Vísir - 16.02.1965, Síða 3
19
VlSIR . Þriðjudagur 16. febrúar 1965.
MMMWBlr' -«■
/'i?
'MWÆÍÍi
msm
■ ■
ÍÍiSíSsKS
Þær sauma blússur og kjóla svo læra þær lfka barnafatasaum.
Þær þurfa líka að kunna hvemig ganga á um beina og veita
gestum og ferst það vel úr hendi.
við sjáum tahð
Guðmundsdóttur,
frá vmstn Jónínu
Sigríði Gísladóttur
í íbúð skólastjóra er safnazt saman til kaffidrykkju,
Bjarnadóttur, skólastjóra Katrínu Helgadóttur, Herdísi
og Jakobínu Guðmundsdóttur.
Þær brasa, baka, sauma og vefa
1 hvítu, reisulegu húsi við
Sólvallagötuna er Húsmæðra-
skóli Reykjavíkur. Þama eru
80 ungar stúlkur að starfi frá
morgni til kvölds er víst óhætt
að segja, því að fyrir utan þær
40 sem eru í heimavistinni eru
24 á dagnámskeiðinu, sem er
haldið og 16 á kvöldnámskeið
inu. í myndsjánni í dag sjáum
við þessar verðandi húsmæður
að störfum. Þegar við komum í
eldhúsið er verið að leggja síð
ustu hönd á hádegisverðinn, bú
ið er að elda súpuna, verið er
að ganga frá gómsætu London
lambi á fötunum, aðrar standa
rjóðar yfir bakstrinum, og sum
ar eru að skreyta ábætinn. Við
heimsækjum líka þær, sem eru
á dagnámskeiðinu, þær eru bú-
konulegar á að sjá, á töflunni
er gefin uppskrift yfir nauta-
buff og okkur er tjáð að þær
hafi keypt heilt naut, sem var
hraðfryst, skipt niður og geymt
f frystikistu, á tveim nautum
er hægt að spara 5000 krónur. 1
saumastofunni sníða þær,
sauma og máta litskrúðugar
flíkur, bæði kjóla og blússur og
sumar eru með barnaföt milli
handanna. Að lokum er svo lit
ið inn í vefstofuna, þar sem
þær sitja og slá vefinn og
þama rekumst við óvart á syst
ur Maritu á meðal ungpíanna,
það kemur okkur alveg á óvart
að sjá nunnu í þessum hóp, hún
ljómar eins og sól á heiði og
segir okkur að sér þyki ákaf-
lega skemmtilegt að fá að vera
þarna með ungu stúlkunum. Á
eftir er okkur boðið til máls-
verðarþar sem all fer fram með
pomp og pragt og var öllum
aðilum til mikils sóma, það er
ekki oft sem blaðamenn detta í
lukkupottinn og ætli margur
ungur maðurinn hefði ekki vilj
að vera í sporum okkar þama
í miðju þessa fríða og föngu-
lega hóps.
Systir Marita við vefnaðinn og kennari hennar Jakobína
Guðmundsdóttir.
Bryndfs, Unnur, Jóna og Helga gefa sér tíma frá ábætinum til þess að brosa framan í Ijósmyndarann.