Vísir - 27.03.1965, Page 16

Vísir - 27.03.1965, Page 16
Stórííjan rædd á Hvatarfundi Á mánudagskvöldið kl. 8.30 heldur Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt félagsfund i Sjálfstæðishús- inu. Mun Jóhann Hafstein iðnaðar- og dómsmálaráðherra halda þar er indi er hann nefnir: Atvinnurekst- ur og stóriðja á Islandi. Það efni hefur ver'ið mjög á dag skrá að undanfömu og miklar um ræður farið fram um það. Ráð- herrann mun reifa málið ítarlega og skýra frá þvl hvað er nýjast að frétta í stóriðjumálunum og jafn- framt gera grein fyrir þvf, hvaða möguleika stófiðjan opnar i efna hagslífi þjóðarinnar. Félagskonur eru hvattar til að fjölmenna og mæta stundvíslega. Stúdentafélagsfyr- irlestur í dag Fimm vísindamenn við rafeindareikni eða „heila“ Háskólans. Frá vinstri: Þórhallur Einarsson, Ragnar Ingi- marsson, Heigi Sigvaldason, Oddur Benediktsson og Magnús Magnússon. Tónleikar í Skálholtskirkju Laugardagur 27. marz 1965. Jóhann Hafsteln. RAFEINDAREIKNIRINN STÓR- EYKUR VfSINDASTARFSEMINA Níu greinur vísindumanna í Tímnriti Verkfræðingnfélugsins Rafeindareiknirinn, sem Reikni stofnun Háskólans hefur feng- ið, hefur brotið blað í atvinnu- og tæknisögu landsins, svo marg vfsleg verkefni, sem hann verð- ur látinn glíma við, og ekki væri hægt að leysa á annan hátt nema með geysimiklum tima og erfiði. í nýjasta blaði Timarits Verk- fræðingafélagsins greina vísinda menn á ýmsum sviðum frá á- ætlunum um notkun þessa 2,8 milljón króna tækis í eðlisfræði, byggingaverkfræði, rekstrar fræði raforkuvera, jarðræktar- tilraunum, segulmælingum, og i almennum verkfræðistörfum. í inngangsgrein Magnúsar Magnússonar prófessors segir, að fyrsta markmið Reiknistofn- unarinnar verði að innleiða hér á landi notkun rafeindareikna við rannsóknir og hagnýt verk- efni. í fyrstu verði mest áherzla lögð á kennslu á rafeindareikn- inn, en þegar sé samt farið að vinna að raunhæfum verkefnum. 60% af timanum verða notuð til kennslu og við rannsóknir háskólastofnana, en stofnanir og fyrirtæki geta fengið aðgang að honum hin 40% tímans. Oddur Benediktsson cand. phil. skrifar grein um, hvemig rafeindareiknar séu frábrugðnir venjulegum reiknivélum og hvaða verkefni séu vel fállin til lausnar á reikninn, Páll Theo- dórsson eðlisfræðingur skýrir táknmál það, sem notað er í sam bandi við rafeindareikninn. Báð- ar þessar greinar eru ætlaðar Framh. á bls. 6 Ameríski prófessorinn dr. C. E. Lincoln flytxu- á vegum Stúdenta- félags Reykjavíkur fyrirlestur kl. 2 í dag í Sigtúni. Nefnist fyrirlest- urinn „The American Negro Move- ment: Violent or Nonviolent". — Lincoln, sem er blökkumaður, er sérfræðingur I kynþáttamálum, og er hann prófessor í félagssambúð. Öllum er heimill aðgangur að þess- um fyrirlestri, sem vafalaust er mjög fróðlegur, þar sem próf. Lin- coln hefur ritað margar bækur um þetta efni^ m. a. fræga bók um Svörtu Múhameðstrúarmennina. 1 gær boðaði biskup Islands, hr. Sigurbjöm Einarsson, fréttamenn á sinn fund. Kynnti hann fyrir þeim tónleika, sem verða haldnir f Skál- holtskirkju næstkomandi sunnudag, þ. 28. marz kl. 4 síðdegis. Hér er um nýjung að ræða. Það er bæði kirkjan sjálf, svo og áhuga- menn um kirkjumá-1 og menningar- mál almennt, sem að þessum tón- Rúna nýgift iðnrekanda og leikrítahölundi Stutt spjoll við Rúnu Brynjólfsdóttur Cobey Þessa dagana er stödd f Reykjavfk Rúna Brynjólfsdóttir eða Rúna Cobey, eins og hún heitir nú, þvf Rúna giftist fyrir skömmu Herbert Todd Cobey, vélaframleiðanda og rithöfundi. Vísir Innti Rúnu eftir fréttum f gær á fallegu heimili foreldra hennar í Safamýri 59. — Ég bý í Washington núna, sagði Rúna, í Georgetown, sem er dásamlegur bær. Þarna var f gamla daga tollstöð, skipin komu ! þangað með varninginn og þar var hann tolllagður. Enn þann da<r í dag er tollstöðinni haldið við. Það er litið á það sem hefð að halda henni gang- andi, þó engin skip komi þang- að. Allt i bænum er líka f gamla stflnum frá 18. og 19. öld. Það má engu breyta f útliti húsanna þarna, en þeim er haldið geysi- vel við og eru dýr, kosta frá 65—100 þús. dollara. Mér finnst þetta alveg óskaplega skemmti- legt andrúmsloft, mjög svipað og er víða f Evrópu. Þarna bjuggu þau einu sinni Kennedy hjónin áður en þau fluttu í Hvfta húsið. — Og ég heyri að þú sért vestra nýgift aftur, Rúna. — Já, ég giftist fyrir skömmu Herbert Todd Cobey. Hann er Harvard og Yale-menntaður í sögu, en sneri sér ekki að þeirri grein að ráði eftir nám. Hann gerðist iðnrekandi og á verk- smiðju f Ohio, sem framleiðir landbúnaðartæki, vegagerðarvél ar, grjótmulningsvélar og ann- að slfkt. Firmað heitir Cobey Perfection Steel Boby Corp. Einnig er hann að fara yfir í áburðarverksmiðju og mjölfram leiðslu úr fiski, en með honum í því er frægur blaðamaður,- Drue Pearsson, en firmað er kennt við Pearsson. Pearsson er mjög snjall maður og selur þátt inn sinn 150 bandarískum blöð Framh. á bls. 6 leikum standa. Það er von kirkjunn ar, að hér sé um að ræða upphaf eins þáttar f fjölbreyttu menningar- starfi hennar. Að þessu sinni er það fyrst og fremst hinum ötula og dugmikla listamanni, Hauk Guðlaugssyni, org anleikara og söngstjóra á Akranesi ásamt kirkjukór Akraness að þakka að unnt er að halda þessa tónleika nú. Auk tíma sfns og erfiðis, leggur listafólkið krafta sfna fram ókeyp- is. 1 Akranesskórnum eru 45 manns og er stjórnandi hans Haukur Guð- laugsson, eins og áður er sagt_ en raddþjálfari Einar Sturluson. Að því er biskup íslands tjáði fréttamönnum er Skálholtskirkja mjög heppileg sem sönghús og það væri álit sérfræðinga að hljómburð- ur þar væri beztur á íslandi fyrir söng, þó það gilti ekki fyrir tal. Kirkjan tekur 250 manns í sæti og annað eins í stæði. Kvenskátaskemmtun Á morgun efnir Kvenskátafélag Reykjavíkur til skemmtunar á Hót- el Sögu, Súlnasalnum. Skemmtiat- riði verða fjölmörg, m. a. sýnir Kristín Bjarkan andlitssnyrtingu, Ómar Ragnars skemmtir, fjórar ungar stúlkur úr Kvennaskólanum syngja og spila og á eftir verður farið f leiki við börnin, sem koma. Aðgöngumiðar verða til sölu að Sögu kl. 3—5 og verða tekin frá borð um leið. Skemmtunin hefst kl. 3.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.