Vísir


Vísir - 28.09.1964, Qupperneq 1

Vísir - 28.09.1964, Qupperneq 1
Lögreglcn greip þjófmeð peningakassa í fanginu „Það hlýtur að vera augljóst hvað ég ætlast fyrir,“ sagði þjóf ur einn, sem Keflavíkurlögregl- an stóð að verki í fyrrinótt í Kaupfélagi Suðurnesja, þegar hann var inntur eftir erindi. Maður einn, sem átti leið um Reykjanesveginn og fór fram hjá útibúi Kaupfélags Suður- nesja um nóttina, varð var við mannaferðir f verzluninni og Framh á bls. 6. SKÝRSLA WARREN-RANNSÓKNARNEFNDARINNAR BIRT í GÆR í gærkvöldi var birt í Washington skýrsla hinnar sérstöku nefndar, sem rannsakað hefur morðið á Kennedy, War- ren-nefndin, eins og hún er kölluð eftir formanni hennar, Earl Warren hæstarétt- ardómara. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu, að Lee Har- vey Oswald hafi verið morðinginn og að hann hafi verið einn að verki, ekki hafi verið um að ræða neitt samsæri, hvorki innlent né erlent og hann hafi ekki verið leigumorðingi neins. Hún telur einnig að næturklúbbseigandinn Jack Ruby hafi verið einn um morð Oswalds og hafi þeir ekki þekkzt. Skýrsla Warren-nefndarinnar er geysilangt plagg, hún er upp á 888 blaðsíður. Störf hennar tóku 10 mánuði og hafa verið unnin af mikilli nákvæmni. Nefndin hefur átt samtöl við 25 þúsund manns í sam- bandi við rannsóknina og tekið við 4 þúsund sérstök- um skýrslum. Þessar eru helztu niðurstöður hennar: 1) Skotin, sem urðu Kennedy forseta að bana og særðu John B. Connally fylkisstjóra í Texas, komu frá suðaustur hornglugga á sjöttu hæð Texas bóka- geymslunnar. 2) Sönnunargögnin benda til þess, að þremur skot- um hafi verið hleypt af. Eitt þessara þriggja skota hæfði ekki. Það er ekki hægt að ganga úr skugga um, hvaða skot í röðinni það var sem ekki hæfði. 3) Það eru „mjög sannfærandi sönnunargögn“ frá sérfræðingum, sem benda til þess, að sama byssu- kúlan hafi hæft forsetann í hálsinn og sært Connally fylkisstjóra, Það var fyrri byssukúlan af tveim, sem hæfðu forsetann. 4) Skotunum, sem bönuðu Kennedy forseta og særðu Connally fylkisstjóra, skaut Lee Harvey Os- wald. 5) Oswald myrti J. D. Tippit lögreglumann í Dallas um 45 mínútum eftir morðið á forsetanum. 6) 80 mínútum eftir morðið á forsetanum og 35 mínútum eftir morðið á Tippit lögreglumanni sýndi Oswald lögreglumönnum mótspyrnu, þegar átti að handaka hann í kvikmyndahúsi í Dallas og gerði þá tilraun til að skjóta annan Dallas-lögreglumann. 7) Lögreglan beitti Oswald engum likamlegum þvingunum, þó valdbeiting væri nauðsynleg til að framkvæma handtöku hans. Hann varð hins vegar að þola „ágang“ vegna þess „ótakmarkaða aðgangs", sem blaðamönnum var veittur að svæði því, þar sem hann var leiddur um ganga milli fangaklefa og annarra staða í lögreglubyggingunni. Þær mörgu yfirlýsingar, sem lögreglan gaf, stundum rangar, eftir handtöku hans hefðu orðið alvarlegir þröskuldir í vegi fyrir sannsýnu réttarhaldi yfir honum. 8) Jack Ruby drap Lee Harvey Oswald. Það er ekkert sem bendir til þess að hann hafi notið neinnar aðstoðar löggæzlumanna í þeim tilgangi. Það voru mistök hjá Dallas-lögreglunni að reyna að flytja Os- wald til héraðsfangelsisins fyrir opnum tjöldum. 9) Nefndin fann ekkert sem benti til þess, að Lee Harvey Oswald eða Jack Ruby hefðu verið þátttak- endur í neinu samsæri, hvorki innlendu né erlendu, um að myrða Kennedy forseta. Ennfremur fann nefnd in ekkert sem benti til þess, að Oswald hefði verið ráðinn, eða hvattur af neinni erlendri ríkisstjóm. 10) I allri rannsókninni fann nefndin ekkert sem benti til samsæris, skemmdarstarfs eða óhollustu við Bandarfkjastjóm hjá neinum embættismanni ríkis, fylk is eða borgar. 11) Oswald var einn um verkið. Um hvatir hans til þess er ekkert hægt að ákveða með vissu, en nefndin bendir á viss atriði, svo sem andúð hans á öllu valdi, löngun hans til að verða skráður á siður mannkynssögunnar, ofbeldishneigð hans og yfirlýstur uppreisnarandi hans gegn Bandaríkjunum. 12) Að lokum lýsir nefndin því yfir, að nauðsyn- legt sé að endurbæta aðferðir þær sem notaðar eru til að vemda líf Bandaríkjaforseta. I8H Oskapleg gassprenging / Kaupmannahöfn Menn héldu uð kjnrnorkuárós hefði verið gerð á borginu Á laugardagsmorgun kviknaði f tveimur gömlum gasgeymum í borgarhverfinu Valby f Kaupmannahöfn. í þeim voru samtals 140 þúsund rúmmetrar af gasi og orsakaði þetta svo ofsalega spreng- ingu, að hverfið umhverfis liggur svo að segja f rústum, líkast því sem grimmdarleg loftárás hefði verið gerð á það. Þegar sprengingin varð, gusu eldsúlur upp.af báðum gasgeym- unum, gasið dreifðist um nærliggjandi hémð og kviknaði í því hér og þar yfir nærliggjandi húsum, svo að þekjur bmnnu. að segja í rústir, en heita má að allar rúður í 5 kllómetra fjar- EINS OG FELLIBYLUR. Sprengihvellurinn varð svo mikill að hann heyrðist um alla Stór Kaupmannahöfn og víðar , um Sjáland. Fylgdi honum því- likur sprengjuþrýstingur, að ofsaleg stormhviða myndaðist - líkt og f fellibyl og olli feyki- legu sprengjutjóni, þrjár nær- Iiggjandi húsaraðír lögðust svo ^vwvwwwwvwww lægð hafi sprungið. Þaksteini, sperrum og bjálkum rigndi nið- ur yfir gangstéttirnar. Bílar sem voru á staðnum eða óku eftir nærliggjandi götum tókust upp og köstuðust á húsveggi. Öll nærliggjandi hverfi lágu í iðu- lausu braki, múrsteinum og gler brotum. Þegar menn heyrðu sprengi- hvellinn út um alla Stór Kaup- mannahöfn og sumir sáu bloss- ann og gorkúlumynduð reykský in sem mynduðust á eftir yfir sprengistaðnum, þá greip ofsa- hræðsla um sig f allri Kaup- mannahöfn. Þeim grun sló mjög sterklega niður og hann breidd- ist út um borgina, að ný heims styrjöld væri hafin og kjarn- orkusprengjum hefði verið varpað á Kaupmannahöfn. í hverfinu þar sem skemmd- imar urðu mestar kom til hins mesta uppnáms og fólk fylltist ofsahræðslu. Um 300 manns höfðu ver’ið í húsröðum þeim er næst eru gasverkinu. Fáir þeirra höfðu sloppið með öllu óskadd- aðir, einkum voru margir illa leikn'ir af glerbrotunum, sem þeyttust þúsundum saman inn í Framh. á bls. 6. VÍSIR birtir Warren- skýrsluna ! VÍSIR mun birta f heild aðal- i kafla Warrenskýrslunnar. Fyrsti | hlutinn birtist í dag á bls. 7. i Segir frá sjálfum atburðinum, 1 morðinu á Kennedy forseta. — | Annar hluti birtist á morgun og i segir frá flótta Oswalds og 1 handtöku hans. Myndin var tekin í gær í rústum gasstöðvarinnar. Nálæg hús liggja einnig í rústum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.