Vísir - 09.06.1965, Page 1

Vísir - 09.06.1965, Page 1
55. árg. - Miðvikudagur 9. júní 1965. - 128. tbl. Mesta síldveiði ver- tfðarinnar var í nótt Ágætt veður var á síldarmið- unum sl. sólarhring, og voru skip- in einkum að veiðum 130-135 míl ur AaN frá Langanesi. Samtals til kynntu 48 skip um afla alls 57.400 mál og er þetta mesti veiðidagur sumarsins. Einir SU, 600 mál, Þráinn NK, 700, Mímir ÍS, 600, Barði NS, 1000, Víðir n. GK, 1000, Jón Kjartansson SU, 1800, Dagfari ÞH, 1700 Arnar- nes GK 700, Auðunn GK, 1350, Bergur VE, 1500, Bergvík KE, 600, Þórsnes SH, 900, Elliði GK, 1200 Einar Hálfdáns IS, 700, Þórður Jón- asson EA, 1800, Ólafur Friðberts- soti- ÍS, 1100, Loftur Baldvinsson EIA, 1200, Lómur KE, 1800, Jörund- ur in. RE, 2000, Bjarmi EA, 700, Héðinn ÞH, 1100, Helgi Flóvents- son ÞH, 1200, Guðbjartur Kristján ÍS, 1200, Sigurður Bjarnason EA 600, Sæþór ÓF, 1100, Krossanes SU 1300, Sigurður Jónsson, SU, 1100, Ársæll Sigurðsson GK, 800, Gull- berg NS, 1200, Heimir SU 1600, Ingiber Ólafsson GK, 1600, Helga Guðmundsdóttir BA, 1700, Jörund- ur n. RE, 1800, Glófaxi NK, 650, Steinunn SH, 750, Guðbjörg ÍS, 1000, Gullfaxi NK, 1300, Gunnar SU 1100, Höfrungur III. AK, 1950, Sól- rún ÍS, 1300, Margrét SI, 1600, Sig- urvon RE, 1200, Keflvíkingur KE, 1300, Guðrún IJónsdóttir ÍS, 950, Hugrún ÍS, 1400, Jón Þórðarson BA 600, Áskell ÞH, 750 og Reykjaborg RE 2300 mál. Sigurður Magnússon, formaour kaupmannasamtakanna, flytur ræðu sína á aðlfundinum. KAUPMENN VILJA AFNÁM SÍÐ- USTU LEIFA VERÐLA GSÁKVÆDA Prá fundi Kaupmannasamfakanna sem hófsf í gærmorgun Aðalfundur Kaupmannasamtak- anna hófst í gærmorgun að Hótel Sögu. Formaður samtakanna, Sig- urður Magftússon, setti fundinn og flutti ræðu. T>á fiutti Knútur Bruun framkvæmdastjóri samtakanna skýrslu um starfsemi samtakanna, Ásgrímur P. Lúðvíksson gjaldkeri lagði fram reiknioga og Jón Bjama- son flutti greinargerð um útgáfu blaðsins Verzlunartíðindi. Sigurður Magnússon ræddi ýmis vandamál og viðfangsefni kaup- mannasamtakanna. Hann fagnaði því aukna verzlunarfrelsi sem nú er komið á, en benti á það, að við- tæku verzlunarfrelsi fylgdu óhjá- kvæmilega ýmis vandamál sem snúa að innlendri framleiðslu. Þau vandamál sagði hann, að ekki mætti vanmeta, því að þau eru stór á okk ar mælikvarða og snerta afkomu- möguleika þúsunda manna og heim ila. Hann sagði, að einn þáttur við- skiptalífsins hefði orðið verulega aftur úr f þróuninni til algers verzl- unarfrelsis, en það væru gildandi verðiagsákvæði á sumum vöruteg- undum. Smásöludreifingunni væri enn gert að dreifa ýmsum vörum fyrir þóknun, sem er miklu lægri en meðal dreifingarkostnaði næmi. GEKK A LAND I SYRTLINGI Vísir talar við Pól Helgason fró Vestmannaeyjum I gærkvöldi kl. 8.30 vann Vest mannaeyingur það afrek að ganga á land á nýju eynni. Svo til stöðugt gos var i Syrtlingi og rigndi glóandi vikri yfir eyj una og allt að 100 metra frá sjálfri eyjunni. Vísir hringdi f Vestmannaeyinginn, Pál Helga- son og óskaði honum til ham- ingju með afrekið. — Við vorum fjórir um borð f bátnum mfnum, Jóni krók, þeir Gísli og Bragi Steingrímssynir, Ragnar Jóhannesson og ég, sagði Páll. — Við töldum hvað leið langt á milli gosa, sem mörg voru mjög öflug og huldu alla eyjuna. Gosið var mjög 6- reglulegt, hléin voru allt frá 20 sek. og upp í 3 mín., en við tók um eftir því að hléin voru lengst eftir öflugustu gosin. Því vorum við tilbúnir eftir einhverja stóra sprengingu, ég í gúmmíbát, en hinir f trillunni og var taug á milli. Um leið og sprengingin var liðin, reri ég eins hratt og ég komst að eyj- unni, hljóp upp með flaggið og stakk því niður. Bakkinn, sem ég stakk fiagginu niður f var mjög laus í sér og fannst mér því sem óralangur tfmi Iiði áður en mér tókst að láta það standa. Tíminn er lengur að líða við þess ar aðstæður, en heima á stofu- gólfi. Eyjan nötraði öll, það var áþekkt að standa á henni eins og standa ofan á risastórri vél. Varðskipið Þór var við nýju eyjuna með forsætisráðherra og utanríkisráðherra ásamt fleiri gestum, en Sigurður Þórarjns- son við þriðja mann var í gúmmíbát á leið f land í Surtsey. (Sigurður var að koma daginn áður ofan af Vatnajökli þar sem hann var f 8 daga.) Allir þessir menn sáu land- göngu Páls og urðu fyrstu við- brögð sumra þeirra að hrópa, — eru nú bannsettir Frakkarnir komnir aftur. Þessi hróp breytt- ust í sigurhróp þegar ljóst var að það var Vestmannaeyingur, sem var þama á ferð, en ekki Frakki. Páll fór um borð f Þór á eftir og óskuðu forsætisráðherra og utanríkisráðherra honum til ham ingju með afrekið. Sagði hann, að ýmsar stjórnmála- ástæður myndu vera þess valdandi, að þessar leifar verðlagsákvæða hefðu ekki enn verið afnumdar. Þessu myndi og valda tortryggni milli stétta og ímynduð gagnsemi verðlagsákvæða samfara áratuga Framh. á bls. 6. Verkfalli frestað Samningafundur með full- trúum félags starfsfólks í veit- ingahúsum og veitingamanna stóð fram yfir miðnætti f nótt. Félagið hafði boðað verkfall frá og með miðnætti föstudags ins. Á fundinum í gær náðist samkómulag um að verkfallinu yrði frestað til 1. júlí, og samn ingar reyndir fram að þeim tíma, með tilliti til hinna nýju viðhorfa í kjaramálum sem kaupsamningar nörðanlands og austan hafa skapað. Lausa samninga hafa tvö önnur verkalýðsfélög á sviði veitingamála. Eru það félag hljómlistarmanna og félag mat reiðslumanna. Samningar þess ara félaga við veitingahúsaeig endur runnu út 5. júní, en ekkert verkfall hefur verið boð að af hálfu þessara félaga. Vinnutíminn styttur og 4% kuuphækkun M Bls. 3 Hraunbúamótí Krýsuvik. —• 4 Myndir frá gosinu úr Syrtlingi — 7 Hjartavernd? — 9 Þriggja mánaða ís öld á Ströndum —- 10 Talað við Jens Guðbjömsson ÍHNHHi 28 verkalýðsfélög standa að samningum Samkomulagið í kjaradeiiu vinnu- veitenda og verklýðsfélaganna fyr- ir norðan og austan, sem skýrt var frá hér í blaðinu í gær, var stað- fest á stjórnarfundi Vinnuveit- andasambandsins í gær. Einnig var það samþykkt einróma á fundi Verkamannafélags Akureyrar, Ein- ingarinnar í gærkvöldi. Verður það borið undir 27 önnur vcrklýðsfé- lög á Norður- og Austurlandi í dag og á morgun. Þykir fullvíst að samkomulagið verði samþykkt í öll- um félögunum. Hér fer á eftir efni samkomu- ; lagsins og yfirlýsing sú, sem rfkis- stjórnin gaf út í tilefni þess: ★ Vinnuvikan styttist um 3 klst., úr 48 stundum f 45 stundir. ] Heildarlaun fyrir dagvinnu verða óbreytt þrátt fyrir þessa ; • styttingu. Jafngildir þetta 6.6% kauphækkun. A Almennt grunnkaup hækkar uni 4%. ★ Ríkisstjórnin beitir sér fyrir j sérstökum aðgerðum til bóta á atvinnuástandinu norðanlands. | Stytting vinnuvikunnar um 3 stundir jafngildir sem fyrr ségir 6.6% kauphækkun. Nær hún til alls tímakaups, nema nætur og helgi- dagavinnu. Þá er það nýmæli, að verkafólk sem unnið hefur samfleytt einn mánuð hjá sama vinnuveitanda skal fá greiddan einn virkan dag í veikindaforföllum. Eftir tveggja mánaða samfleytt starf hjá sama vinnuveitenda skal það fá greidda tvo virka daga o. s. frv. Áður voru veikindadagar ekki greiddir nema verkafólk hefði unnið fjóra mán- uði samfleytt hjá sama vinnuveit- anda. Þá hækkar nokkuð trygging sfldarstúlkna. Yfirlýsing ; ( ríkisstjómarinnar Hér fer á eftir yfirlýsing sú, sem ríkisstjórnin gaf um aðgjðrðir í atvinnumálum Norðlendinga: Ríkisstjómin og verkalýðssam- tökin á Norðurlandi eru sammála um nauðsyn þess að bæta nú þeg- ar úr alvarlegu atvinnuástandi á Norðurlandi sökum langvarandi aflabrests og hefja kerfisbundna at hugun og áætlanagerð um framtíð- aratvinnuöryggi f þessum lands- hluta. Er samkomulag um eftir- greindar ráðstafanir tiLúrbóta: 1. Gert verði út á yfirstandandi sfldarvertíð að minnsta kosti Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.