Vísir - 23.06.1965, Blaðsíða 1
i
Fermingarundirbúningurinn
ræddurú prestastefnunni
Synodus hófst með guðsþjónustu í morgun
í morgun hófst í Reykjavík
prestastefna íslands eða Syn-
odus með guðsþjónustu f Dóm-
kirkjunni, þar sem sr. Páll Þor-
Ieifsson prófastur á Skinnastað
prédikaði, en síðan átti að setja
prestastefnuna i kapellu Háskól-
ans, en þar flytur biskup ávarp
og yfirlit um störf þjóðkirkj-
unnar.
Aðalefni prestastefnunnar að
þessu sinni verður „Undirbún-
ingur og tilhögun fermingarinn
ar“. Á síðustu prestastefnu var
nefnd skipuð til að íhuga það
mál. Formaður nefndarinnar hef
ur verið Óskar J. Þorláksson
dómkirkjuprestur og mun hann
gera grein fyrir störfum nefnd-
arinnar og leggja fram nefnd-
arálit. Á fimmtudaginn verður
álit nefndarinnar síðan tekið til
meðferðar í umræðuhópum og
á föstudaginn verða lokaumræð-
ur um málið og það síðan tekið
til afgreiðslu.
Sem fyrr segir kom þetta mál
til umræðu á síðustu presta-
stefnu og heyrðust þar raddir
um að nauðsynlegt væri að
samræma fermingarundirbúning
inn og koma honum í fastara
form. Sumir telja nauðsynlegt
að byrja spurningar fyrr að
haustinu, um sama leyti og skól
amir fara að starfa og hafa síð-
an samvinnu við skólana.
Við upphaf prestastefnu I morgun. Á myndinni eru frá vinstri:
Sr. Þórir Stefensen, Sauðárkróki, Einar Einarsson, djákni i Grúns-
ey, sr. Pétur Sigurgeirsson, Akureyri, og sr. Óskar J. Þorláksson,
dómkirkjuprestur.
AÐEINS HÆGTAD LANDA ÚR EINUM TOG
ARA
í dag er Ingólfur Amarson
að koma af veiðum, en ástand
ið hjá Togaraafgreiðslunni er
svo slæmt, að ekki er hægt að
landa úr togaranum hér í
Reykjavík og verður hann að
fara til Hafnarfjarðar. Tveir
togarar, Fylkir og Júpiter, komu
af veiðum sl. mánudag og get-
ur Togaraafgreiðslan aðeins
unnið við annan þeirra. Greip
eigandi Júpiters þá til þess
ráðs að senda fólk úr frysti-
húsinu hjá sér til þess að vinna
við löndunina, þar sem fiskur-
inn liggur undir skemmdum
vegna hita.
Ástandið hjá okkur hefur
ekkert lagazt og skiljanlega hef
ur eftirvinnubannið haft sfn
áhrif, sagði talsmaður Togaraaf
greiðslunnar í morgun.
í Reykjavíkurtiöfn liggja nú
togararnir Júpiter og Fylkir, sem
nýkomnir em af veiðum og
einnig Hallveig Fróðadóttir,
sem var að koma úr slipp. Þá á
Eimskip 3 skip f höfninni
Skógafoss, Mánafoss og Detti-
foss. Jöklar em hér með hol-
lenzkt leiguskip, og Kronprins
Bútar að austan komnir ú Eyjamið
NUkill síldarofli við Eyjar
I
Síldarafli hefur glæðzt við Eyjar
og dæmi þess, að bátar hafa tví-
hlaðið sama sólarhringinn.
i ' •
Síld hefur veiðzt að staðaldri í
grennd við Vestmannaeyjar á und-
angengnum vikum, þegar gefið hef-
ur á sjó, og tíðast aflast þá dável,
nokkur þúsund tunnur á sólar-
hring, en í fyrradag aflaðist sér-
lega vel, — þá fengu 12 bátar rúm-
lega 11.000 tunnur, og fór aflinn
í bræðslu svo sem verið hefur, en
m
BIs. 3 íslandssýning f Köln.
— 7 Úr dagbók blaða-
manns.
— 8 „Byltingin er mín
eina námsgrein".
— 9 Nýjar leiðir í kjara-
málum.
— 10 Talað við Geir H.
Zoega.
sildin er ákaflega misjöfn.
Hinn 17/6 var aflinn 6500 tn,
18/6 2000, 19/6 4000 og 21/6
5200. Dagar hafa alltaf fallið úr
vegna brælu og svo var í gær.
Það er vitanlega ekki einvörö-
ungu vegna þess að síldaraflinn
hefur glæðzt að meirl afli berst
á land, heldur stafar það einnig
af því, að bátunum, sem þessar
veiðar stunda, fer daglega fjölg-
andi, og þangað eru nú farnir að
tfnast Eyjabátar og Suðurnesjabát-
ar, sem komnir voru á Austfjarða-
mið, svo og stöku Austfjarðabát-
ar. Þykir sumum álitlegra að geta
átt von á að fá aö fylla sig við
i Eyjar og jafnvel tvihlaða meðan
! eita þarf síldina eystra langt út á
haf, en dæmi eru þess, að bátar
hafa tvíhlaðið við Eyjar eins og
Krlstbjörg. sem fékk 2200 tn. f
tveimur róðrum. Aflast mest sfð-
degis, en annars hafa bátar fengið
afla á öllum tfmum sólarhrings.
Frá 10 á mánudagskvöldi til 10
að morgni á þriðjudag fengu eftir-
taldir bátar 15.800 tn.:
Engey 1500 — Reynir 1200 —
Sigurður 1200 — Huginn II 1100
Ófeigur II 1100 — Meta 950 —
Kópur 900 — Hrafn Svein. II 1000
Kristbjörg 1300 (annar róðurinn)
Friðrik Sig. 900 - Gísli lóðs 900
Skagaröst 900 — Ófeigur III 850
ísleifur IV 1000 - Gullborg 1000.
Olav kom frá Kaupmannahöfn
f morgun.
„Segja má að uppskipun
gangi sæmilega lijá okkur um
þessar mundir, en þó vantar
alltaf menn og einnig hefur eft
irvinnubannið sitt að segja,
sagði blaðafulltrúi Eimskips og
bætti síðan við: Áður unnum
við alltaf til 7 og 8 á kvöldin
og stutt er síðan hætt var að
vinna um helgar. Ef eftirvinnu
bannið verður áfram þá held
ég að ástandið versni mikið“.
Þegar Fylkir og Júpiter
komu af veiðum sl. mánudag
lá togari í Reykjavíkurhöfn og
gat því Togaraafgreiðslan ekki
byrjað að landa úr þeim. Tog-
araafgreiðslan hefur oft á tíð-
um ekki nema um tuttugu
menn og er ekki hægt að landa
nema úr einum togara. Seinni-
partinn á mánudag var byrjað
á Fylki og verður reynt að
ljúka lönduninni eftir hádegi í
dag og ef til vill byrja á Júpi-
ter, ef tími vinnst til. Þegar
sjáanlegt var að ekki var hægt
að byrja á Júpiter, sendi eig-
andi togarans nokkra af starfs
mönnum sínum úr frystihúsi til
þess að vinna við iöndun og
voru nokkrir menn að vinna
í togaranum f gær og dag.
MEDAL TEKJUR V0RU180ÞUS.A
MÁNUÐIIGRÁSLEPPU. EIÐINNI
Frá Flatey á Skjálfanda
gerðu í vor út 16 menn á hrogn
kelsaveiðar, vertíðin st i í rétt
rúman mánuíi og voru meðál-
tekjur á mann þetta timabil um
180 þúsund krónur.
Verð á grásleppu hefur
hækkað aílmikið að undan-
förnu, og í Flatey söltuðu sjó-
menn grásleppuna sjálfir. —
Fengu þeir með því móti um
5000 krónur fyrir tunnuna.
Atvinnuástandið á Húsavík
og víðar á Norðurlandi hefur
verið fremur slæmt frá áramót
um, þótt ekki sé hægt að tala
um að atvinnuleysi hafi rfkt.
Nokkrir Húsvíkingar gerðu út á
hrognkelsaveiðar frá Kópaskeri
og hafa þessar veiðar verið
mikil uppbót á atvinnurýrnun
undanfarinna mánaða. í Flatey
voru t. d. 16 manns, sem reru,
og höfðu þeir samtals um þrjár
milljónir króna, eða um 180
þúsund kr. hver að jafnaði.
Söltunarsíld er farin að ber-
ast til Húsavíkur. Náttfari kom
þangað í fyrradag með 1400
tunnur og Pétur Jónsson f gær
með 300 tunnur. Þegar hafa um
18 þúsund mál bræðslusfldar
borizt, - em ýmist var brætt eða
fryst.