Vísir - 05.06.1965, Blaðsíða 1
VISIR
55. ári
ALDREI FLEIRI
FERÐAMENN
Allar líkur benda til þess að
ferðamannastraumurinn til
Iandsins verði meiri en nokkru
sinni fyrr nú í sumar.
Á vegum Ferðaskrifstofu Geirs
ZoSga koma hingað hvorki
meiri né minna en níu skip. Hið
fyrsta þeirra er „Mauritania"
sem er 35 til 40 þúsund lestir
að stærð og kemur hingað föstu
daginn 11. júní. Það kemur
hingað með Englendinga, en
auk þess koma hingað þrjú skip
frá Þýzkalandi, auk brezkra og
bandarískra.
Ferðaskrifstofa ríkisins á
von á bandaríska skemmtiferða-
skipinu „Brazil“ hingað til
Reykjavíkur á annan í hvíta-
sunnu. 8. júlí er svo von á
skipinu „Caronia“ og stuttu
síðar kemur „Brazil“ öðru
sinni.
Geigvænlegur skortur er á
hótelplássi yfir sumartímann,
og er það allnokkur dragbítur
á þróun íslenzkra ferðamála.
Hafa nokkur hótel gripið til
þess ráðs að taka á leigu her-
bergi í heimahúsum, en slíkt á-
stand er skiljanlega ekki hæft
til frambúðar.
UNGFRU ISLAND 1965
Ungfrú ísland 1965, ungfrú Sig-
rúnVignisdóttir var krýnd á mið
nætti í nótt og tók ljósmyndari
Vísis myndina hér að neðan við
það tækifæri. Það var Rósa Ein
arsdóttir, sem krýndi hina nýju
fegurðardrottningu * Súlnasal
Hótel Sögu. Þar fór fram sfðari
hluti fegurðarsamkeppninnar, en
á fimmtudagskvöldið höfðu
stúlkurnar fimm i úrslitunum
komið fram fyrir dómnefnd og
áhorfendur, sem höfðu atkvæðis
rétt. Fjölmenni var á Sögu í gær
kveldi og biðu menn i spenn-
ingi eftir úrslitunum, sen»«om
birt á miðnætti. Um fB05 0g
fegurðardrottning íslands var
krýnd var einnig krýnd ne. 2
í keppninni, ungfrú Bára Magn-
úsdóttir, sem fegurðardrottning
Reykjavíkur.
FORMADUR10FTLCIDA SVARAR
rr
FRIENDSHIP
//
brigður d þjdnustustörf FSugfélugsins og sukur
um uð hufu beitt sér gegn Loftleiðum
Kristján Guðlaugsson, stjórnarformaður Loftieiða.
Á aðalfundi Loftleiða
í gær svaraði formaður
félagsins, Kristján Guð-
laugsson, ummælum
þeim, sem Örn Ó. John-
son forstjóri viðhafði
um Loftleiðir í ræðu
þeirri, er hann hafði
flutt við komu nýju
Friendship flugvélarinn-
ar til landsins.
w Það má segja að Kristján
láti hart mæta hörðu. Rifj-
ar hann upp ýmis atriði úr sam-
skiptum félaganna, sem Loft-
leiðamenn hafa augsjáanlega
ekki gleymt og tilnefnir m. a.
sérstaklega, að Flugfélagið hafi
barizt gegn fargjaidalækkun-
um á Evrópuleið, svo sem til
Luxemborgar, og einnig barizt
gegn því að frjálsræði ríkti um
leiguflug og viljað knýja strang-
ari reglur um það en i gildi eru
á Norðurlöndunum og víðast
um heim.
yj Þá tekur Kristján Guðlaugs-
^ son til meðferðar innan-
landsflug Flugfélagsins og ber
miklar brigður á það að þar
hafi verið unnin góð þjónusta
fyrir land og þjóð, sem sjáist
á því, að fjöldi Iftilla flugfélaga
hafi verið stofnaður víða um
land og á öllum aðalleiðum Flug
félagsins vegna þess, að menn
hafi ekki verið ánægðir með
þjónustu þess.
Hér verða nú raktir nokkrir
þættir úr ræðu Kristjáns Guð-
laugssonar.
UM ÞJÓNUSTU FLUGFÉLAGS-
INS INNANLANDS
Kristján sagði, að forstjóri
Flugfélagsins hefði í ræðu sinni
við komu Friendship-flugvélar-
innar sagt að Flugfélagið hefði
verið starfrækt sem þjónustu-
fyrirtæki fyrir land og lýð, án
tillits til stórgróða sjónarmiða.
Það hefði staðið undir rekstrar-
halla af innanlandsfluginu en
ekki farið að dæmi annarra að
fórna innanlandsfluginu.
Þessu svaraði Kristján svo:
Rétt er það, að með „trúrri
þjónustu" sinni hefur F.í. tek-
Framh. á bls. 6.
MIKLIR LÖNDUNARERFIÐLEIKAR EYSTRA
BLAOID ! DA G
. 2 Fegurðarsamkeppnin
— 3 Syrtlingur f ham.
— 4 Krossgáta og bridge
— 7 Kirkjan og þjóðin.
— 8 Vefnaður og saum-
ar í hásæti.
— 9 Börnin teikna og
mála.
— 10 Talað við Ásgeir
Júlfusson.
Síldarbræðslurnar eru yfirleitt ekki tilbúnar. Vísir
kannar dstandið í nokkrum síldarhöfnum
Þótt síldarskipin á miðunum fyr
ir austan séu ekki orðin nema rétt
um fimmtíu og helmingur þeirra
rétt nýkominn austur, eru þegar
orðnir miklir löndunarerfiðleikar á
Austfjarðahöfnunum. Það er ekki
mikið sfldarmagn, sem veldur þess
um erfiðleikum, heldur fyrst og
fremst tvennt: í fyrsta lagi eru
taflr á u .dirbúningi f landi vegna
fssins í vetur og vor og í öðru
lagi var síldin mun fyrr á ferðinni
nú en menn reiknuðu með.
Vísir hafði í gær samband við
löndunarhafnimar fyrir austan og
kynnti sér ástandið þar. Vfðast
hvar var ekki búið að gera klárt
fyrir vertíðina og einkum eru það
ríkisverksmiðjurnar, sem ætla að
komast seint í gagnið. Á flestum
stöðunum hafa verið miklar við-
gerðir og endurbætur í- vetur á
verksmiðjum og söltunarstöðvum,
og þessar framkv .>mdir hafa tafizt
vegna samgönguerfiðleika af völd-
um hafíssins, og vegna manneklu.
Skipin hafa siglt með síldina
alla leið .til Krossanesverksmiðj-
unnar í Eyjafirði, sem er meira en
sólarhrings sigling frá síldarmið-
unum, til þess að komast hjá bið
við löndun. Aðeins 2—3 verksmiðj
ur eru byrjaðar að bræða og þegar
blaðið berst til lesenda munu síld-
arþrær á mörgum stöðum vera orðn
ar fullar. Vísir kannaði ástandið á
nokkrum síldarstöðum fyrir norð-
an og austan í gær.
Vopnafjörður lokaður
vegna íss.
Á Vopnafirði náði blaðið sam-
bandi við Guðlaug Gíslason verk-
smiðjustjóra Síldarverksmiðju
Vopnafjarðar.
— Það var allt komið í gang hjá
okkur, sagði Guðlaugur. Við vorum
búnir að taka á móti 6000 málum
í dag og mörg skip voru á leið
inn til okkar með sfld, þegar ísinn
byrjaði að lóna inn fjörðinn og
sneru skipin öll við þess vegna. Nú
er svo komið að fsinn er kominn
alveg inn á höfnina og er íshröngl
út allan fjörðinn. Það er spáð á-
Framh. á bls. 6.