.1964, Side 11

Vísir - 24.07.1964, Side 11
tflSIR . Föstud^gur 24. júlí\1964. . a&Bm&iigmffiSBBaissz^ssszaiSBiMeSíL ~~ 17 strákar fóru með Sæbjörgu Um tvöleytið í fyrradag mættu 17 strákar á aldrinuri 13-17 ára um borð í skólaskipið Sæbjörgu, sem skömmu síðar hélt á veiðar á vegum sjóvinnu námskeiðs Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Ferðin mun taka um 3 vikur, en fyrst verður haldið á miðin vestur á Breiða- fjörð. Ætíð er mikil eftirspum eftir plássi á skólaskipinu og skömmu eftir að Æskulýðsráð auglýsti ferð á Sæbjörgu fyllt ist listinn, en flest allir dreng- irnir, sem fóru út 'með Sæ- björgu í fyrradag, hafa tckið þátt í sjóvinnu námskeiði á veg um ráðsins. Arnað heilla I Laugardaginn 18. júlí voru geiin saman f hjónaband af séra Þor- steini Björnssyni, ungfrú Kirsten Friðriksdóttir og Ingólfur Hjart- arson. Heimili þeirra verður að Hamrahlíð 13. (Ljósm.stofa Þóris Laugavegi 20B). Fyrst verður veitt á handfæri en síðan verður drengjunum kennt að leggja lúðulóð. Skip- herra á Sæbjörgu er Helgi Hall varðsson, stýrimaður Hörður Þorsteinsson, en hann hefur ver ið aðalleiðbeinandi drengjanna á sjóvinnunámskeiðunum. ^ sjóður Á 83 ára afmæli síra Rögnvalds Péturssonar D.D. og dr. phil. stofn uðu frú Hólmfríður Pétursson, ekkja hans, og dóttir þeirra, ung- frú Margrét Pétursson B.A., sjóð til minningar um hann. Tilgangur sjóðsins er að styrkja kandídata í íslenzkum fræðum frá Háskóla íslands til framhaldsnárns og undirbúnings frekari vísinda- starfa. Ætlunin er að veita nú í ár í fyrsta sinn styrk úr sjóði þess- um. Umsóknarfrestur um styrk úr sjóðnum er til 10. ágúst n.k. Skal senda umsóknir á skrifstofu Há- skóla íslands, sem veitir frekari upplýsingar um styrk þennan. Minni n garsp j öld Minningarspjöld Sjálfsbjargar fást á eftirtöldum stöðum: 1 Reykjavík: Vesturbæjar apótek Melhaga 22, Reykjavíkur apótek Austurstræti, Holts apótek Lang holtsvegi, Garðs apótek Hólm- garði 32. Bókabús Stefáns Stefáns sonar Laugavegi 8, Bókaverzlun Isafoldar Austurstræti, Bókabúð in Laugarnesvegi 52 Verzlunin Roði laugavegi 74 Minningarspjöld Kvenfélags Nes- kirkju fást á eftirtöldum stöðum: Verz!, Hjartar Nilsen, Templara- sundi. Verzl. Steinnes Seltjarn- amesi, Búðin mín, Víðime) 35 og hjá frú Sigríði Árnadóttur, Tóm- asarhaga 12. Spáin gildir fyrir laugardag- inn 25. júlí. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Þú ættir að halda þig inn- an þinna landamerkja, því að slíkt mundi forða þér frá því að lenda í ýmiss konar deilum. Reyndu að draga úr fjárútlán- unum. Nautið, 21. apríl til 21. maf: Þar eð þú verður að halda því trausti, sem þú hefur áunnið þér hjá félögum þínum, ættirðu að forðast að láta undan þeirri tilhneigingu að grobba. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní: Þar eð enginn getur vænzt þess að fá hlutina ó- keypis, þá ættirðu að gæta þin á ókunnugum, sem gætu verið að reyna að selja þér hluti, sem þú hefur engin not fyrir. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þú ættir ekki að taka þátt í aðgerðum, sem eru of erfiðar likamshreysti þinni eða pyngju. Það er þitt að ákveða, hvað þú aðhefst. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst: Það ætti að taka tillit til hags- muna allra fjölskyldumeðlim- anna, áður en nokkur mikilvæg ákvörðun hefur verið tekin. Sérstaklega ef peningarnir eru þessu viðkomandi. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept: Hafðu auga með fatnaði þínum til að forða skemmdum á hon- um, sérstaklega fyrir tilverknað skordýra. Þú hefur tilhneigingu til áhyggna án raunverulegra ástæðna. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Þér mun reynast nokkuð erfitt að standast þá freistingu að festa kaup á hlutum, sem þér lízt vel á, án þess að þú hafir raunverulega not af þeim. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Þú ættir ekki að reyna að blekkja sjálfan þig með þvi að álíta, að þú sért á framfara- braut. Hið gagnstæða gæti auð veldlega verið ’ tilfellið. Vinir þínir gætu frætt þig um ýmis- legt. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Þú hefur tilhneigingu til að pexa yfir hlutum, sem ekki gengu alveg að þínu skapi. Það virðist betra að leggja málið á hilluna í bili, þangað til i ágúst. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Kröfur einhverra vina þinna eða kunningja gætu farið í skapið á þér, sérstaklega ef fjármunir eru með í spilinu. Leggðu drög að framtíðará- formunum. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Markmið þín kynnu að vera miður vel valin, sérstak- lega með hliðsjón af þörfum náinna félaga þinna eða maka. Einhverjar efasemdir leita á þig. .i.rhwT,r,nqiÍ3aa3pt FRÆGT FÓLX Ef Barry Goldwater tekst að komast í forsetaembættið við næstu kosningar, verður það ekki í fyrsta skipti sem hann sest í forsetastólinn. Eitt sinn þegar hann kom í heimsókn til Kennedys, þegar Svinaflóahneykslið stóð sem hæst, þurfti hann að bíða eft ir forsetanum. Þegar svo „The Little Fox Theatre" mun á næstunni sýna þögla mynd, og það eina sem heyrist verður dynjandi píanóleikur. Meiningin er að upplifa á nýj- an leik, gamla andrúmsloftið og myndirnar verða gömul meistaraverk með þeim Bust- er Keaton og Charlie Chaplin. Og það verður jafnvel til gam ans, teknar upp gömlu lil- kynningarnar sem svo oft hljómuðu um salinn: — Oss þykir þetta leitt, en sýningarstjórinn er full- ur. Það einasta sem verð- ur einhver nýtízku blær á, er verðið, sem verður 1-2 dollar- ar, í stað 10—25 centa, eins og áður var. Barry Goldwater Kennedy kom inn í skrifstof- una sat Barry í stólnum hans. — Aha sagði Kennedy glott- andi, þú vildir auðvitað gjarn an hafa mitt starf? — Nei, það vlldi ég ekki svaraði Barry, hvað sem í boði væri. Þvf miður virðist hann nú hafa skipt um skoðun. * Þegar de Gaulle er heima í sínum elskaða heimabæ, Colombey-les-Deux Eglises, fer hann mjög oft í kirkju (þá Xr Tgarage 0 Copyright P. B. Bo» 6 Copenhogen De Gaulle einu á staðnum). Og hann trú ir vlnum sínum fyrir þvf að hann fari aldrei erindisleysu. — Þó að predikanirnar séu ekki alltaf fyrsta flokks, þá nýt ég þess alltaf jafnmik ið að lesa latnesku áletrunina yfir dyrunum. En sú áletrun er á þessa leið: Ég er ekki villuráfandi. Ég þokast nær markinu eftir réttum Ieið- um. — (Lausl. þýtt). ídi____

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.