Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 3
V í SIR . Föstudasmr 18. jtiní 1965.
ipmyndir frá Ströndum
Að koma til Drangsness á
Ströndum sólskinsbjartan og
hlýjan eftirmiðdag að vori til er
rétt eins og vera skyndilega
staddur í bandarískum söngleik
eftir Rodgers og Hammerstein.
Það fyrsta sem mætir manni er
ró og djúp kyrrð, það er engin
umferð á götunum utan fimm
kúa sem virða aðkomumann fyr
ir sér sljóum augum og gefa frá
sér dauflegt uml. Gömul kona
kemur með vatnsfötu í hendi út
2
úr einu húsi og fer jafnskjótt
inn í það næsta.
En niðri á bryggjunni kveður
strax við breyttan tón, — þar
eru sjómenn að koma að landi
með fulla báta sína af grá-
sleppu og rauðmaga, tveir ung
ir menn þvo moskóvits bifreið
sína, hafa útvarpið stillt hátt og
taka undir bítlalögin, maður sem
setur hrognkelsatunnur upp á
vörubifreið syngur með og „töff
gæ“ með vatnsgreitt hár hallar
sér upp að benzíntanki og kverk
ir sér í sígarettu.
Þetta er í júníbyrjun og ís-
hröngl Iiggur bráðnandi um all-
an sjó.
Myndatextar
1 \ Víða má sjá frumstæð og
gamaldags vinnubrögð á
Vestfjörðum, — þama eru böm
að draga bát á land með spili
en bóndinn er niðri i fjömnni
og ýtir á eftir.
91 Það er heitt vatn i jörðu
* í Strandasýslu á mörgum
stöðum. Nú era einstakir hrepp
ar að láta bora eftir vatni til
upphitunar bóndabæja og skóla.
Þama era bormennimir staddir
að Klúku í Bjamarflrði, en þar
hefur lengi komið nokkuð heitt
vatn úr jörðu og verið að ör-
litlu leyti nýtt til sundlaugar.
01 Það er ekki víða sem bænd
ur hafa komið sér upp
laxauppeldisstöðvum. Guðmund-
ur Halldórsson bóndi i Ásmund-
amesi við Bjamarfjörð hefur í
tvö ár gert tilraunir með laxa-
rækt. Klakstöðin er i gömlum
bragga og tækin kannski ekki
af vönduðustu tegund, en fyrir-
tækið virðist ætla að heppnast
all sæmilega hjá honum.
Frá Hólmavik: Til hægri er
hin nýja kirkja, sem ekki
er þó fullfrágengin ennþá.
Vinstra megin sést yfir höfnina.
Það er margt fróðlegt og
skemmtilegt að sjá á Ströndum,
— sennllega gera íslenzkir ferða
menn ekki nógu mlklð af þvi
að ferðast um landið og hætt
er við að einhverjir íslendingar
þekki betur staðhætti á Mall-
orca en í Strandasýslu.
4
ÍBÚÐ TIL SÖLU
3 herb. íbúðarhæð, stór sér lóð. íbúðin þarf
standsetningar við. Hagstæðir skilmálar.
Uppl. til kl. 18 í síma 20330.
2ja - 3ja herb. íbúðir
2 og 3 herbergja íbúðir við Hraunbæ, selj-
ast fokheldar. Verða með tvöföldu gleri og
miðstöðvarlögn. Allt sameiginlegt búið að
utan og innan.
2 herbergja íbúðir eru 66 ferm. og kosta 450
þús. kr.
3 herbergja íbúðirnar eru 85 ferm. og kosta
550 þús. kr.
Húsnæðismálalán geta gengið upp í greiðslu
Teikningar liggja fyrir á skrifstofu vorri.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10. 5. hæð. Sími 24850 og kvöldsími 37272