Vísir - 21.12.1964, Blaðsíða 5
V í S IR . Mánudagur 21. desember 1964.
5
Spil í gjafakössum
f meira úrvali en nolckru sinni fyrr, þar á meðal ekta plastspil,
mjög vönduð kabalspil. Einnig ódýr barnaspii og vanaleg spil
í miklu úrvali.
Jarðlíkön
margar gerðir, með Ijósi (tilvaldir sjónvarpslampar) og án ljóss.
Skrifmöppur,
úr ekta leðri, mjög mikið úrval, margar stærðir. Einnig sérstak-
lega ódýrar skrifmöppur úr leðurlíki.
Skfulatösktsr
úr ekta Ieðri, 30 tegundir, fallegar, vandaðar og ódýrar.
Seðlaveski
úr ekta Ieðri, 25 tegundir. Verðið sérstaklega lágt.
Skartgrípaskrin
klædd ekta leðri. Einnig með gervileðri. Falleg og vönduð (með
læsingum).
Ljésmynda^Sbúm •
í miklu úrvali. Þar á meðal albúm úr ekta leðri.
Pappírshnáfar og pappírsskærð
í failegum Ieðurhylkjum, 20 tegundir. Nytsöm og falleg jólagjöf.
Bréfakörfur,
40 tegundir, sérstaklega fallegar. Ódýr en hentug jólagjöf.
Gestobækur og minningabækur,
margar tegundir.
Taflmenn og toflborð
úrvals vara. Einnig Ludo, Umferðarspilið, 5-spil, 7-spiI, mikið
úrval af pússlispilum, mótunarleir í fallegum kössum.
Reiknistokkar,
margar tegundir, mjög vandaðir.
Síma-stafróf,
mjög falleg.
Bréfsefnakassar
í miklu úrvali.
Vatnslifaskrín og litkrítaröskjur
ágætar tegundir.
Sjólfblekungar og kúlupennar
í því úrvali sem nafni verzlunarinnar sæmir.
;i i
Pappírs- og ritfangaverzlunin
Hafnarstræti 18 — Laugavegi 84
og Laugavegi 176 rtieS nægurti bílastæðum.
M n gsjá Vísi
iðsina
þingi undanfarna daga og þá eink
um um frv. ríkisstjórnarinnar um
hækkun söluskatts. Síðastliðinn
föstudag kom frv. frá nefnd í
efri deild. í upphafi þeirrar um-
ræðu kvaddi forsætisráðherra sér
hijóðs og sagði, að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að Iækka fyrirhug-
aða skattheimtu um V2%.
Þá mælti Ólafur Björnsson fyr
ir áliti meirihluta fjárhagsnefndar
á frv., sem álítur að samþykkja
beri það.
Helgi Bergs mælti fyrir áliti 1.
minnihl. nefndarinnar og Björn
Jónsson mælti fyrir áliti 2. minni
hl. nefndarinnar. En á þessum
fundi var lokið 2. og 3. umr. máls
ins og því vísað til neðri deildar.
Á sama fundi voru afgreidd tvenn
!ög, frv. um leiklistarstarfsemi á-
hugamanna og frv. um stýri
mannaskóla í Vestmannaeyjum.
Síðastliðinn laugardag var sölu
skattsfrv. svo tekið til 1. umr. i
neðri deild. Fjármálaráðherra
mælti þar fyrir frv. og kom það
skýrt fram í ræðu hans, að þessi
skattheimta er nauðsynleg tekju-
öflun fyrir ríkissjóð til að mæta
auknum niðurgreiðslum og halda
vísitölunni niðri.
Að lokinni ræðu ráðherrans
tóku til máls þeir Eysteinn Jóns-
son, Lúðvik Jósefsson, Ingvár
Gíslason o. fl. og stóð fundur
fram eftir kvöldi.
Búast má við, að 2. umr. í neðri
deild fari fram í dag, en í kvöld
verða útvarpsumræður við 3.
umr. frv.
í efri deild voru 3 frv. afgreidd
sem lög frá Alþingi. Voru það
frv. um ríkisreikning 1963, frv.
um Háskóla íslands, þ. e. um
stofnun nýs prófessorsembættis í
læknisfræði og frv. um verðlags-
ráð Sjávarútvegsins.
Þetta var síðasti fundur efri
deildar fyrir jólaleyfi og kvaddi
forseti þingmenn og óskaði þeim
gleðilegra jóla og heilla á kom-
andi ári Karl Kristjánsson þakk-
aði forseta og árnaði honum og
fjölskyldu hans góðrar hátíðar og
tóku þingmenn undir þau orð með
því að rísa úr sætum.
Síðastliðinn laug
ardag lagði fjár-
nálaráðherra,
'íunnar Thorodd-
sen, söluskatts-
frv. fram í neðri
deild.
Fer hér á eftir
aittur úrdráttur
úr ræðu hans.
Samkv. júnísamkomulaginu var
ákveðið að halda verðlagi niðri
með niðurgreiðslum, að ríkissjóð-
ur skvldi greiða niður vísitöluna
þangað til Alþingi kæmi saman
eða fram til áramóta. Vmsar aukn
ar niðurgreiðslur komu svo til
framkvæmda á sumrinu, og var
sú mesta þeirra í sánibandi við'
landbúnaðarvörur. En þó svo
væri ákveðið að ha'da vísitölunni
óbreyttri fyrst um sinn, þá mátt'
'illum v. ’a lióst, að það yrði ekki
hægt til lengdar með auknum nið
urgreiðslum nema með nýjum
skattaálögum. Fjárlagafrv var
hins vegar miðað við niðurgreiðsl
ur áður en sam'ð var í júní, en í
athugasemdum með frv. var gert
ráð fyrir að mæta hinum auknu
niðurgreiðslum með sérstökuni
ráðstöfunum, sem Alþingi mark-
aði. Þess vegna er frv. fram kom-
ið.
ÚTGJALDAAUKNING
Með þessari skattaálagningu
mun vísitalan hækka nokkuð og
þá kaupgjald um leið. eða um 3%.
Til þess að halda niðurgreiðslum
áfram, þarf 207 millj. í nýjar tekj-
ur á næsta ári og tillögur fjár-
veitinganefndar nema 55 millj. —
Vegna kauphækkunarinnar aukast
útgjöld ríkissjóðs um 42 millj.
Það fé, sem þarf að afla á móti
þessum útgjöldum, er sem næst
311 millj. kr.
Það hefur að sjálfsögðu verið
athugað hvort fært þætti að
hækka verulega tekjuáætlun fjár-
laga fyrir næsta ár, þannig að
komast mætti hjá nýjum álögum
að einhverju eða öllu leyti. Sú
athugun leiddi í ljós, að ekki þætti
ráðlegt að hækka tekjuáætlunina
frá því sem var, nema hvað
snerti aðflutningsgjöldin, sem tal
in eru nema 24 millj. kr., svo og
smávægilegan gengismismun frá
gjaldeyrisbönkunum.
Það skal tekið fram, að það er
álit Efnahagsstofnunarinnar, að
tekjuáætlun fjárlaga sé í hæsta
lagi.
Til flð mæta þessum útgjöldum,
hefur svo verið ákveðið auk þeirra
liða, sem þegar eru tilgreindir, að
hækka gjöld af innfluttum bif-
reiðum um 25%, þannig að það
nemi 28 millj. kr. og svo hækka
söluskatt um 2%, þannig að hann
gefi samtals 246 millj. kr. og er
það sem næst sú upphæð, sem
til þarf.
JÖFNUNARSJÓÐUR .
SVEITARFÉLAGA.
Það er ekki gert ráð fyrir að
hluti þessarar hækkunar renni
til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Gildir hér hið sama og um hækk-
unina í janúar s 1. Sú hækkun
rann ekki að neinu leyti til sveit
arfélaganna og eru ástæðurnar
augljósar. Þessi söluskattshækkun
á fyrst og fremst að standa undir
niðurgreið^lum, sem auðvitað
koma sveitarfélögunum til góðs,
eins og öðrum, því ef ekki væri
aflað fjár til að halda vísitölunni
niðri, mundi kaupgjald hækka og
allur kostnaður aukast. Efnahags-
ástæður þær, sem lágu til þess að
veita sveitarfélögunum hluta af
söluskatti árið 1960, eiga ekki við
um þennan söluskattsauka.
Frumvarp það, sem hér liggur
fyrir, um Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga, er aðeins formbreyting varð
andi útreikning þess hluta sölu-
skattsins, sem á að renna 1 jöfn-
unarsjóðinn.
VEGGHILLUR
Vegghillur til sölu. Stærðir 20x80, 25x80 og
30x80. Hagstætt verð. Sími 41876 kl. 2—7 og
60076 eftir kl. 8 e. h.