Vísir - 04.03.1965, Blaðsíða 8

Vísir - 04.03.1965, Blaðsíða 8
V i S T R Fimmtudagur 4 marz 196S. vigbiandi: Blaðaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr. á mánuði I lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur) Prentsmiðja Visis - Edda h.f Hækkandi íbúðarlán gtjórnarandstaðan vitnar í ýmsar tölur um hækkun byggingarkostnaðar og þykist með því vilja sanna að erfiðara sé nú að byggja sér íbúð en á vinstri stjórnar árunum. Ekkert er fjær sanni. Slíkar fullyrð- ingar eru úr lausu lofti gripnar, eins og nú skal sýnt fram á. Árið 1958 var vísitala byggingarkostnaðar 134 stig. Nú í febrúar 1965 er hún 220 stig. Á þessu ára- bili hefur hún því hækkað um 64%. Árið 1958 námu lán Húsnæðismálastjórnar almennt kr. 70 þúsund á ári. Nú eru þau almennt 150 þúsund krónur. Það er 114% hækkun — á sama tíma og byggingarkostnað- arvísitalan hefur aðeins hækkað um 64%. Þetta sýnir hver f jarstæða það er að halda því fram að verra sé nú gert við húsbyggjendur í lánamálum en á dögum vinstri stjórnarinnar. Og nú hækka íbúðarlánin upp í 280 þúsund krónur á íbúð á næstunni. Þá nemur hækkunin frá dögum vinstri stjórnarinnar á lánunum 400%, en hækkun vísitölu byggingarkostnaðar er inn an við 100%. Þannig hefur viðreisnarstjórnin markað þá stefnu í lánamálum íbúðarbyggjenda, sem er mikl- um mun raunhæfari en hungurlúsir þær sem menn fengu í lán á stjórnartíma Framsóknar og kommún- ista. Um það bera fyrrgreindar tölur gleggst vitni. Undir lás og slá þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins flytja frumvarp um það að bann við minkaeldi hér á landi verði numið úr lögum. Frumvarpið mun eiga miklu fylgi að fagna. En hér má ekki ganga blindandi til leiks, eins og hið fyrra sinni, er minkarækt var leyfð hér. Af því ævintýri hefur hlotizt óbætanlegur skaði fyrir nátt- úrulíf þessa lands. Herfilegustu mistök voru þá gerð af hálfu hins opinbera, er svo slælega var haldið á málum, að minkar runnu úr búrum sem fé rásar á fjalli. Það hneyksli má ekki endurtaka sig, ef þetta frumvarp verður að lögum. Minkagarða þarf að gera svo rammbyggilega að engin hætta verði á að sagan endurtaki sig. Ella ber skilyrðislaust að fella minka- ræktina öðru sinni niður, ef það kemur á daginn að hið íslenzka kæruleysi er enn við lýði í búrekstrinum. Auður á uppboði fi’in laxveiðiá er nú leigð yfir sumartímann fyrir á aðra milljón króna. Svarar það til þess að hver dreg- inn lax sé þúsund króna virði. Þessi uggvænlega þróun mun senn valda því að fæstir íslendingar hafa efni á því að veiða í sínum eigin ám. Þær verða leik- völlur erlendra auðmanna. Hér verður því skjótt að spyrna við fótum. Það verður að tryggja að uppboð á laxveiðiám valdi ekki því að flestum ísiendingum verði gert ókleift að renna fyrir lax í sínu eigin landi. Vigegó Oddsson skrifor fró Suð-vesfur Afríku Ég hefj verið á stöðugu ferða lagi um suður og miðhluta Afríku síðasta misserið. Land- mælingafyrirtæki sem ég vinn hjá í Johannesarborg hefur útibú víða í Afríku og þegar verk- efnin verða óviðráðanleg er ég sendur af stað til að hraða fram kvæmdum. Þannig hefi ég verið til skiptis í S-Afríku og Rhode- síu, og hefi nýlokið við 60 metra langt kort af þjóðvegi sem nýtt fyrirtæki í Suð-vestur Afríku tók að sér að kortleggja eftir flugmyndum. Mér hafði aldrei órað fyrir að ég ætt; eftir að koma hingað vestureftir. Land- ið er verndarsvæði frá S.-Afríku en var áður þýzk nýlenda. Land ið verður að teljast ein samfelld eyðimörk því stundum rignir ekki í 2 ár. Það er 3ja tíma flug í vestur frá Jóhannesarborg, áð ur en komið er til Windhoek sem er höfuðborgin með um 50.000 íbúa. Flogið er yfir Kalah arí eyðimörkina sem er samfelld slétta, með mjög gisnum runn um sem hindra sandfok. Víða Windhoek er ákaflega falleg borg með litríkum byggtngum og miklum gróðri. ibúar 50.000. Kirkjur eru þarna margar og til að þær stærstu skapi ekki minnimáttarkennd hjá litlum körlum er turnunum skipt í tvennt. Þarna er ég fyrir utan eina af elztu kirkj- unum. Harðbýlt en auðugt land eru uppþomaðir tjarnarbotnar. Þarna er talsvert af hjörtum. WINDHOEK Höfuðborgin er svipuð þýzk- um smábæ þar sem allt er með þýzkum svip þarna eru 4 kast- alar á háum hæðum, hér var að- alstöð Þjóðverja, pálmar og skrautjurtir eru í görðum, lofts- lagið er fremur heitt 20—40 stiga hiti, loftið tandur hreint og sólin ofsa björt, því þetta er í um 1800 m hæð. — Umhverfi borgarinnar er eins og í Mýra- sýslu, að frátöldum mýrunum. íbúar þessa stóra lands eru um 500 þús. mest negrar sem eru á steinaldarstigi og vilja engum framförum taka nokkrar ætt- kvíslir umgangast þó hvíta menn og eru konurnar klæddar peysu fötum. Bæði land og fólk venst furðu fljótt og vel, og dugnaður og atorka hvíta fólksins er dæmafá. Til dæmis eru bændur með 40 — 70 þúsund karakúlkind ur, og þar yfir, á búgörðum sin um, þrátt fyrir auðnina. Þeir ná talsverðu vatni með borunum. HEITT VATN. Hérna eru neitar laugar, vatn ið er notað í heilsuböð og sund laugar. Við vesturströndina eru auðug fiskimið og eru tugir af rússneskum skipum að pukrast þar, mörg eru ekki að fiskveið- um og fá ekki að koma í höfn. Herskip og flugvélar fylgjast með þeim því þessi floti er álit- inn vera að mælingum og til að smygla hergögnum og skemmd- arverkamönnum í land. Við ströndina er hrein eyðimörk með um 200 m. háum foksands öld- um á öldubotninum sést í fast land og þar eru víða gimstein ar í jörðu. Norðar í landinu eru auðugar námur með blý, kopar o. fl. þar er einnig eina germaní um náman á vesturlöndum, en þessi málmur er notaður í fjars- skiptatæki og eldflaugar. Óhemju fé er varið til þróun arlandsins og hóteliní Windhoek eru full af tæknifræðingum frá S.-Afríku. Miklar vonir eru bundnar við þetta land sem er harðbýlt og auðugt, hér uppsker ílk eins og það sáir, í Evrópu byggist allt á ríkisforsjá, þess vegna kann ég hvergi eins vel við mig og hér í löndum hvíta fólksins i Afríku. Viggó Oddsson. Þótt stundum rigni ekki í 2 ár ■' Suðvestur-Afríku eru bændur oft með 40-70.000 Icarakúlkindur og lifa góðu lífi án ríkisstyrkja, upp- bóta og niðurgreiðslna. Hvenær verða íslenzkir bændur með svip- aðan bústofn? (Á grænasta grasj í heimi). ts«í^i3i:3B2EæasEasffiJsaaaaira@a*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.