Vísir - 19.11.1964, Blaðsíða 3
VI S IR . Fimmtudagvir 19. nðvember 1964
3
\
Alþýðusambandsþing hefur nú
staðið í nokkra daga og fer að
Ijúka. Þingið hefur verið fremur
rólegt miðað við hin stormasömu
þing undanfarinna ára. Mun
samkomulag verkalýðshreyfingar-
innar við ríkisstjórnina, hið svo-
nefnda júní-samkomulag, eiga
stærsta þáttinn í þeim friði, er
skapazt hefur um verkalýðshreyf
inguna undanfarið. En enda þótt
friður hafi verið á yfirborðinu
vestur í KR-húsi við Kapiaskjóls-
veg, hefur þó verið talsverð ólga
undir niðri. Það hefur ríkt óvissa
um næstu sambandsstjóm og
stöðugir samningar verið á bak
við tjöldin milli foringja þingsins.
☆
Ljósmyndari Vísis hefur verið á
ferð vestur í KR-húsi og tekið
noklcrar myndir af þingfulltrúum.
Birtir Myndsjáin í dag árangur-
inn. Sem sjá má, eru hér bæði
myndir af þingfulltrúum I sætum
sinum, svo og þar sem þeir ræð-
ast við á göngum, er þreytan seg-
ir til sín eftir Ianga setu á þing-
bekkjum. Þingfulltrúar þurfa mik-
ið að stinga saman nefjum ,ekki
hvað sízt foringjamir.
☆
Fulltrúar utan af landi: Benedikt Þorsteinsson frá Jökli á Homafirði,
Guðmundur Bjömsson frá stöðvarfirði, foringi Framsóknarmanna á Al-
þýðusambandsþingi og Steingrímur Bjamason frá Verkalýðsfélagi Reyð-
arfjarðar.
Hermann Guðmundsson, formaður Hh'far í Hafnarfirði, og Eggert G.
Þorsteinsson frá Múrarafélaginu.
Fulltrúar Sjómannafélags Reykjavíkur og Verkavennafélagsins Framsóknar sitja hér hlið við hlið. Hér sjást
talið frá vinstri: Pétur Sigurðsson, ritari Sjómannafélags Reykjavíkur, Helga Guðmundsdóttir frá Framsókn,
Jóna Guðjónsdóttir, formaður Framsóknar og Jóhanna Egilsdóttir, fyrrverandi formaður Framsóknar.
Guðrún Norberg frá Flugfreyjufélagi íslands, Jóna Magnúsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir og Anna
Maria Sigurbjörnsdóttir frá Iðju.
□