Vísir - 03.02.1965, Page 2

Vísir - 03.02.1965, Page 2
VÍSIR . Miövikudagur 3. febnmr I0«5. r SíÐAN ’ T Li ifi r Miðaldra konur helga minningu James Dean lif sitt og hlaða upp öflugum minningar- klúbbum i Bandarikjunum dauða sinn Það eru níu ár síðan James Dean dó 1 miklum bifreiðaá- rekstri. Samt er hann enn þann dag í dag dýrkaður af tugþúsundum unglinga í heiminum, sem halda uppi mjög mikilli starfsemi í James Dean-klúbbum. Þeir neita að láta hann hafa frið í gröf sinni. Klúbbarnir láta kvikmynda- jöfrana heldur ekki i friði, heimta myndir hans sýndar aft ur og aftur. Þeir safna úrklipp Synirnir fengu ekkert Fyrir skömmu síðan dó einn af mestu tóbakssöluauðmönn- um Bandaríkjanna, Richard J. Reynolds. Nú hefur erfðaskrá hans verið opnuð og af öllum milljónunum, sem hann lét eft ir sig fer ekki einn einasti doll ari til neins hinna sex sona hans. Hann útskýrir í erfða- skránni að sér finnist hann hafa gefið þeim nóg meðan hann var á lífi og hann væri hrædd ur um að meiri auðæfi myndu alveg svipta þá öllum vilja til þess að vinna. Allar tóbaksmillj ónirnar fær fjórða kona hans, hin þýzkættaða dr. phil Anna- Marie Reynolds sem eignaðist fyrsta barn sitt, stúlku, nokkr um dögum eftir dauða hans á heimilinu í svissneska Alpabæn um Emmetten. ☆ Læknirinn nýgifti, sem hafði hafið heimilislæknisstörf stökk upp eftirvæntingarfullur þegar sfminn hringdi um kvöldið. Loksins sjúklingur. Það kom f Ijós að það var kollega sem spurði hann hvort hann gæti komið og verið fjórði maður í bridge og eftir að vera búinn að jafna sig eftir vonbrigðin fannst honum það gæti verið alveg á- gætt. — Ég kem undireins. — Ég verð að fara, sagði hann svo við hina ungu eiginkonu sína. — Er þetta alvarlegt tilfelli? spurði hún. — Alvarlegt tilfelli? Ég er hræddur um það. Það eru þrír læknar þegar viðstadd ir og þeir segja að þeir geti ekkert gert fyrr en ég komi. um úr blöðum um hann, þvi mikið er skrifað enn um hanngt og klúbbamir gefa út blöð, sem send eru til meðlima og reglu-É lega mæta meðlimimir í klúbb-, unum til að minnast Deans og til að andvarpa... Einn þeirra klúbba, sem l| mest líf er í, er sá sem starf-ji ræktur er í New York. I Jam- es Dean Memory Club er megnB ið af meðlimunum ekki tán- ingar eins og menn skyldu halda, og þeir voru það heldurí ekki þegar hann dó. Yfirleittp hefur fólk talið að James Deanl hafi haft mest áhrif á ungt fólkl en f þessu félagi er meirihluti- félaga miðaldra og eldri konur.l Formaður klúbbsins er 53 áral ekkja, Mrs. Therere Brandensl og hefur hún helgað krafta sínal minningu James Dean og hefurl siður en svo slakað á vinnul sinni við klúbbinn, enda þóttl 9 ár séu liðin frá þvi Dean lézt| Frú Brandens fær geysimikið af bréfum frá öllum heimshom um og er þegar orðin langt á eftir að svara þeim öllum. Flest bréfanna koma frá konum sem eru komnar af léttasta skeiði. Félag frú Brandens hefur strangar reglur og eru þær grundvallaðar á „mottóinu:" Do Everything Clean in Mem ory of the Late James Dean. Þannig finnst t.d. eftirfarandi í reglunum: Ljót orð eru bönnuð. Afbrýðissemi ekki þoluð. Ekki má ræða um mál, sem geta vakið deilur í klúbbnum Bannað er að sitja f fangi hvors annars. Sterkir drykkir mega ekki koma inn í klúbbinn. Og síðast en ekki sfzt: Hald- ið þessum stað heilögum. Þessir klúbbar em til f hundr uð þúsunda tali í Bandarikjun- um og lifa góðu lífi ,en sjald- gæft er að til séu klúbbar sem þessir, svo löngu eftir að leik- ari lætur lífið. Lítil samantekt um BÆJAKEPPNI. Akureyringar unnu einn hinn frægasta sigur, sem um getur í veraidarsögunni sl. sunnudags- I kvöld, er þeir gersigruðu Reyk i vfkinga í svokallaðr; bæjakeppni j sem nú er framin á vegum Ríkis- útvarpsins — en eins og allir vita, er um það keppt hvaða bær reynist eiga yfirgripsmestar al- fræð’iorðabækur f mannsmynd, með öðrum orðum, menn sem vita öðrum meira af þvf, sem enginn hefur minnstu þörf fyrir að vita, svokallaða safngryfjuhausa ... í þessari fyrrnefndu keppni sigr aði semsé höfuðstaður Norðlend- inga höfuðstað Sunnlendinga — og raunar allra landsmanna nema Akureyringa, glæsilega með hálfs annars stigs mun og þótt sumir kunni að segja að Akureyringum hafi betur dugað getspekin en vit spekin, er sigur þeirra engu minni fyrir það — mátti ef til vill orða muninn þannig á viti sunnan- og norðanvéra, að Reyk vfkingar vissu það, sem þeir vissu Akureyringar meira en þeir vissu, eða eins og útvarpsstjóri vor kynni að komast að orði: Þeir fyrrnefndu vissu og vissu ekki — þeir síðarnefndu vissu ekki og vissu þó ... Fánar voru dregn ir að húni á flestum húsum Ak ureyrar á mánudag til að fagna sigri og f ráði er að skfra upp Ráðhústorgið og kalla það „Hálfs annarsstigstorg" og einnig að líkamar þeirra, sem unnu keppn ina f.h. KEA og Akureyrar, verði balsameraðir og geymdir á borg- arminjasafni, þegar þeir eru nokk urn veginn dauðir... Er sem sagt ekkert, sem minnkar hið ak ureyska sigurhrós, nema ef sú saga skyldi reynast að einhverju leyti sönn, að þeir hafi neitað að taka þátt f keppninni, ef Óiafur Hansson yrði með — en aðrir jgja að Ólafur hafi neitað að fara gegn Akureyringum, því að hann vildi ekki sigra þá og kveikja þannig hatur milli fjórð unga, þar sem sátt hefur verið að kalla síðan í tíð Jóns og ögmund ar... þá mun Ólafur og hafa hafnað því, að líkneskja hans verði reist á torginu í þakkar skyni og eins að skrúðgarðurinn eða einhver hluti hans verði nefnd ur Ólafslundur ... I Kári skrifar: TTm það hafa allmiklar umræð ^ ur verið að undanförnu að hættulegt sé vegna hjártasjúk dóma og æðakölkunar að leggja sér til munns mat úr dýraríkinu sem mikil fita sé f. Hafa pró- fessorar og læknar mjög brýnt fyrir fólki að minnka fituát við sig til heilsuræktar. Nærri má geta að landbúnaðarmennirnir hafa orðið ókvæðir við sumir er þessi tilmæli bárust út um borg og bý. Ég las nýlega svar um málið frá búnaðarsérfræð- ing, sem ég held að gott væri að kæmi fyrir fleiri manna sjón ir, en það birtist f blaðinu Suð urland. Fylgir það hér á eftir, en maðurinn, sem skrifar er ráðunautur Búnaðarfélags ís- lands í mjólkurfræði, Hafsteinn Kristinsson. Hann segir: OFNEYZLA DYRAFITU „Menn hafa með sívaxandi ugg fylgzt með örum vexti þess ara sjúkdóma meðal velmegun- arþjóða heimsins, leitað vfða til um orsakir þeirra, og eru þess ar taldar helztar: 1) Reykingar, 2) Andleg spenna 3) Hreyfing- arleysi og 4) Offita. Um þessi atriði ber læknum saman. Auk þess hefur sú skoðun komið fram, að dýrafita I fæði sé ein orsök sjúkdómsins og vár lengi vel talið, að hið mikla magn choleesterols í blóði hjartasjúkl inga stafaði af ofneyzlu dýra- fitu. Nú hafa hins vegar tveir Bandaríkjamenn sannað, að llk aminn getur sjálfur byggt upp cholesterol I blóðinu án þess að þess sé neytt I fæðunni, og hlutu þeir Nóbelsvérðlaun I fyrra fyrir þetta afrek. í blóð- inu getur þess vegna verið mik ið magn cholesterols án þess að þess hafi verið neytt I fæðu. Mikið magn þess I blóði hjarta sjúklinga má allt eins skoða afieiðingu sjúkdómsins fremur en orsök. ÓSÖNNUÐ TILGÁTA? Sá faraldur, sem nú geisar að kenna landbúnaðarafurðun- um um orsakir þessa skæða sjúkdóms er því f dag byggður á algerlega ósannaðri tilgátu, sem ekki nær nokkurri átt og ekkert bendir til þess að neyzla plöntufeiti sé hollari. Hins veg ar er öll ofneyzla skaðleg, ekki sfður en ofdrykkja. En engin á stæða er fyrir Islend'inga að draga úr neyzlu mjólkurvara, þar sem hún er hér mun minni en vfðast f nágrannalöndunum T.d. aðeins 6y2 kg. smjörs á mann hér á móti 3-20 kg. á Norðurlöndum og upp I 20 kg. á Nýja-Sjálandi. Og aðeins 3 kg. af osti hér á móti 10-13 kg. á Norðurlöndum. Hins veg ar er mjólkurneyzlan hér nokkru meiri. Málið er því ekki eins auðvelt og sumir vilja vera láta. Eskimóar borða allra þjóða mest af dýrafitu — selspiki — en þar er þessi sjúkdómur nær óþekktur.“

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.