Vísir


Vísir - 05.06.1965, Qupperneq 1

Vísir - 05.06.1965, Qupperneq 1
VISIR 55. ári ALDREI FLEIRI FERÐAMENN Allar líkur benda til þess að ferðamannastraumurinn til Iandsins verði meiri en nokkru sinni fyrr nú í sumar. Á vegum Ferðaskrifstofu Geirs ZoSga koma hingað hvorki meiri né minna en níu skip. Hið fyrsta þeirra er „Mauritania" sem er 35 til 40 þúsund lestir að stærð og kemur hingað föstu daginn 11. júní. Það kemur hingað með Englendinga, en auk þess koma hingað þrjú skip frá Þýzkalandi, auk brezkra og bandarískra. Ferðaskrifstofa ríkisins á von á bandaríska skemmtiferða- skipinu „Brazil“ hingað til Reykjavíkur á annan í hvíta- sunnu. 8. júlí er svo von á skipinu „Caronia“ og stuttu síðar kemur „Brazil“ öðru sinni. Geigvænlegur skortur er á hótelplássi yfir sumartímann, og er það allnokkur dragbítur á þróun íslenzkra ferðamála. Hafa nokkur hótel gripið til þess ráðs að taka á leigu her- bergi í heimahúsum, en slíkt á- stand er skiljanlega ekki hæft til frambúðar. UNGFRU ISLAND 1965 Ungfrú ísland 1965, ungfrú Sig- rúnVignisdóttir var krýnd á mið nætti í nótt og tók ljósmyndari Vísis myndina hér að neðan við það tækifæri. Það var Rósa Ein arsdóttir, sem krýndi hina nýju fegurðardrottningu * Súlnasal Hótel Sögu. Þar fór fram sfðari hluti fegurðarsamkeppninnar, en á fimmtudagskvöldið höfðu stúlkurnar fimm i úrslitunum komið fram fyrir dómnefnd og áhorfendur, sem höfðu atkvæðis rétt. Fjölmenni var á Sögu í gær kveldi og biðu menn i spenn- ingi eftir úrslitunum, sen»«om birt á miðnætti. Um fB05 0g fegurðardrottning íslands var krýnd var einnig krýnd ne. 2 í keppninni, ungfrú Bára Magn- úsdóttir, sem fegurðardrottning Reykjavíkur. FORMADUR10FTLCIDA SVARAR rr FRIENDSHIP // brigður d þjdnustustörf FSugfélugsins og sukur um uð hufu beitt sér gegn Loftleiðum Kristján Guðlaugsson, stjórnarformaður Loftieiða. Á aðalfundi Loftleiða í gær svaraði formaður félagsins, Kristján Guð- laugsson, ummælum þeim, sem Örn Ó. John- son forstjóri viðhafði um Loftleiðir í ræðu þeirri, er hann hafði flutt við komu nýju Friendship flugvélarinn- ar til landsins. w Það má segja að Kristján láti hart mæta hörðu. Rifj- ar hann upp ýmis atriði úr sam- skiptum félaganna, sem Loft- leiðamenn hafa augsjáanlega ekki gleymt og tilnefnir m. a. sérstaklega, að Flugfélagið hafi barizt gegn fargjaidalækkun- um á Evrópuleið, svo sem til Luxemborgar, og einnig barizt gegn því að frjálsræði ríkti um leiguflug og viljað knýja strang- ari reglur um það en i gildi eru á Norðurlöndunum og víðast um heim. yj Þá tekur Kristján Guðlaugs- ^ son til meðferðar innan- landsflug Flugfélagsins og ber miklar brigður á það að þar hafi verið unnin góð þjónusta fyrir land og þjóð, sem sjáist á því, að fjöldi Iftilla flugfélaga hafi verið stofnaður víða um land og á öllum aðalleiðum Flug félagsins vegna þess, að menn hafi ekki verið ánægðir með þjónustu þess. Hér verða nú raktir nokkrir þættir úr ræðu Kristjáns Guð- laugssonar. UM ÞJÓNUSTU FLUGFÉLAGS- INS INNANLANDS Kristján sagði, að forstjóri Flugfélagsins hefði í ræðu sinni við komu Friendship-flugvélar- innar sagt að Flugfélagið hefði verið starfrækt sem þjónustu- fyrirtæki fyrir land og lýð, án tillits til stórgróða sjónarmiða. Það hefði staðið undir rekstrar- halla af innanlandsfluginu en ekki farið að dæmi annarra að fórna innanlandsfluginu. Þessu svaraði Kristján svo: Rétt er það, að með „trúrri þjónustu" sinni hefur F.í. tek- Framh. á bls. 6. MIKLIR LÖNDUNARERFIÐLEIKAR EYSTRA BLAOID ! DA G . 2 Fegurðarsamkeppnin — 3 Syrtlingur f ham. — 4 Krossgáta og bridge — 7 Kirkjan og þjóðin. — 8 Vefnaður og saum- ar í hásæti. — 9 Börnin teikna og mála. — 10 Talað við Ásgeir Júlfusson. Síldarbræðslurnar eru yfirleitt ekki tilbúnar. Vísir kannar dstandið í nokkrum síldarhöfnum Þótt síldarskipin á miðunum fyr ir austan séu ekki orðin nema rétt um fimmtíu og helmingur þeirra rétt nýkominn austur, eru þegar orðnir miklir löndunarerfiðleikar á Austfjarðahöfnunum. Það er ekki mikið sfldarmagn, sem veldur þess um erfiðleikum, heldur fyrst og fremst tvennt: í fyrsta lagi eru taflr á u .dirbúningi f landi vegna fssins í vetur og vor og í öðru lagi var síldin mun fyrr á ferðinni nú en menn reiknuðu með. Vísir hafði í gær samband við löndunarhafnimar fyrir austan og kynnti sér ástandið þar. Vfðast hvar var ekki búið að gera klárt fyrir vertíðina og einkum eru það ríkisverksmiðjurnar, sem ætla að komast seint í gagnið. Á flestum stöðunum hafa verið miklar við- gerðir og endurbætur í- vetur á verksmiðjum og söltunarstöðvum, og þessar framkv .>mdir hafa tafizt vegna samgönguerfiðleika af völd- um hafíssins, og vegna manneklu. Skipin hafa siglt með síldina alla leið .til Krossanesverksmiðj- unnar í Eyjafirði, sem er meira en sólarhrings sigling frá síldarmið- unum, til þess að komast hjá bið við löndun. Aðeins 2—3 verksmiðj ur eru byrjaðar að bræða og þegar blaðið berst til lesenda munu síld- arþrær á mörgum stöðum vera orðn ar fullar. Vísir kannaði ástandið á nokkrum síldarstöðum fyrir norð- an og austan í gær. Vopnafjörður lokaður vegna íss. Á Vopnafirði náði blaðið sam- bandi við Guðlaug Gíslason verk- smiðjustjóra Síldarverksmiðju Vopnafjarðar. — Það var allt komið í gang hjá okkur, sagði Guðlaugur. Við vorum búnir að taka á móti 6000 málum í dag og mörg skip voru á leið inn til okkar með sfld, þegar ísinn byrjaði að lóna inn fjörðinn og sneru skipin öll við þess vegna. Nú er svo komið að fsinn er kominn alveg inn á höfnina og er íshröngl út allan fjörðinn. Það er spáð á- Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.