Vísir - 21.12.1964, Blaðsíða 6
6
VISIR . Mánudagur 21. desember 1964.
ÍÞRÓTTIR —
Pramhald af bls. 2.
aftnr 1 J7:17 og 18:18, en þá voru
aðeins ðrfáar sek eftir aí leik.
Helgi Amason skoraði þá 19:18,
en ndstök Þróttara og skotgræðgi
varö til þess að Hermann komst
upp og skoraði 19:19 og skömmu
sfðar náði Hermann bolta úr döm-
arakasti, sem Þróttari sló til hans
og sigurmark'ið kom þannig óbeint
frá Þróttara, 20:19.
Beztu menn í þessum leik, sem
var ágætur og vel leikinn,-' voru
þeir Hermann Gunnarsson, Berg-
ur Guðnason og Stefán Sandholt
hjá Val, en af Þrótturum var Guð-
mundur Gústafsson markvörður
beztur ásamt þeim Birgi Þorvalds-
syni og Hauki Þorvaldssyni, en
Þórður Ásgeirsson kom ágætlega
frá þessum leik.
Flest mörkin skoruðu:
Valur: Bergur Guðnason 8, Sig-
urður Dagsson 4, Gunnsteinn Skúla
son 4, Hermann 3. Þróttur: Hauk-
ur Þorvaldsson 6, Þórður Ásgeirs-
son 4, Grétar Guðmundsson 4.
Dómari var Daníel Benjamínsson
og dæmdi vel. —jbp —
Stal bíl —
Framh at bls 1
stjórinn þá hafa veitt athygli bif-
reið sem ekið var á ofsalegri ferð
suður Bergstaðastrætið og hefði
strax verið sýnilegt að ökumaður
inn hafði enga stjórn og ekkert
vald á henni annað en að stíga á
benzíngjafann. En það hafði hann
Iíka gert rækiiega.
Þegar bifreiðin var komin á
móts við Bergstaðastræti 64 lenti
hún á Ijósastaur, fyrir framan
Bergstaðastræti 68 lenti hún á um
ferðarskilti og loks skall hún með
heljarafli á ieigubifreiðinni og
sneri henni í hálfhring. Var hún
óökuhæf á eftir og stórskemmd.
Bílstjórinn fékk högg á brjóstið, ef
stýrisútbúnaðurinn færðis^ úr
skorðum, en taldi sig þó órrieidd-
an.
Bifreiðin, sem árekstrinum olli,
kastaðist upp á gangstéttina hin-
um megin við götuna og stað-
næmdist þar sem ein ruslahrúga.
í henni sat dauðadrukkinn piltur,
17 ára gamall og voru engir far-
þegar með honum. Hann mun hafa
sloppið lftið sem ekkert meiddur
eftir allar þessar aðfarir. Hins veg
ar munaði litlu að hann væri bú
inri að aka á konu sem var á gangi
eftir Bergstaðastrætinu rétt áður
en hann skall á leigubílnum.
Við nánari eftirgrennslan lög-
reglunnar kom í Ijós að pilturinn
sem árekstrinum olli var ekki að-
ein drukkinn, heldur og réttinda-
Iaus og loks hafði hann tekið bif-
reiðina í leyfisleysi og án vitundar
eigandans, en þeir höfðu verið sám
an áður um daginn.
Pilturinn var færður 'í fanga
geymsluna.
Eldur —
Framh at bls. 16
skipti kvatt út um helgina.
Síðdegis í gær var það kvatt að
Úthlíð 4. Þar voru menn að gera
við bíl og voru með benzín í fati,
við að þvo bremsuskálina á bíln-
um. Vissu þeir ekki fyrri til en
benzínið í fatinu stóð í björtu báli
En slökkvitæki var í skúrnum o?
gátu mennirnir slökkt eldinn sjá '
ir áður en teljandi tjón hlauzt af
í bækistöð Skógræktarfélap
Reykjavíkur í Fossvogi kvikriáð
í gær og varð nokkur eldur I mið
stöðvarklefa hússins. Dyraumbún
aður sviðnaði eða brann, en þá
tókst að stöðva frekari útbreiðslu
eldsins.
Á laugardaginn voru smáíkvikn
anir á Týsgötu 5 og Bolholtl 4, en
ekki teljandi tjón, nema þá helzt af
reyk.
Aðfaranótt laugardagsins var
slökkviliðið gabbað að Hrísateig 19
Sjónvarp —
Framhald af bls. 1
500 watta. orku og nái yfir
Reykjavík og allstórt svæði aust
ur og vestur, en það er fyrsti
áfangi íslenzks sjónvarps.
— Verkfræðingar Landssim-
ans hafa verið okkur ráðgef-
andi um öll tæknileg atriði, en
auk þess höfum við fengið h'ing-
að tvo erlenda verkfræðinga tii
skrafs og ráðagerða. Annar var
hér í haust, Skoti að nafni Beck-
er, en hann starfar við ráðgef-
andi sjónvarpsstofnun í Skot-
Iandi. yHinn var hér fyrir örfá-
um dögum. Það var yfirverk-
fræðingur norska sjónvarpsins
og útvarpsins og heitir Lövaas.
Hann hefur unnið að norska
sjónvarpinu frá upphafi, Lövaas
leizt vel á íslenzka sjónvarpið
og þær byrjunarframkvæmdir,
sem hafnar eru.
— Þá hef ég skrifað mörgum
erlendum sjónvarpsstöðvum og
fyrirtækjum og spurzt fyrir um
erlent efni t'il sölu eða leigu.
Eru svör óðum að berast og
hafa undirtektir verið góðar.
Listi hefur verið gerður yfir rúm
lega 20 íslendinga, sem hafa
kynnt sér sjónvarpsmál, sumir
mikið en aðrir minna. Flestir
eru þetta tæknimenn, og einriig
eru þar dagskrármenn, en miklu
færri.
— Gert er ráð fyrir, að sendi-
stöð og studio verði í fyrstunrii
til húsa í gömlu stuttbylgjustöð-
inni á Vatnsendahæð, er það tal
ið gott hús til þessara hluta, en
verið er enn að rannsaka og
mæla nokkur tækriileg atriði í
sambandi við húsið. í kostnað-
aráætluninni hefur þó verið gert
ráð fyrir, að byggt verði nýtt
hús.
Árekstur —
Framh at bls K
skipsins, höfðu ekki enn borizt
fregnir af því, hve miklar
skemmdirnar voru, og hefur enn
ekki ver'ið afráðið, hvort áhöfn-
in kemur heim eða bíður áfram.
Barði er tæpra 260 tonna
fiskiskip, .s.níðaður í Veb Elbe
Werft í Boizenburg í Austur-
Þý-'••'Iandi, einn tíu skipa, sem
smíðuð eru eftir sömu teikningu
fyrir íslenzka aðila. Til lands-
ins eru þegar komin Keflvík-
ingur og Krossanes, en Halkion
er á leiðinni. Barði átti að vera
fjórða skipið í röðinrii.
Innbrot
Framhald af bls. 16.
Seinna sömu nótt réðist óvel-
kominn gestur að húsi nr. 30 við
Tjamargötu og braut 2 rúður í
því. Lögreglunni var tilkynnt um
athæfið, en maðurinn var þá allur
á bak og burt. Hún mun samt hafa
fengið upplýsingar um nafn og
heimilisfang hans.
Um helgina voru framin spell-
virki á mannlausu húsi að Árbæj-
arbletti 76. Tólf rúður í húsinu
höfðu verið brotnar með grjót-
kasti og siðan verið farið inn.
Ekki varð séð að neinu hefði verið
stolið.
Á 1 augardagskvöldið snaraðist
maður inn í viðtækjaverzlun sem
er til húsa á Snorrabraut 22. Þreif
maðurinn viðtæki og hljóp að því
búnu út svo hratt sem fætur tog-
uðu. Ekki báru menn kennsl á
manninn, en gáfu á honum grein-
argóða lýsingu.
F.í. veitir skóla-
fólki afslótt
Flugfélag íslands hefur um
margra ára skeið haft þann hátt
á, að veita skólafólki afslátt af
fargjöldum innanlands um hátíð-
amar og auðveida þannig þeim,
sem stunda nám við skóla fjarri
heimilum sínum, samvistir við ætt
ingja og vini á sjálfri hátíð heimil-
anna, jólunum. Þessi háttur verður
og hafður á nú.
Allt skólafólk, sem óskar að
ferðast með flugvélum félagsins
innanlands um hátfðamar, á kost
á sérstökum lágum fargjöldum,
sem gengu í gildi 15. des f ár og
gilda til 15. jan. 1965.
Þessi fargjöld eru 25% lægri,
en venjuleg einmiðafargjöld inn-
anlands.
Afsláttur þessi er háður þeim
skilyrðum að keyptur sé tvfmiði og
hann notaður báðar leiðir og að
sýnt sé vottorð frá skólastjóra,
sem sýni að viðkomandi stundi
nám við skólann.
Þorsteinn 0.
Stephensen
sextugur í dag
Þorsteinn Ö. Stephensen leik-
ari er sextugur í dag. Hann
fæddist að Hurðarbaki í Kjós 21.
desember 1904. Þar bjuggu þá
'oreldrar hans, Ingibjörg Þor-
steinsdóttir og Ögmundur Hans
son Stephensen. Ársgamall flutti
hann með foreldrum sínum að
Hólabrekku á Grímsstaðarholti.
Er Þorsteinn hafði aldur til,
gekk hann í skóla og lauk stú-
dentsprófi 1925. Hóf hann síðan
háskólanám og lagði í fyrstu
stund á læknisfræði. En hann
hætti því fljótlega og leiklistin
tók hug hans allan. 1934 hóf
hann nám við leikskóla Konung-
lega leikhússins í Kaupmanna-
höfn og dvaldi þar í eitt ár. Eftir
heimkomuna varð hann aðstoð-
arþulur við útvarpið og aðalþul-
ur þess 1940. Leiklistarstjóri
þess varð hann 1946 og hefur
gegnt því starfi síðan.
Þorsteinn hefur leikið mikið,
einkum hjá Leikfélagi Reykjavík
ur í Iðnó. Munu hlutverk þau, er
hann hefur farið með, vera í
kringum 60. — Þorsteinn er
kvæntur Dórótheu Breiðfjörð.
Sprengjuæði —
Framhald af bls. 1
ekki unnt að segja hverjar afleið
ingar það hefði haft. En svo virðist
sem pijturinn hafi enga grein gert
sér fyrir hættunni, sem af þessu
gæti stafað.
Einn drengur slasaðist á hendi
um hádegisleytið í gær er hann
var að handfjalla hvellhettur eða
annað sprengiefni.
Sumt fólk varð svefnvana í gær
kvöldi vegna hávaða í sprengjun-
um og taldi hávaðann af þeim
vera litlu minni en á gamiárskvöld
Var kastað / tjörnina og
barinn niður á eftir
Aðfaranótt sunnudags var
ráðiizt á mann, sem var á gangi
eftir tjarnarbakkanum. Árásar-
maður réðist aftan að mannin-
um og nokkru siðar hrinti
hann honum út í Tjöm. En árás
armaðurinn hætti ekki við svo
búið, heldur sló fyrmefndan
mann niður a. m. k. þrisvar
sinnum, og lá hann ósjálfbjarga
f götunni, þegar lögreglan kom
á vettvang.
Atburður þessi átti sér stað
um kl. 1,30 aðfaranótt sunnu-
•iags. Maðurinn, sem fyrir árás-
nni varð, var á gangi eftir tjarn
irbakkanum, ásamt tveimur
kunningjum sínum og gengu
beir suður Lækjargötu. Er þeir
voru komnir móts við Miðbæj-
arbarnaskólann, vissu þeir ekki
fyrr til, en ungur piltur ræðst
aftan að þeim, sem gekk í miðj-
unni, en hélt að því búnu i
burtu. — Árásarmaðurinn, sem
enginn þeirra þremeninganna
hafði séð eða átt orðaskipti við,
missti veski við það að stöldcva
á manninn og kölluðu þeir á
hann til þess að skila veskinu.
Rétt á eftir réðist árásarmað-
urinn á manninn aftur og hrinti
honum í Tjömina. Fannst þá
kunningjum mannsins, sem fyrir
árásinni varð, nóg komið og fór
annar þeirra til þess að sækja
lögregluna, þar sem árásarmað-
urinn vildi ekki fara með þeim
á lögreglustöðina, en þess í stað
fara burtu. í fylgd með árásar-
manninum var allstór hópur
kunningja hans og virtust þeir
lítið sem ekkert gera til þess
að koma 1 veg fyrir framkomu
kunningja síns. Það næsta, sem
gerðist í málinu, var það, að
maðurinn, sem fyrir árásinni
varð, hélt í árásarmanninn, sem
var hinn versti og sló manninn
nú niður í götuna, en þar sem
von var á lögreglunni, fór hann
að ókyrrast og hélt út í Vonar-
stræti. Nokkru áður hafði ann-
ar kunningi mannsins, sem fyrir
árásinni varð, staðið við tjarn-
arbakkann «.;g hafði þá einn af
kunningjum árásarmannsins
hlaupið að honum og hrint út
í Tjörn, en eftir að hafa hrint
manninum í Tjömina, tók hann
til fötanna og hljóp í burtu.
Barst nú leikurinn út f Vonar-
stræti og enn einu sinni réðist
árásarmaðurinn á fyrrnefndan
mann og sló hann niður í göt-
una, og lá hann þar þegar lög-
reglan kom á vettvang, en árás-
armaðurinn og kunningjar hans
voru komnir spölkorn í burtu.
Var farið með mennina niður
á lögreglustöð og úrskurðaði
varðstjórinn árásarmanninn til
gistingar í kjallara lögreglu-
stöðvarinnar, en morguninn eft-
ir var hann fluttur til yfir-
heyrslu til rannsóknarlögregl-
unnar.
Maðurinn, sem fyrir árásinni
varð, var fluttur í Slysavarð-
stofuna og við rannsókn kom
í ljós að hann hafði m. a. hlotið
slæman skurð á hendi, sömu-
leiðis varð að taka nokkur spor
í kinnina á honum. Og einnig
mun hann hafa bólgnaú og mar
izt á nokkrum stöðum.
DODDI í
nýjum
ævintýrum
Fjórar nýjar Dodda-bækur em
komnar út, en bækumar um
Dodda og vini hans hafa vakið ó-
skipta gleði meðal yngstn Iesend-
anna undanfarin ár og átt ótrúleg-
um vinsældum að fagna.
Bækumar, sem nú koma út heita
Gættu þfn Doddi, Doddi og bfl-
þjófurinn, Doddi fer til sjós og
Doddi í galdraborg. Fjalla bæk-
umar allar um ýmis ævintýri sem
Doddi lendir í.
Doddabækurnar era litprentaðar
og mjög fallegar bækur, gefnar
út af Myndabókaútgáfunni og
prentaðar f Félagsprentsmiðjunni.
Það er enski rithöfundurinn En-
id Blyton, sem skrifar þessar bæk
ur fyrir börnin og tekst henni ekki
síður vel upp hér en f himim frægu
i „ævintýrabókum“, sem hún skrif-
■ aði fyrir nokkrum árum, og hafa
’ komið út á islenzku (Ævintýra-
eyjan o.fl.)
Eldur hjartans
- Einkaritarinn
Stjörnuútgáfan hefir gefið út
tvær skáldsögur, sem nýkomn-
ar eru á jólamarkaðinn. Önnur
þeirra nefnist Eldur hjartans, en
hin Einkaritarinn.
Höfundur hinnar fyrmefndu
er Ciril Parker, þýdd af Svan-
dísi Ólafsdóttur, en hin er eftir
Ann Duffield, og þýðanda ekki
getið.
Fyrri skáldsagan fjallar um
tvær unglingsstúlkur í heima-
vistarskóla í Frakklandi, ástir
þeirra og ævintýri, og gerist
sagan víða við Miðjarðarhaf.
Hin sagan fjallar um unga
stúlku, sem elst upp í smábæ í
Bandaríkjunum, strýkur að
heiman og verður margt að
reyna, en finnur hamingju að
lokum.
Sögurnar era vel fallnar til
skemmtilesturs. — a