Vísir - 03.06.1965, Blaðsíða 11
VlSIR . Fimmtudagur 3. júní 1965.
11
HEIMSMETHAFINN
Kastar kringlunni yfir 61 metra — „Kúlan er það eina
sem ég hef úhuga ú/#, segir Randy Mafson, sem gæti
verið í heimsflokki í mörgum öðrum greinum
Hin nýja stjarna á amerískum íþróttahimni heitir Randy Matson. Hann
heldur áfram að setja heimsmetin í kúluvarpi, rétt eins og það væri það
einfaldasta og sjálfsagðasta í heiminum. Og með hinu nýja háskólameti
sínu í kringlukasti, sem er 61.41 metri, er hann ekki svo langt frá Tékkanum
Danek, sem á heimsmetið 64.55, sem sérfræðingar telja að Matson geti sleg-
ið það met, ef hann einbeitir sér að kringlukastinu. En það er ekkert útlit
fyrir að hann geri það, því hann hefur lítinn áhuga á kringlukasti, en því
meiri á kúluvarpi.
Þegar Randy Matson setti há-
skólametið sitt sveif kringla yfir
höfuð undrandi starfsmannanna,
yfir á hlaupabraut og munaði
minnstu að hún lenti á langstökkv-
ara, sem þar var í keppni. Lang-
stökkvararnir horfðu undrandi i
áttina til Matsons og síðan á stað-
inn þar sem kringlan hafði lenti.
Matson dregur að sér fjölmarga
áhorfendur í hvert sinn, sem hann
kemur fram. Allir vilja koma og
sjá þennan undrajaka. Oft koma
4000 fleiri en venjulegt er þegar
hann keppir, jafnvel á smámótum.
Áður var það vaninn að áhorfend-
ur skryppu frá til að fá sér pylsu
og kók, þegar kúluvarpið fór fram.
yiriH 'Mr.
M
. i«_- -«i [
■y -f
Randy Matson I keppni.
Nú hefur það breytzt, — pylsu-
salan gengur ekki vel meðan Mat-
son kastar. Það horfir á þennan
fjölhæfa íþróttamann kasta, en
hann er talinn mjög góður base-
ball-leikmaður, gæti verið einn af
beztu körfuknattleiksmönnum
Ameríku, ef hann sinnti þeirra
grein og bezti kringlukastari
heims, — en það er aðeins kúlu-
varpið sem kemst að.
íþróttahæfileikarnir hafa gert það
að verkum að Matson gat valið um
100 styrki til náms í háskólum
Bandaríkjanna. Hann valdi Texas
A&M skólann. Það munaði samt
minnstu að hann yfirgæfi skólann
eftir atvik á æfingavellinum. Hann
hafði náð ágætu kasti í kringlunni
og kringlan sveif nálægt fótbolta-
leikara nokkrum, sem reiddist
mjög. Fótboltamaðurinn bað hann
að „taka þessa undarlegu plötu
sína og hverfa svo langt burtu, að
ef hann þyrfti að hafa samband
við sig væri hann neyddur til að
gera það í pósti“.
Matson fór upp á herbergi sitt
og byrjaði að pakka niður í töskur
sínar. Vinir hans komu að honum
og fengu hann ofan af þessu, —
sem betur fer. Því í skólanum
hefur hann fengið þá þjálfun, sem
þurfti til að kasta kúlunni 21.51,
en það er núgildandi heimsmet í
kúluvarpi. Það er lyftingaþjálfar-
inn Mámaliga sem Matson þakkar
mest, en hann er talinn bezti þjálf-
ari Bandaríkjanna £ þessari grein,
sem allir beztu kastaramir viður-
kenna nauðsyn fyrir árangri í
köstunum.
Háskólamir f Kaliforníu hafa
sótzt mjög eftir að fá Matson til
sín og gert honum ýmis gylliboð.
En hann er ekkert hrifinn af
þessu öllu saman og hristi höfuðið
og sagði: „Þeir fóru með mig á
veitingastað í Kaliforníu þar sem
bollinn af kaffi kostaði 50 cent.
Með þessu verðlagi væri ég búinn
að vera þar. Að vísu borða ég
ekkert mjög mikið en samt þarf
ég að þyngja mig nokkuð og þarf
að verða um 115 kíló, því ég er
ekki eins sterkur og O’Brian og
Dallas Long. Hins vegar er ég
hærri en þeir og hef meiri hand-
leggi. Ég nota úlnliðinn meira og
Framh. ð bls. 13
Kveðja Vetur konung
Þessar tvær myndir voru teknar á síðasta Skarðsmóti og sýna <
reykvíska þátttakendur á mótinu og keppendur i kvennaflokki.
Skarðsmótið fer fram í byrjun sumars á hverju ári í Siglufjarðar-
skarði og er nokkurs konar kveðja skíðamanna til veturs konungs.
Þarna mæta ævinlega skíðamenn frá öllum landshornum og
þetta sinn koma fjórir kappar frá Noregi og komu þeir til j
Reykjavíkur í gærkveldi. Keppendur í Skarðsmótinu í ár eru um <
60 talsins og er mótið þvi ekki minna en Skíðalandsmótið sjálft.
.InihivbnBV 30 ðuli?—"«: .' lúSibtí
vyvvyyvvvyv\p?yywvvyvvvr^yvvwvwvv>A<yWw»
2. deild:
Þróttur og
Brelðablik
unnu í gær
Þróttur vann Hauka úr Hafnar-
firði í gærkvöldi í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu með 4:1. í
hálfleik var staðan 1:1. Fór leik-
urinn fram á heimavelli Hafnfirð-
inga á Hvaleyrarholti.
Annar leikur fór fram á Mela-
vellinum, leikur Víkings og Breiða-
bliks i Kópavogi. Vann Breiðablik
með 3:1, en í hálfleik var staðan
1:0 fyrir Víking. í seinni hálfleik
komu öll þrjú mörkin á 5 mínútum
og voru hvert öðru fallegra.
Boltinn var
ekki inni
://
—- segir Kannes
Hannes Þ. Sigurðsson, knatt-
spyrnudómari, hefur beðið síð-
una að geta þess í sambandi við
leik KR og Keflavíkur, að eng-
inn vafi hafi nokkru sinni verið
á því hvoru megin línu boltinn
var, sem hrökk af þverslánni í
jörðu. „Boltinn fór örlitið ská-
hallt út“, segir Hannes og
kveðst hann hafa staðið mjög
vel að vígi . til að dæma um
þennan bolta.
GOLFÞÁTTHR -10
Hægri handleggurinn
í upphafi baksveiflu á hægri
1 handleggurinn að vera beinn, en í
| samanburði við þann vinstri á
i hann að vera meira afslappaður.
í þriðja þætti stendur að draga
eigi kylfuna ca. 15 cm. beint aftur
; frá kúlunni í dræfi. Þar á að standa
* 45 cm. en eftir þv£ sem númer
j kylfunnar hækkar, þá fækkar senti
i metrunum niður £15.
Það er áriðandi að beygja ekki
handlegginn of fljótt i baksveifl-
unni og helzt ekki fyrr en kylfu-
hausinn er kominn 45 cm. aftur frá
kúlunni í dræfi. Ef handleggurinn
er beygður of fljótt, þá veldur það
slæs og mjög oft toppun. Toppun
er það, þegar kylfingur slær ofan á
kúluna og kúlan fer stutta vega-
lengd eða jafnvel hreyfist ekki.
Gæta ber þess, þegar hand-
leggurinn fer að bogna, að olbog-
inn visi niður á við. Ef olboginn
vísar út í loftið, þá getur það vald-
ið slæs og jafnvel toppun.
Þegar framsveiflan byrjar, þá á
handleggurinn að vera sem næst
síðunni og olboginn á að vera
kominn fram fyrir mjöðmina, áð-
ur en höggið ríður af.
í framsveiflunni eftir höggið á
að halda handleggnum beinum vel
fram úr högginu og beygja hann
helzt ekki, en þó hefur það ekki
B UMSJA
ÓLAFS BJARKA
RAGNARSSONAR
áhrif á höggið, þótt handleggurinn
sé beygður eftir að hendurnar eru
komnar aftur fyrir vinstri öxl.
Þeim, sem hafa haldið saman
golfþáttum þessum, skal á það
bent, að rétt væri á þessu stigi að
lesa yfir þriðja, fimmta og niunda
þátt, en þeir fjalla allir að nokkru
um sveifluna.
Skýringamynd númer 1 sýnir
stöðuna, þar sem hægri handlegg-
urinn fer að bogna i aftursveifl-
unni, en mynd númer 2, þar sem
hann má bogna i framsveiflunni.